Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.2003, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 2003 11
Hvað er kísilgúr og til hvers er
hann framleiddur?
SVAR:
Kísiliðjan við Mývatn vinnur hráefni sitt úr
setlögum á botni Mývatns en ekki er vitað til
þess að slík vinnsla úr votnámu fari fram ann-
ars staðar í heiminum. Mývatn er talið hafa
myndast fyrir um 2300 árum og hefur það
mikla sérstöðu meðal stöðuvatna á norðlægum
slóðum. Vatnið er allt mjög grunnt og nær sól-
arljós alls staðar til botns. Mývatnssvæðið er
eitt hið sólríkasta á landinu, ljóstillífun er því
öflug og lífauðgi með fádæmum. Vatnið er auð-
ugt að næringarefnum og það sem einkennir
lífið í vatninu öðru fremur er mikill vöxtur og
viðgangur vatnaþörunga.
Kísilgúr er myndaður af skeljum dauðra
kísilþörunga sem hafa hlaðist upp á rúmum
2000 árum og mynda nú nokkurra metra
þykkt setlag á botni Mývatns. Skeljarnar eru
gerðar úr myndlausu kísiltvíoxíði, SiO2. Í nátt-
úrunni finnst hreint kristallað SiO2 sem kvars,
kristobalít og trídymit. Að auki eru margar
gerðir þekktar af myndlausu SiO2 sem falla
undir enska samheitið „silica“ en það hefur
verið þýtt sem kísl (kvk.) á íslensku. Þetta efni
er líka stundum nefnt kísilsýra en það er ekki
réttnefni nema það sé uppleyst í vatni. Í dag-
legu máli er oft einnig talað um kísil (sam-
anber kísilútfellingar) en það er óheppileg
málnotkun því að kísill er að réttu íslenska
heitið fyrir frumefnið Si (Silicium). Kísiltvíoxíð
er eitt algengasta efni jarðar.
Hluti þess jarðvatns sem rennur í Mývatn
er jarðhitavatn ættað úr jarðhitakerfi Kröflu-
eldstöðvarinnar. Jarðhitavatn er mjög auðugt
að uppleystum efnum en kísilsýra er þar í yf-
irgnæfandi magni. Því má segja að Krafla ljái
kísilþörungum í Mývatni byggingarefni í skelj-
ar sínar. Nýmyndun kísilgúrs í Mývatni er
mjög mikil og er talið að hún nemi 11 til 15
þúsund tonnum af skeljum á ári hverju. Til
samanburðar má benda á að framleiðsla Kís-
iliðjunnar er 25–30 þúsund tonn á ári af kís-
ilgúr, en til þeirrar framleiðslu þarf rúm 40
þúsund tonn af gúr.
Kísilskeljarnar eru örsmáar, frá nokkrum
þúsundustu úr millimetra upp í einn milli-
metra að stærð. Skeljarnar eru holar að innan
og veggir þeirra alsettir götum. Skeljarnar
eru því gegndræpar og hafa mjög stórt innra
yfirborð. Kísilgúr hentar því vel til síunar á
vökva og sem fylliefni í ýmiss konar iðnaði.
Efnið í skeljunum er mjög hart, en hverahrúð-
ur, ópalar og kvarts er myndað úr sama efni
og skeljarnar. Skeljaduftið er því líka gott
slípiefni.
Mestur hluti þess bjórs sem drukkinn er í
Evrópu er síaður gegnum kísilgúr áður en
honum er tappað á flöskur. Gúrinn er einnig
notaður til að sía sykurvökva, matarolíu, flug-
vélabensín og blóð í blóðbönkum svo eitthvað
sé nefnt. Sem fylliefni er hann notaður í máln-
ingu, pappír og í plastiðnaði en einnig til lyfja-
gerðar og í snyrtiefni. Þannig eru lyfjatöflur
til dæmis gerðar úr samanpressuðum kísilgúr
sem lyfinu hefur verið blandað í. Sem slípiefni
er gúrinn meðal annars notaður í tannkrem og
í bílabón.
Dælt er úr Mývatni frá maí fram í október
meðan vatnið er íslaust. Dæluprammi sýgur
botnleðjuna úr Mývatni og blandar hana vatni.
