Morgunblaðið - 07.07.2004, Blaðsíða 18
DAGLEGT LÍF
18 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hver kannast ekki við þáóskemmtilegu reynslu aðætla sér að hefja líkams-rækt af
miklum krafti en of-
reyna sig svo illilega í
fyrsta tímanum að
áætlanirnar eru þegj-
andi og hljóðlega lagð-
ar á hilluna um
ókomna framtíð? Þó
svo að hver og einn
verði vissulega að
finna sér þá líkams-
rækt sem hæfir hon-
um best, geta hlaup
verið góður kostur fyr-
ir þá sem vilja geta
stundað sína líkams-
rækt á hvaða tíma
dags sem er, hvar sem
er og án mikils til-
kostnaðar.
Gunnar Páll Jóakimsson íþrótta-
þjálfari hefur gefið út bók sem sniðin
er fyrir þá sem eru að feta sig yfir í
markvissa hlaupþjálfun, ýmist sem
byrjendur eða lengra komnir. Um er
að ræða handbók með fræðsluefni,
æfingaáætlunum og æf-
ingadagbók, sem áhuga-
samir hlauparar geta
stuðst við og fylgst um
leið með ástundun sinni
og árangri með því að
skrá hann niður. „Bókin
getur komið í staðinn
fyrir það aðhald sem
margir leita eftir með
þátttöku í hlaupahópum.
Hún leiðbeinir fólki um
hvernig það getur verið
sinn eigin þjálfari og
fengið sem mest út úr
þeim tíma sem það ver í
æfingar,“ segir Gunnar
Páll þegar hann er
tekinn tali og beðinn um
að gefa nokkur góð ráð
úr bókinni.
Gunnar Páll hefur mikla reynslu
sem þjálfari keppnisfólks og skokk-
ara. Í hlaupahandbókinni, sem ber
einfaldlega titilinn Hlaup, eru settar
upp æfingaáætlanir af mismunandi
þyngdarstigum og þær að nokkru
leyti sniðnar með það í huga að
skokkarar geti nýtt æfingar sínar
sem undirbúning fyrir þátttöku í
Reykjavíkjavíkurmaraþoninu í ágúst.
Þannig er m.a. sett upp átta vikna æf-
ingaáætlun fyrir 10 kílómetra hlaup,
hálfmaraþon og maraþon. „Ég hafði
það í huga að bókin gæti nýst öllum,
en þó er hún e.t.v. fyrst og fremst
miðuð við byrjendur og þá sem hafa
ekki notið mikillar leiðsagnar. Settar
eru upp áætlanir fyrir allt frá byrj-
endum til undirbúnings fyrir mara-
þon. Þar á meðal er almenn æf-
ingaáætlum sem sniðin er fyrir þá
sem stunda hlaup til þess að halda sér
einfaldlega í góðu formi en eru að
leita eftir að skipuleggja sínar æfing-
ar,“ segir Gunnar Páll.
Hvað þurfa skipulegar æfingar að
fela í sér?
„Þær þurfa að byggjast á áætl-
unum, þar sem byrjað er með viðráð-
anlegt álag sem aukið er smám sam-
an. Þá er mjög æskilegt að
hlaupþjálfun feli í sér ákveðna til-
breytingu, því hún má ekki verða of
einhæf. Þannig eiga styrktaræfingar
og teygjur að vera fastur hluti af allri
hlaupþjálfun, sama hvort sem um er
að ræða byrjendur eða lengra komna.
Ég set t.d. fram leiðbeiningar um það
hvernig fólk getur skapað sér breyti-
legra áreiti, og gert æfingar í
tengslum við hlaupið. Með því að
stunda göngu eða skokk, í samspili
við léttar styrktar- og teygjuæfingar,
getur fólk byggt upp mjög góðan al-
hliða styrk. Samhliða þessu verður að
gæta að hollu mataræði, enda næst
seint góður árangur ef þessir tveir
þættir spila ekki saman.“
Ástand hvers og eins
Gunnar Páll segir það jafnframt
mikilvægt að fólk nýti sér fjölbreyti-
legar hlaupaleiðir. „Það getur verið
hentugt að velja sér tvær eða fleiri
miskrefjandi leiðir, t.d. eina létta og
aðra með brekkum. Þá ættu menn að
huga að því að hafa mismunandi und-
irlag, og þar má benda á skemmtilega
malarstíga sem margir þekkja og er
að finna víða á höfuðborgarsvæðinu,
s.s. í Öskjuhlíð, Elliðaárdal og Heið-
mörk. Og aldrei verður of oft brýnt
fyrir skokkurum að vera á góðum
skóm, enda getur óhentugur skóbún-
aður aukið hættu á meiðslum. Þetta á
jafnt við um þá sem skokka og þá sem
nota göngu, t.d. í og úr vinnu, til að
halda sér í æfingu.“
En hvernig fara byrjendur í skokki
að því að meta ástand sitt?
„Hér er rétt að ítreka að ástand
hvers og eins getur verið mjög mis-
jafnt og hentar það til dæmis ekki öll-
um að byrja að hlaupa þegar í stað.
Þannig ætti fólk ekki að byrja á
hlaupáætlun fyrr en það treystir sér
til þess að ganga rösklega í 30–40
mínútur. Ef menn geta það ekki, ráð-
legg ég þeim að ganga eða synda
þangað til að ná því þreki. Þeim sem
velja göngur ráðlegg ég að ganga
talsvert langt a.m.k. einu sinni í viku,
í allt að klukkutíma. Það er mikilvægt
að hver og einn skoði sínar forsendur
og miði við sjálfa sig en ekki aðra.
