Morgunblaðið - 04.07.2004, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
VEGFARENDUR í miðbæ Reykja-
víkur voru vel búnir í votviðrinu í
gær þar sem sjá mátti regnhlífar af
ýmsum stærðum og gerðum. Þeir
sem ætla að bregða sér af bæ í dag
ættu ef til vill að fylgja fordæmi
þeirra því spáð er áframhaldandi
rigningu á suðvesturhorni landsins.
Morgunblaðið/Ásdís
Regnhlífaveður á suðvesturhorninu
ÞAÐ er hallærislegt að vera lengi að skrifa sms
eða hringja í foreldra sína en flott að hanga í sím-
anum og vera fljót/-ur að skrifa sms. Þetta var
meðal svara sem Kristín Lilliendahl fékk í athug-
un sinni á farsímanotkun 30 nemenda í 9. bekk í
grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Krist-
ínar var úrtakið lítið og því erfitt að álykta út frá
könnuninni en engu að síður komi þar fram atriði
sem vert sé að gefa betri gaum.
Kristín skrifar grein um notkun farsíma í nýj-
asta tölublað Skímu, málgagns móðurmálskenn-
ara. Þar segir hún meðal annars frá því að rann-
sóknir á notkun farsíma meðal unglinga hafi leitt í
ljós að hún er mismunandi eftir aldri. Til dæmis er
farsíminn nokkurs konar stöðutákn í 7. og 8. bekk,
félagsmiðstöð í 9. bekk en lífsnauðsyn fyrir ung-
linga í 10. bekk. Kristín telur að mögulegt sé að
nýta farsíma við kennslu og þá sérstaklega í ís-
lenskukennslu. Hún bendir á að með sms-skila-
boðum hafi þróast nýtt samskiptamál sem sé eins
konar blanda af táknum og hefðbundnu ritmáli í
styttu formi enda mikilvægt að koma skilaboðum
frá sér með sem fæstum stafabilum.
Þurfa að hafa góð tök á málinu
Kristín álítur þetta skemmtilega nýjung og að
það þurfi færni í stafsetningu og ríkan orðaforða
til að geta beitt málinu á þennan hátt um leið og
ákveðin nýsköpun á sér stað. „Þetta verður nokk-
urs konar keppni í færni; að beita málinu og stytta
það. Ég held við getum nýtt símana heilmikið í
samskiptum við nemendur og ég held það hjálpi til
við lestur, ritun og stafsetningu. Ég er jafnframt
viss um að í gegnum símann og Netið fá krakkar
sem eiga á hættu að einangrast, t.d. vegna fötl-
unar, tækifæri á samskiptum sem þau annars
hefðu ekki möguleika á,“ segir Kristín og bætir við
að sums staðar séu kennarar farnir að aflétta
banni við farsímanotkun í skólastofum og farnir að
nota símana markvisst til náms og kennslu.
Að sögn Kristínar virðast foreldrar sjaldnast
fylgjast með farsímanotkun barna sinna. Áður var
hins vegar auðvelt fyrir foreldra að fylgjast með
félagsskap barnanna enda fóru samskipti mikið
fram í gegnum heimasíma.
„Heimur unglinga og foreldra þeirra er mun
meira aðgreindur en æskilegt og eðlilegt er,“ segir
Kristín.
Nýtt samskiptamál með farsímanotkun að þróast meðal unglinga
Hallærislegt að vera lengi
að skrifa sms-skilaboð
ÞRETTÁN flugstjórar sem áður fyrr flugu
DC-3 flugvélinni Gljáfaxa, TF-ISH, sem var
lengi í eigu Flugfélags Íslands, hittust á dög-
unum og rifjuðu upp gamlar minningar. Vélin
heitir núna Páll Sveinsson og er notuð til
áburðarflugs og enn er það kjarni þessara
reyndu flugmanna sem sinna áburðarfluginu
sem reyndar hefur dregist nokkuð saman á síð-
ustu árum.
Flugstjórarnir minntust þessarar vinsælu
flugvélar, þar sem þeir áttu oft ógleymanlegar
stundir við stjórnvölinn, í blíðu og stundum
stríðu.
Efri röð frá vinstri: Ólafur Indriðason,
Brynjúlfur Thorvaldsson, Sigurður Haukdal,
Geir Gíslason, Henning Bjarnason, Rúnar Guð-
bjartsson og Jón R. Steindórsson. Neðri röð frá
vinstri: Jóhannes R. Snorrason, Smári Karls-
son, Skúli Magnússon, Snorri Snorrason, Vikt-
or Aðalsteinsson og Bragi Norðdahl./15
Minntust
liðinna daga
ALGJÖR breyting hefur orð-
ið á því að sjá máva á höf-
uðborgarsvæðinu miðað við
undanfarin
10–20 ár.
Segir Æv-
ar Peter-
sen fugla-
fræðingur
að þetta hafi ekki þekkst hér
áður fyrr en tengist gríðar-
legri fjölgun sílamávsins.
Hann sé mjög áræðinn og
sæki miklu frekar en aðrar
mávategundir inn til bæja og
sé þetta mikil breyting sem
komi til vegna úrgangslosun-
ar mannsins. Mislíki mönnum
þetta verði þeir að líta í eigin
barm./8
Sílamávi
fjölgar
GREINA má breytingar í setninga-
gerð færeysku í átt frá íslensku til
annarra norrænna tungumála að því
er fram kemur í samtali við dr.
Höskuld Þráinsson, prófessor í ís-
lensku við HÍ og aðalhöfund nýút-
kominnar ríflega 500 blaðsíðna
handbókar um færeysku, „Faroese,
An Overview and Reference
Grammar“.
„Færeysk setningagerð hefur ver-
ið að breytast og þá kannski í átt frá
íslensku til annarra norrænna
tungumála. Að sumu leyti má því
segja að ýmis atriði í máli eldra fólks
séu lík íslensku en atriði í máli yngra
fólksins hafi tilhneigingu til að líkj-
ast meira dönsku, sænsku og
norsku,“ segir Höskuldur í viðtalinu.
Þar kemur m.a. fram að Færey-
ingar hafi leitað álits Jóns Sigurðs-
sonar á því hvernig best væri að
haga samræmdri færeyskri stafsetn-
ingu.
Færeyska
að fjarlægj-
ast íslensku
Íslendingar fyrirmynd/18
ALÞINGI kemur saman á
mánudaginn klukkan 15 til þing-
funda vegna lagasetningar um
þjóðaratkvæðagreiðslu um fjöl-
miðlalögin, að því er fram kemur
á vef Alþingis.
Illugi Gunnarsson, aðstoðar-
maður forsætisráðherra, sagði í
samtali við Morgunblaðið að rík-
isstjórnin héldi áfram undirbún-
ingi að frumvarpinu um helgina
en enginn ríkisstjórnarfundur
hafði verið boðaður þegar Morg-
unblaðið fór í prentun.
„Það eru ýmis atriði sem þarf
að taka afstöðu til. Menn vilja
vanda þessa lagasmíð enda
skiptir miklu máli að hún sé vel
úr garði gerð. Það er því ekkert
óeðlilegt að það taki tíma að
ganga frá henni, sérstaklega í
ljósi þess að það er ekki langt
síðan starfshópurinn, sem fór
yfir hina lögfræðilegu hlið máls-
ins, skilaði áliti sínu,“ segir Ill-
ugi.
Alþingi
kemur
saman á
mánudag