Efninu er dælt í land um flotlögn frá pramm-
anum yfir í dælustöð í Helgavogi. Þar er leðjan
grófhreinsuð með sigtun áður en henni er dælt
um þriggja km vegalengd til verksmiðjunnar í
Bjarnarflagi. Í verksmiðjunni er gosaska og
foksandur skilinn frá leðjunni en gúrnum dælt
áfram í hráefnisþró 1 km norðan við verk-
smiðjuna.
Í þurrvinnsludeild eru lífrænar leifar
brenndar úr hráefninu og skeljarnar glæddar
við 1100° C. Glæðingin eykur kornastærð
duftsins þegar hálfbráðnar skeljar límast sam-
an. Að glæðingu lokinni er gúrinn malaður og
flokkaður í framleiðslutegundir eftir korna-
stærð. Pökkun á gúrnum er sjálfvirk og snert-
ir mannshöndin hvergi á gúrnum í fram-
leiðsluferlinu. Framleiðslan er þannig
fullkomlega hrein eftir glæðingu og pökkun og
er hún notuð í matvælaiðnaði og við lyfjagerð
án frekari meðhöndlunar.
Kristján Björn Garðarsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar hf.
Ef boruð yrði hola gegnum jörðina
gæti maður þá svifið í lausu lofti
vegna aðdráttaraflsins?
SVAR:
Þessu máli eru oft gerð skil í kennslubókum
í eðlisfræði, þar sem það varpar ljósi á mikil-
væg atriði í aflfræði.
Hugsum okkur sem sagt að við höfum borað
holu beint niður í jörðina, gegnum miðju henn-
ar og út hinum megin. Hugsum okkur líka að
jörðin sé nákvæmlega kúlulaga og að massinn
í henni dreifist jafnt um hana. (Hvorugt er ná-
kvæmlega rétt en alveg sæmileg nálgun.)
Setjum nú hlut í holuna, annaðhvort mann
eða annað sem getur hreyfst greiðlega upp og
niður í holunni, og við reiknum ekki með loft-
mótstöðu.
Ef hluturinn er staddur inni í jörðinni í til-
tekinni fjarlægð frá jarðarmiðju þá verkar á
hann þyngdarkraftur frá öllum þeim massa í
jörðinni sem er nær miðjunni en hluturinn.
Stærð þessa massa er í hlutfalli við þriðja veldi
fjarlægðarinnar frá miðju og þyngdarkraft-
urinn er í réttu hlutfalli við massann en í öfugu
hlutfalli við fjarlægðina frá miðju í öðru veldi.
Þetta leiðir til þess að krafturinn verður í hlut-
falli við fjarlægðina sjálfa. Sama regla gildir til
dæmis um hlut sem festur er í gorm sem er
síðan teygður um tiltekna lengd eða honum
þjappað saman.
Þegar öllu þessu er til skila haldið sést að
hreyfing hlutar sem sleppt er í svona holu
verður það sem kallað er hrein sveifla (e.
harmonic oscillation), rétt eins og hreyfing
hlutarins í gorminum eða raunar hreyfing
pendúls sem fer ekki alltof langt frá lóðréttri
stöðu. Ef við sleppum hlutnum í kyrrstöðu í
tiltekinni fjarlægð frá miðju fellur hann með
vaxandi hraða inn að jarðarmiðju og fer síðan
út frá henni hinum megin upp í sömu fjarlægð
frá henni og hann byrjaði. Síðan fellur hann til
baka og út í upphaflegu stöðuna og þannig koll
af kolli.
Þegar við viljum lýsa því hvernig slík hreyf-
ing er háð tímanum fást svokölluð hornaföll
eða harmónísk föll, það er að segja sínus (sin)
eða kósínus (cos).
Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í vísindasögu og
eðlisfræði við HÍ.
HVAÐ ER KÍSILGÚR OG
TIL HVERS ER HANN
FRAMLEIDDUR?
Á meðal spurninga sem hefur verið svarað á Vís-
indavefnum að undanförnu má nefna: Hvernig
læra börn tungumál, hvernig verkar Doppler-ratsjá og hvað er UML?
VÍSINDI
Kísiliðjan við Mývatn.
herja? spurði ég, það er dramatískari saga.
