Morgunblaðið - 07.07.2004, Qupperneq 34
DAGBÓK
34 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að stunda jóga
og hugleiðslu og til hvers konar list-
sköpunar. Þetta er hins vegar ekki rétti
dagurinn til að taka stórar ákvarðanir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Notaðu daginn til að spjalla við vini
þína. Samkenndin liggur í loftinu en þú
ættir þó að varast að lofa upp í ermina á
þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Fólk tekur óvenju vel eftir þér í dag og
þú munt sennilega eiga mikilvægar
samræður við foreldra þína. Láttu þig
bara fljóta með straumnum og frestaðu
öllum stórum ákvarðanatökum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert í skapi til að læra eitthvað nýtt.
Gerðu eitthvað óvenjulegt til að full-
nægja þörf þinni fyrir spennu og æv-
intýri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir freistast til að gefa eitthvað frá
þér í dag sem þú átt eftir að sjá eftir síð-
ar. Þú ættir því að hugsa þig tvisvar um
áður en þú tekur varanlegar ákvarðanir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Tunglið er beint á móti merkinu þínu og
því þarftu að sýna öðrum sérstaklega
mikinn sveigjanleika í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Notaðu daginn til að ganga frá smáat-
riðum og reyna að koma meira skipulagi
á líf þitt. Það er besta leiðin til að sleppa
tökunum á því sem er orðið úrelt í lífi
þínu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér líður eins og þú sért barn í annað
sinn og því hentar dagurinn sérstaklega
vel til að leika við börnin og til hvers
konar sköpunar. Farðu í lautarferð eða
bara út í garð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt sennilega eiga mikilvægar
samræður við foreldra þína eða aðra í
fjölskyldunni í dag. Það er þó hætt við
að hugur þinn sé á reiki og því er þetta
ekki góður dagur til að taka mikilvægar
ákvarðanir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú berð mikla umhyggju fyrir öðrum í
dag og þá sérstaklega systkinum þínum.
Þú hefur áhuga á að heyra um aðstæður
annarra en ættir þó ekki að láta peninga
af hendi rakna fyrr en í fyrsta lagi í
kvöld.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Peningamálin eru þér ofarlega í huga í
dag. Þetta er þó alls ekki góður dagur
til að eyða peningum eða fara út í fjár-
festingar. Það er hætt við að aðgerðir
þínar færi þig engu nær markmiðum
þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Tunglið er í merkinu þínu í dag og því
ertu líklega tilfinninganæmari en þú átt
að þér að vera. Á sama tíma ertu senni-
lega heppnari en venjulega.
Stjörnuspá
Frances Drake
Krabbi
Afmælisbörn dagsins:
Eru heiðarleg, frumleg og hugmyndarík
og þeim tekst oft að gera drauma sína að
veruleika. Nánustu sambönd þeirra
verða í brennidepli næsta árið.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Staðurogstund
idag@mbl.is
Staður og stund á mbl.is
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund á forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
FIMM manna hópur frá Eyjafirði sem
kallar sig Five for Tango (Fimm fyrir
tangó), heldur tónleika í Bláu kirkjunni
á Seyðisfirði kl. 20.30 í kvöld. Þau
leika mismunandi tangótónlist allt frá
verkum argentínska tónskáldsins Astor
Piazzolla, danstónlistar Spánverjans
Enrique Granados og nútímatónskálds-
ins Richard Galliano.
Five for Tango skipa saxófónleikarinn
Vigdís Klara Aradóttir og Guido
Baeumer, píanóleikarinn Agnieszka
Malgorzata Panasiuk, sellóleikari Pawel
Panasiuk og harmonikuleikarinn
Krzysztof Orczak.
Börn
Brúðubíllinn | Verður í dag kl. 14 við Fróð-
engi og á morgun kl. 10 við Njálsgötu og
kl. 14 við Malarás.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Hádegisbænir kl. 12.10.
Hallgrímskirkja Morgunmessa kl. 8.
Háteigskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Súpa og brauð kl. 12. Brids kl. 13-16. Mánu-
daga og miðvikudaga verður spilað „pútt“
í garðinum frá kl. 13-15. Kvöldbænir kl. 18.