Með því nær fólk mestum framför-
um,“ segir Gunnar Páll að lokum.
Á HLAUPUM | Æfingaáætlanir auka árangur
Að vera sinn
eigin þjálfari
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Upphitun: Mikilvægt er að styrktaræfingar og teygjur séu hluti af hlaupþjálfun.
Gunnar Páll
Jóakimsson
TENGLAR
.....................................................
www.hlaup.is
www.marathon.is
heida@mbl.is
Nýjasta tyggjóæðið hjákrökkum á öllum aldri áNorðurlöndum eru litrík-ar tyggjórúllur í boxi frá
Hubba Bubba. Svona rúllur hafa
fengist í Ameríku en komu á markað
á Norðurlöndum í sumar og renna út
eins og sjóðheitar lummur. Innflutn-
ingsfyrirtækið Ólafur Guðnason ehf.
flytur rúllurnar inn hér á landi og
Einar Ólafsson starfsmaður þar stað-
festi að þær seldust mjög vel og væru
nú að verða uppseldar, bæði hér og á
Norðurlöndum, en það kemur ekki
eingöngu til vegna góðrar sölu heldur
líka vegna bilunar í vélum í verk-
smiðjunni í Bretlandi þar sem þær
eru framleiddar. En allt er á góðri
leið og stutt í næstu sendingu og þá
geta litlir tyggjórúlluaðdáendur hald-
ið áfram að hoppa og skoppa jórtr-
andi um sumarið.
Bleikar Barbírúllur
Rúllur þessar minna einna helst á
límbandsrúllur og eru 180 cm langar,
svo þær endast vel og lengi og hægt
er að fá sér eins langan tyggjóbút og
hverjum hentar í hvert skipti og
geyma boxið í buxna- eða úlpuvasa
eða bara heima í skúffu. Tyggjórúll-
urnar fást í þremur litum með mis-
munandi bragði, grænar, bláar og
appelsínugular. Þá getur verið gaman
að „bítta“ eða skipta á einstökum bút-
um með mismunandi bragði.
Einnig hafa Barbietyggjórúllur í
bleikum boxum verið nokkuð vinsæl-
ar hjá litlum stelpum, en í boxinu
leynist óvæntur hlutur, eitthvað fín-
erí fyrir brúðuna Barbie og einnig er
límmiði á lokinu með hreyfanlegri
mynd. Litlar stelpur hafa líka verið
spenntar fyrir brjóstsykri frá Barbie
sem er í líki varalits.
Spagettítyggjó
og tattú
Samkvæmt upplýsingum hjá Kon-
fektbúðinni í Kringlunni, þar sem
tyggjóflóran er nokkuð fjölbreytt, þá
eru krakkar mjög sólgnir í stórar og
grjótharðar tyggjókúlur sem ganga
undir réttnefninu kjálkabrjótar (Jaw-
breaker) og óneitanlega koma upp í
hugann hinir gömlu góðu „haltu
kjafti-brjóstsyk-
urshlunkar“.
Kjálkabrjót-
andi kúlurnar
eru þannig
gerðar að ut-
an um
tyggjókúl-
una er hart og
þykkt lag af
nammi sem tekur
langan tíma að bryðja sig í gegnum til
að ná í sjálft tyggjóið.
Bleikt spagettítyggjó hefur vakið
lukku og sama er að segja um tattú-
tyggjó þar sem í hverjum pakka eru
fjögur „armbandstattú“ auk tveggja
tyggjóbita.
Nóg er því að hafa fyrir þá sem
njóta þess að tyggja og smjatta á mis-
jafnlega sætu gúmmíi. Þó er aðeins
fátt eitt talið í öllum þeim aragrúa
sem í boði er og heitir á íslensku jórt-
urleður.
SÆLGÆTI
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Tyggjókúlur: Gleðja má sjálfan sig og aðra með tyggjókúlublæstri.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kjálkabrjótur: Lengja með nokkrum grjóthörðum nammi-tyggjókúlum
kostar 150 kr. í Konfektbúðinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sumar-
legt tyggi-
gúmmí
Morgunblaðið/Jim Smart
Spagettí-tyggjó: Kostar 65 kr. í
Konfektbúðinni í Kringlunni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hubba bubba-límbandsrúllutyggjó:
Kostar 180 kr. í Konfektbúðinni.
Barbí-tyggjórúlla: Með límmiða og
litlum dúkkuhárkambi, kostar 149
kr. í nammibúðinni í Hagkaupum.
Núpalind 6 - OPIÐ HÚS
Stórglæsileg 190 fm íbúð á efstu hæð í lyftu-
húsi ásamt tveimur stæðum í bílageymslu.
Íbúðin er á einni hæð og skiptist í stórar og
góðar stofur, þrjú stór svefnherbergi, glæsi-
legt baðherbergi með sturtuklefa og hornkari.
Vandaðar innréttingar og gólfefni. Frábært út-
sýni. Áhv. húsb. 9 millj. Verð 30,8 millj.
Íris og Guðmundur taka á móti
gestum í kvöld og annað kvöld
á milli klukkan 17 og 20.
564 6464
Síðumúla 24 • 108 Reykjavík
hof@hofid.is • www.hofid.is
Guðm. Björn Steinþórsson
lögg. fasteignasali
Jón Guðmundsson sölustjóri
fasteignasala FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Höfum fengið til sölu jörð á Álftanesi, Bessastaðahreppi.
Landið er um 2,5 ha að stærð, án mannvirkja og er sævigirt.
Uppdráttur og nánari upplýsingar á skrifstofu.
JÖRÐ Á ÁLFTANESI