Nei, það yrðu voðaleg örlög á glæsilegum ferli
mínum þótt glæsileikinn felist ekki í öðru en að
sitja í tólf ár. En viltu þá ekki bara segja af þér
og fara að skrifa, það er soldið sætt, allir
íslendingar skilja mann sem fer að skrifa, sagði
ég. Veistu ég er enginn rithöfundur, ég fékk
mann til að skrifa þessar bækur fyrir mig,
Grímhallur eða hvað hann heitir, ég vissi sem
var að þetta væri soldið sjarmerandi að hafa
forsætisráðherra sem skrifar en sjálfur er ég
leikari. Einsog þú veist lék ég í menntó. Ég er
að leika forsætisráðherra, hvíslaði hann einsog
hann hefði ljóstrað upp einhverju ægilegu
leyndarmáli. Og ég minntist minna eigin orða
að íslendingar hefðu allir breyst úr skáldum í
leikara þegar lagerinn af kálfsskinnum var á
þrotum. Og grettu sig og geifluðu í baðstofunni
í staðinn fyrir að skrifa með blóði eigi skal þetta
og eigi skal hitt.
Gerðu bara það sem þú telur best, sagði ég.
Hvaða ráðherra ætti Ingibjörg Sólrún að vera?
sagði hann. Geturðu ekki gert hana að forsætis-
ráðherra, það yrði sögulegt og stórmannlegt,
sagði ég. En ég get ekki leikið neitt annað en
forsætisráðherra, þá sæju allir hvað ég væri lé-
legur. Pældu í því ef ég yrði utanríkisráðherra
og færi að skamma Sírak og Búss. Ég get
kannski skammað menn hér heima en ekki í út-
löndum, hvað heldurðu að NjúJorkTæms
myndi segja. Það er víst eitthvað blað í útlönd-
um. En geturðu ekki gert Ingibjörgu að
menntamálaráðherra? spurði ég. Það er merg-
urinn málsins, ég get ekki gert hana að
menntamálaráðherra því hún hefur svo mikinn
áhuga á því, ekki umhverfismálaráðherra því
hún gæti fengið áhuga á því. Ég vil bara ekki að
hún fái áhuga á neinu, sagði Davíð, ég vil að
henni leiðist. Ingibjörgu leiðist ekki á meðan
hún er í stjórnmálum, sagði ég en bætti svo við:
Er annars hægt að kalla þetta stjórnmál, þessa
landsmálapólitík? Nei, þarna komstu með það,
sagði Davíð himinlifandi og sagðist verða að
drífa sig, hann ætti boðaðan fund með Ingi-
björgu úti á Seltjarnarnesi í gula húsinu þar-
sem gamla konan bjó sem seldi eggin. Þú gerir
það sem þú telur best, sagði ég hughreystandi.
Ég veit aldrei hvað er best, muldraði Davíð og
labbaði niður tröppurnar.
Ég dýfði tuskunni í fötuna, breiddi úr henni á
gólfið og bjó mig undir að munda skrúbbuna
þegar enn var bánkað. Þegar ég opnaði dyrnar
stóðu þar nokkrir álfar fölir á vangann með haf-
meyju í fanginu sem virtist vera að drukkna og
fyrir aftan þau stóð Ingibjörg kona Jóns Sig-
urðssonar og riðaði til og frá. Raddir þeirra
hljómuðu slitnar og veikburða þegar þau
sögðu: Við erum þjóðin, við erum hin ósýnilega
mynd þjóðarinnar sem hún bjó til af sjálfri sér
svo hún kæmist inní söguna. En nú er verið að
úthýsa okkur eina ferðina enn. Það meirað-
segja skilur enginn söguna okkar. Það skilur
heldur enginn Njálu, sagði ég. Það er hættu-
legt að skilja söguna, yfirvöld hafa aldrei þolað
það. Viljiði ekki koma inn og fá ykkur djús?
sagði ég. En þau sögðust ekki mega vera að því,
það þyrfti að lífga við hafmeyjuna og álfarnir
yrðu að fá roða í kinnarnar og það þyrfti að
stilla Ingibjörgu af svo hægt væri að reisa af
henni styttu á Arnarhóli. Afhverju Arnarhóli?