Laugarneskirkja | Gönguhópurinn Sólar-
megin kl. 10.30 alla miðvikudagsmorgna.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur Sigurður Árni Þórðarson.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Altarisganga og fyrirbænir.
Vídalínskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12.
Víðistaðakirkja | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Hægt er að koma fyr-
irbænaefnum til sóknarprests eða kirkju-
varðar. Súpa og brauð á eftir.
Landakirkja | Vestmannaeyjum. Kl. 11
Helgistund á Hraunbúðum.
Þorlákskirkja | Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10-12.
Selfosskirkja | Opið hús í allt sumar fyrir
mæður og börn í safnaðarheimili Selfoss-
kirkju. Tíðasöngur og fyrirbænastund kl.
10 þriðjudag til föstudags. Fyrirbænum er
hægt að koma til prests, djákna eða
kirkjuvarðar. Kaffisopi á eftir.
Lágafellskirkja | AA-fundur kl. 20.30 í
Lágafellskirkju.
Sauðárkrókskirkja | Kyrrðarstund kl. 21.
Kletturinn | Kl. 20.30 Bænahópar í
heimahúsum. Upplýsingar í síma
565 3987.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20. Ræðumaður Leif-
ur Sigurðsson. Kaffiveitingar eftir sam-
komu.
Grenivíkurkirkja | Samverustund kl.
20.30. Þorvaldur Halldórsson syngur
trúarlög og talar um lífið og trúna.
Myndlist
Fjöruhúsið | Hellnum á Snæfellsnesi. Að-
alheiður Skarphéðinsdóttir sýnir graf-
íkmyndir, unnar í þurrnál og vatnsliti.
Myndirnar eru draumkenndar fantasíur
um hafið og tilveruna og flestar unnar á
árinu. Aðalheiður hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga heima og erlendis. Sýningin
stendur til 1. ágúst.
Edinborgarhúsið | Ísafirði. 10 ára afmæl-
issýning Handverks og hönnunar verður
opnuð kl. 20. Sýningin er haldin í tilefni
þess að verkefnið er tíu ára um þessar
mundir. Sýningin var fyrst sett upp í
Reykjavík, svo í Listasafni Árnesinga og í
Stykkishólmi. Á sýningunni er bæði hefð-
bundinn listiðnaður og nútíma hönnun úr
fjölbreyttu hráefni. Stendur til 15. júlí. Op-
in kl. 14-18 alla daga.
Kvikmyndir
Bragginn | Hólmavík. Kvikmyndahátíðin
101 Hólmavík stendur nú yfir. Hátíðin
stendur til 11. júlí.
Bókmenntir
Menningarmiðstöðin | Kaupvangur,
Vopnafirði. Skáldakvöld kl. 20. Fjallað um
þá bræður Jónas Árnason og Jón Múla
Árnason og „Fjallaskáldið“ Kristján Jóns-
son. Skáldakvöld verður einnig 15. júlí.
Skáldin sem fjallað verður um eru öll
tengd Vopnafirði.
Námskeið
Bláa kirkjan | Seyðisfirði. Bandarísku tón-
listarkonurnar Pat Randolph og Marva
Thomas kenna á gospelnámskeiði dagana
11. til 16. júlí. Boðið uppá einsöng og tví-
söng ásamt kórsöng með Gospel-
námskeiðakórnum. Haldið í samstarfi við
L.ungA., Listahátíð ungs fólks Austur-
lands.
Klink & Bank | Brautarholti. Spuni. Und-
irbúningur fyrir þá sem vilja taka þátt.
Dagskráin er opin fyrir hvers kyns spuna
kl. 19 og 21.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Sól-
vallagötu 48, lokað í júlí og ágúst.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Árskógar 4 | Bað kl. 9–12, smíðastofa kl.
13, keila og spil kl. 13.30, púttvöllur kl. 10–
16.
Ásgarður | Glæsibæ. Samfélagið í nær-
mynd kl. 11, þáttur um málefni eldri borg-
ara á RUV.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla kl. 8–13,
bað kl. 8–12.30, handavinna kl. 9–16, kl.
10–10.30 bankinn, bridge/vist kl. 13–16.30.
Dalbraut 18–20 | Hárgreiðsla kl. 9–16.45,
aðstoð við böðun kl. 9–14, leikfimi kl. 10–
10.45, ferð í Bónus kl. 14.40, púttvöll-
urinn.
Dalbraut 27 | Handavinnustofan kl. 8–16,
verslunin kl. 10–13, bankinn kl. 13.30, leik-
fimi kl. 11–11.30.
Gerðuberg | Lokað vegna sumarleyfa frá
5. júlí til 17. ágúst.
Gjábakki | Fannborg 8. Handavinna kl. 10–
17, bobb kl. 17.
Hraunbær 105 | Pútt, hárgreiðsla, fóta-
aðgerð og banki kl. 10–11, brids kl. 13.
Hraunsel | Flatahrauni 3. Pílukast kl.
13.30, pútt á Ásvöllum kl. 16–18.
Hvassaleiti 58–60 | Jóga kl. 9–10 og kl.
10–11, samverustund kl. 10.30–11.30. Fóta-
aðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Opin vinnustofa kl. 9–
16.30, púttvöllur, hárgreiðsla og böðun kl.
9–12, félagsvist kl. 13.30.
Kópavogur | Skrifstofan er opin í dag frá
kl. 10–11.30, viðtalstími í Gjábakka kl 15–16.
Langahlíð 3 | Hjúkrunarfræðingur á
staðnum kl. 9.30, hársnyrting kl. 10, versl-
unin kl. 10–12, föndur og handavinna kl. 13.
Norðurbrún 1 | Fótaaðgerð kl. 9–16, bank-
inn kl. 13–13.30, félagsvist kl. 14 kaffi og
verðlaun. Vinnustofur lokaðar vegna sum-
arleyfa í júlí.
Vesturgata 7 | Sund í Hrafnistulaug kl.
10–12, fótaaðgerð og hárgreiðsla kl. 9–16,
verslunarferð í Bónus kl. 12.15–14.30,
myndbandssýning, spurt og spjallað kl.
13–14.
Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár-
greiðsla kl. 9–16,
handmennt kl. 9.30–16, morgunstund kl.
10–11, fótaaðgerðir kl. 10–16, verslunarferð
í Bónus kl. 12.30.
Sléttuvegur 11 | Opið í júlí og ágúst frá kl.
10–14.
Tónlist
Þjóðlagahátíð | Siglufjarðarkirkja. Tónlist
við Eddukvæði kl. 20. Flytjendur eru Seq-
uentia frá París. Hópinn skipa Benjamin
Bagby, söngur og lýra, Lena Susanne Nor-
in og Agnethe Christensen, söngur, Eliza-
beth Gaver, fiðla og Norbert Roden-
kirchen, flauta. Bræðsluverksmiðjan
Grána kl. 21.30: Skosk þjóðlög. Flytjendur
eru Robyn Kirk sópran og Nicky Spence
tenór og Davíð Þór Jónsson harmónika.
Laugardalshöll | Tónleikar með Placebo.
Maus hitar upp. Húsið opnar kl. 19. Maus
byrjar kl. 20 og Placebo kl. 21. Miðasala í
Og Vodafone.
Útivist
Öskjuhlíð | Stuðningshópur um krabba-
mein í blöðruhálskirtli efnir til göngu-
ferðar ef veður leyfir. Annars verður hefð-
bundinn rabbfundur. Gengið verður frá
húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð
8 í Reykjavík, kl. 17. Séð verður fyrir akstri
fyrir þá sem treysta sér ekki til að ganga.
Hafnargönguhópurinn | Kvöldganga kl.
20. Lagt af stað frá horni Hafnarhússins
norðanmegin.
Tangókvöld á Seyðisfirði 80ÁRA afmæli.Fimmtudag-
inn 8. júlí verður frú
Rannveig Böðv-
arsson, Vesturgötu
32, Akranesi, átt-
ræð. Af því tilefni
býður hún vinum og
vandamönnum að
koma og gleðjast með sér á Hótel Glym á
Hvalfjarðarströnd, á afmælisdaginn kl. 17.