sagði ég. Það vantar styttu í túnfótinn, túnfót-
urinn er að hverfa, þusuðu álfarnir og bættu
við: Ingibjörg og Davíð geta ekki hugsað þetta
út frá sér. Þau verða að hugsa þetta út frá Ís-
landi. Ég gat fallist á að það væri rétt, sem rit-
höfundur er ég að þjóna sögunni og verð oft að
strika út margar góðar síður svo sagan komist
til skila. Þau verða að hlusta á okkur, við erum
hluti af Íslandi, sögðu álfarnir, hafmeyjan draf-
aði og Ingibjörg stappaði niður fætinum þótt
hún riðaði til og frá. En þið eruð ekki í sögunni,
það hlustar enginn á ykkur, sagði ég leið í
bragði, það er bara það sem er í sögunni sem
fær að vera með. Þú verður þá að skrifa sög-
una, sögðu álfarnir, þú verður að koma okkur
inní söguna. En það hlustar enginn á mig, ég er
bara skáld, sagði ég, sagnfræðingar verða að
setja ykkur inní söguna. En Bjartur í Sum-
arhúsum, hann var settur í sögu, sögðu álf-
arnir. Hann hefur verið til lengi og fólk kann-
aðist við hann. Fólk verður að kannast við
álfinn í sjálfum sér. Afhverju vill enginn kann-
ast við álfinn í sjálfum sér? Hafmeyjuna í sjálf-
um sér? Ingibjörguna í sjálfum sér? Eða kon-
una í sjálfum sér? Konuna sem kemur fram og
bullar þangað til hún lærir að tala eða kannski
kann hún alveg að tala, það þarf bara góða
heyrn til að heyra að hún er að tala á móti öllu
bullinu sem hefur oltið hér uppúr mönnum
gegnum aldirnar og er einsog hvert annað eyði-
leggjandi hraun sem hefur runnið yfir tungu-
málið, tungumál sem hefur ekki mátt tala á og
enginn hefur viljað hlusta á.
Og svo fórum við öll í gula húsið sem gamla
konan bjó í og seldi eggin. Þar voru Ingibjörg
og Davíð að rífast og hún að ásaka hann fyrir að
um leið og einhver ólga hefði verið komin í
kosningabaráttuna hefðu þeir lagt allt í eyði
með stöðugleikatuggunni. Kallarðu það ólgu?
sagði Davíð, þetta var bara bólga. Ingibjörg
sagði að hér ríkti í raun höfðingjaveldi einsog á
13. öld. Það sýnir bara stöðugleikann, mót-
mælti Davíð. Þessi stöðugleiki truflar alla jarð-
skjálftamæla, sagði Ingibjörg, við getum ekki
vitað af því þegar hér koma náttúruhamfarir.
Viltu kannski hafa náttúruhamfarir? sagði
Davíð. Ég vil allavega hafa náttúru, hrökk út úr
Ingibjörgu. Það er mikið að þið vitið hvað þið
viljið, gallinn við ykkur er að þið vitið ekkert
hvað þið viljið, kjósendur vissu ekki hvað þeir
voru að kjósa. Það er ekki skrítið, sagði Ingi-
björg, hvernig áttu þeir að vita um höfðingja-
veldið og það væri nóg í bili að kjósa um að
leggja það niður? Höfðingjahvað, ertu að segja
að Steingrímur sé kannski höfðingi, eða Guðjón
Arnar eða Halldór, ertu að segja að Halldór sé
höfðingi sem svoleiðis vældi út úr mér forsætis-
ráðherrann með brosinu framaní sér. Það urðu
fleiri en ég hræddir við þetta bros, það var
virkilega skerí. Og þú ætlar kannski að segja að
Össur sé höfðingi, hann sem gat ekki látið þér
eftir þingsætið sitt. Veistu útafhverju, afþvíað
hann er höfðingi, ha ha ha. (Við sjálfan sig: Af-
hverju sagði ég þennan ekki í þingflokknum?)
Ertu svo að segja að við séum höfðingjar! Já,
þið eruð allir höfðingjar og komið í veg fyrir að
hægt sé að breyta sögunni, sagði Ingibjörg. Af-
hverju þarf að breyta sögunni? sagði Davíð
steinhissa. Til að fólk fái ekki leið á henni, sagði
Ingibjörg, svo það nenni að búa hérna og vera
hérna og vera partur af sögunni. Fólk er svo
hamingjusamt hérna, sagði Davíð. Já, sam-
kvæmt skoðanakönnunum, sagði Ingibjörg.