Gjafir eru stranglega bannaðar en það
gleddi hana mjög að sjá sem flesta.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Bd3 g6 6. c4 Bg7 7. Re2 Rc6 8. Rbc3
Rge7 9. O–O O–O 10. Bg5 h6 11. Be3
d5 12. cxd5 exd5 13. Bc5 He8 14. Db3
d4 15. Rd5 Rxd5 16. exd5 Re5 17. Bxd4
b5 18. Had1 Bb7 19. Be4 Dd6 20. Rg3
Had8 21. Bc3 h5 22. Hfe1 h4 23. Rf1
Rc4 24. Bxg7 Kxg7 25. Rd2 Rxd2 26.
Dc3+ Df6 27. Dxd2 Hxe4 28. Hxe4
Hxd5 29. Hd4 Hg5 30. Hf4 Hxg2+ 31.
Kf1 Dg5 32. Dd4+ f6
Úrslitaviðureign heimsmeistara-
móts FIDE fer fram þessa dagana í
Trípóli í Líbýu. Staðan kom upp fyrr á
mótinu og hafði Úsbekinn Rustam
Kasimdzhanov (2.652) hvítt gegn Zolt-
an Almasi (2.631). 33. Dxf6+! Dxf6 34.
Hd7+ Kh6 35. Hxf6 og svartur gafst
upp enda fátt sem gleður augað í stöðu
hans.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 fress, 4 fuglar, 7
hvelfda, 8 niðurgang-
urinn, 9 veiðarfæri, 11
peninga, 13 kraftur, 14
lærir, 15 Ísland, 17 fljót,
20 kona, 22 á kú, 23
knappt, 24 leturtákn, 25
óbeit.
Lóðrétt | 1 haltra, 2 glenn-
ir upp munninn, 3 svelg-
urinn, 4 raup, 5 kústur, 6
vitlausa, 10 gufa, 12 elska,
13 slöngu, 15 hugmynda-
ríkur, 16 gerjunin, 18 geð-
vonska, 19 virðið, 20 skjót-
ur, 21 þyngdareining.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 nærklæðin, 8 grind, 9 tælir, 10 dúr, 11 saggi, 13
ilmur, 15 hjörs, 18 aðrar, 21 kið, 22 sudda, 23 angan, 24
þrákálfar.
Lóðrétt: 2 æfing, 3 koddi, 4 æstri, 5 illum, 6 uggs, 7 þrár, 12
ger, 14 lið, 15 hása, 16 öldur, 17 skark, 18 aðall, 19 rugla, 20
rann.
Hlutavelta | Þessar stelpur héldu hluta-
veltu við verslunina Strax við Byggðaveg á
Akureyri. Þær söfnuðu 2.381 krónu sem
þær gáfu Rauða krossinum. Stelpurnar
heita, frá vinstri, Katla Þöll Þórleifsdóttir,
Þórey Edda Þórleifsdóttir, Nína Björk Frið-
riksdóttir og Agnes Ögmundsdóttir.
Lausn á þraut 8.
Norður
♠D1054
♥ÁK6
♦1062
♣ÁD7
Vestur Austur
♠K82 ♠ÁG9763
♥84 ♥DG1097
♦843 ♦–
♣96542 ♣83
Suður
♠–
♥532
♦ÁKDG975
♣KG10
Lausn: Tólf öruggir slagir og sá
þrettándi ætti að geta komið með hálita-
þvingun á austur. Miðað við útspilið
virðist austur eiga sexlit í spaða og
sennilega fimm hjörtu (vestur hefði
komið út í hjarta með einspil). Mark-
miðið er að byggja upp endastöðu þar
sem blindur á D10 í spaða og ÁK blankt
í hjarta, en suður eitt tromp og þrjá
hunda í hjarta. Austur verður að hanga
á þremur hjörtum og neyðist því til að
fara niður á ásinn blankan í spaða. Þá er
hægt að fríspila spaðadrottninguna með
því fara inn í borð á hjarta og stinga
spaða. Það er að segja – EF búið er að
trompa spaða í millitíðinni! Það er nauð-
synlegt til að fyrirbyggja að vestur geti
valdað spaðann.
Stig: Þú tekur 10 stig fyrir að trompa
annan spaða og spila upp á tromp-
þvingun á austur. Ef þér yfirsást milli-
leikurinn (að stinga spaða), en sást samt
trompþvingunina, þá skaltu taka 5 stig.
Það er ekki nema sanngjarnt, því spilið
vinnst þá ef austur á ÁK í spaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Bómullar-, satín-
og silkidamask-sett
í úrvali