Ertu að segja að það sé ekkert að marka skoð-
anakannanir? Kannski er ekkert að marka
hamingjuna, sagði Ingibjörg. Er ég skáldið
hérna eða þú? hvæsti Davíð, braut svo öll eggin
í húsinu og Ingibjörg var að velta því fyrir sér
hvort hún ætti að gera eggjaköku en ákvað svo
að bíða eftir því að hænurnar myndu verpa aft-
ur. Davíð drafaði eitthvað um að láta sig strax
vita ef Búss hringdi og hann nennti helst ekki
að hlusta á nöldrið í Samherja og hann væri
allsekki við ef Halldór hringdi og þá ætti að
segja: Hvaða Halldór? Ingibjörg sagðist ekki
vera nein símadama og þá spurði hann hver
væri fyndinn hér, hún eða hann. En þá gripu
þau öll fram í og byrjuðu að tala, konurnar sem
vantaði kvóta, konurnar sem vantaði bók-
menntahátíð, konurnar sem vantaði fótbolta,
konurnar sem vantaði hálendi en ekki stór-
karlavirkjanir, konurnar sem vantaði hærri
laun fyrir að skúra, álfarnir sem vantaði roða í
kinnarnar og hólana sína í landinu, hafmeyjan
sem vantaði sporðinn sinn og djúpa dali í haf-
inu, selirnir með mannsaugun, Ingibjörg sem
vildi jafnrétti á við mann sinn, það hefði bara
aldrei komið fram í sögunni. Hafmeyjarnar
kvörtuðu undan því að sætu strákarnir væru
horfnir af sjónum og fésið á Samherja blasti við
í hverjum brúarglugga og kóralrifin þarsem
þær hefðu falið demantana sína væru í maski út
af togveiðum, álfarnir voru miður sín vegna
þess að ekki var hægt lengur að halda veislu í
hverjum hól því fólk héldi að það ætti að
skemmta sér í verslunarhöllum, Ingibjörg hans
Jóns uppástóð að sífílisinn væri kannski útaf
því að hún hefði átt sér elskhuga en engum
dytti í hug að hún hefði rennt hýru augu til
neins nema Jóns og þessvegna væri hún með
þessa skeifu. Og svo kom meiraðsegja skugg-
inn af Samherja og kvartaði undan því að ef
hann væri ungur maður í dag ætti hann engan
sjens útaf þessu kvótakerfi og gæti ekki einu-
sinni fengið sér trillu, skugginn af fráfarandi
ríkisstjórn liðaðist loks innum dyrnar, pataði
útí loftið og gat ekkert sagt því landið var búið
að missa mál sitt en einsog allir vita er það
landið sem gefur okkur málið. Það sannast best
á bergmálinu. Og þá byrjuðu álfarnir að pískra
um það að raddir Bjarkar og Jónsa í Sigurrós
væru búnar til úr Íslandi og þeir hefðu ætlað að
bjóða þeim og Sinfóníuhljómsveitinni að halda
tónleika í Dimmugljúfrum en það væri ekki
hægt útaf sprengingum sem ekkert lát væri á
fyrir utan það að bergmálið af þeim væri ær-
andi og ferðaðist dag og nótt eftir gljúfrunum.
Og selirnir skriðu á land og köstuðu hamnum
og útskýrðu hvernig þeir hefðu ekki getað bor-
ið þjáningar aldanna og þess vegna horfið og
aðeins tekið augun með sér. Og þannig hélt
húsið áfram að fyllast af ósýnilegri sögu.
Smám saman rankaði Davíð við sér og sagð-
ist í fyrsta skipti hafa fengið áhuga á því að
skrifa, þetta væri svo undarleg saga að hann
hefði aldrei heyrt annað eins og Ingibjörg
mætti vel vera forsætisráðherra fyrir sér en þá
sagðist Ingibjörg ekki taka við neinu frá honum
en svo skipti hún um skoðun. Um leið fékk ég
hugboð um að brennumenn nálguðust því eins-
og Nóbelsskáldið sagði: Hver saga endar á því
að Njáll er brenndur. Við vorum kannski ekki
Njáll en slóðin að baki honum eða slóðin undan
honum og þegar ég kíkti útum gluggann sá ég
þá koma þeysandi. Ég greip til þess ráðs að
steypa fossi yfir húsið minnug sögunnar um
fjársjóðinn á bak við fossinn. En það var sama
þótt ég steypti öllum fossum landsins yfir hús-
ið, eldurinn æstist, logarnir léku um húsið en á
því augnabliki þegar mér var farið að súrna í
augum var skvett úr skúringafötunni. – Og lýk
ég hér Skúringasögu.
Höfundur er rithöfundur.