Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.2003, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 2003 13
Þ
JÓÐLAGAHÁTÍÐ verður haldin
á Siglufirði í fjórða sinn dagana
2.–6. júlí nk. Að þessu sinni taka
tónlistarmenn frá átta löndum
þátt í hátíðinni.
Líkt og undanfarin ár eru
tvennir tónleikar á hverju kvöldi
en að deginum bjóðast tónlistar-
og handverksnámskeið fyrir börn og fullorðna.
Sérstöku ljósi verður varpað á vikivaka eða
hina fornu söngdansa sem Íslendingar stund-
uðu fyrr á öldum og hvernig tónskáld hafa gert
sér mat úr þeim.
Alþjóðleg tónleikadagskrá
Miðvikudaginn 2. júlí hefst hátíðin á því að
þjóðlagasveitin Draupner frá Svíþjóð og Anna
Pálína Árnadóttir flytja forna íslenska viki-
vaka. Sama kvöld leika gítarleikararnir Eric
Lammers frá Hollandi og Þórólfur Stefánsson
fjölbreytta gítartónlist af þjóðlegum toga.
Fimmtudaginn 3. júlí syngur Magnea Tómas-
dóttir sópransöngkona við undirleik Guð-
mundar Sigurðssonar organleikari trúarleg ís-
lensk þjóðlög í útsetningu Smára Ólasonar.
Síðar sama kvöld flytur danska dúóið Svöbsk
fjölbreytta þjóðlagatónlist frá Danmörku, ball-
öður og drykkjusöngva. Það er skipað Maren
Hallberg Larsen harmónikkuleikara og Jørg-
en Dickmeiss á fiðlu.
Föstudaginn 4. júlí heldur fjölmenn harð-
angursfiðluhljómsveit frá Bærum í Noregi
tónleika á hátíðinni. Hópur dansara sýnir
norska þjóðdansa við undirleik hljómsveitar-
innar. Að því búnu er röðin komin að söng-
dönsum Jóns Múla Árnasonar við texta bróður
hans, Jónasar. Egill Ólafsson syngur en með
honum er djasstríóið Flís, skipað Davíð Þór
Jónssyni píanó, Valdimar Sigurjónssyni
kontrabassa og Helga Svavari Helgasyni slag-
verksleikara.
Laugardagurinn 5. júlí hefst með námskeiði
í vikivaka og norrænum þjóðdönsum við undir-
leik hljóðfæraleikara á staðnum. Síðdegis eru
tvennir tónleikar. Laust eftir hádegi flytja Sig-
urður Flosason saxófónleikari og Pétur Grét-
arsson slagverksleikari dagskrána Raddir
þjóðar, þar sem fornum kvæðamönnum af seg-
ulböndum er fléttað saman við framsækna tón-
list 21. aldar. Síðar sama dag flytja Þórarinn
Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir lög
við ljóð Páls Ólafssonar. Dagskráin nefnist
Söngur riddarans. Ljóðin eru flest ástarkvæði
en lögin eru ýmist eftir seinna tíma höfunda
eða þjóðlög. Að kvöldi laugardagsins verður
haldin uppskeruhátíð þar sem tónlistarmenn
koma fram og nemendur af námskeiðum sýna
afrakstur vinnu sinnar.
Hátíðinni lýkur með sérstökum hátíðartón-
leikum í Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 6. júlí
kl. 14. Frumflutt verða hljómsveitarverk eftir
tvö kornung tónskáld: Stund milli stríða eftir
Önnu S. Þorvaldsdóttur og Íslensk þjóðlög í
útsetningu Gonçalo Lourenço frá Portúgal.
Renata Ivan frá Ungverjalandi leikur píanó-
konsert Jórunnar Viðar, Sláttu, Hlöðver Sig-
urðsson syngur íslensk sönglög við undirleik
hljómsveitarinnar og loks syngja sameinaðir
siglfirskir kórar fjögur lög eftir Atla Heimi
Sveinsson fyrir kór og hljómsveit. Stjórnandi
er Gunnsteinn Ólafsson.
Chris Speed og búlgörsk tónlist
Á þjóðlagahátíðinni verða námskeið fyrir
börn og fullorðna og fara þau ýmist fram fyrir
eða eftir hádegi. Sumarið 2002 var í fyrsta sinn
boðið upp á sérstakt námskeið fyrir tónlist-
arnema á framhalds- og háskólastigi.
Tilraunin gafst mjög vel og því er nú boðið
upp á slíkt námskeið öðru sinni. Nú er röðin
komin að búlgörskum þjóðlögum. Kennari er
hinn kunni og bráðefnilegi saxófónleikari frá
Bandaríkjunum, Chris Speed. Hann einbeitti
sér í fyrstu að djasstónlist og spuna en þegar
hann komst í
kynni við tónlist
frá Balkanskaga,
einkum Búlgaríu,
hafði það afger-
andi áhrif á við-
horf hans til tón-
listar. Á nám-
skeiðinu mun
Chris Speed
skýra fjölbreytta
hrynjandi búlg-
arskrar tónlistar
og gera nemend-
um á bæði klass-
ísk og rafmögnuð
hljóðfæri kleift
að leika hana
saman í hljómsveit.
Flest önnur námskeið á hátíðinni hafa þegar
unnið sér fastan sess. Steindór Andersen kveð-
ur rímnalög með nemendum sínum, þjóð-
lagadúóið Svöbsk býður upp á danska þjóð-
dansa og þjóðlög og Kristín Valsdóttir
tónmenntakennari kennir hreyfileiki og spuna.
Námskeið hennar hentar einkar vel kennurum
í grunnskólum. Af handverksnámskeiðum má
nefna silfursmíði, refilsaum og ullarþæfingu.
Loks geta þeir sem vilja gengið um nágrenni
Siglufjarðar í fylgd Valgarðs Egilssonar á sér-
stöku útivistarnámskeiði.
Þjóðlagahátíðin leggur áherslu á að gera vel
við börn gesta á hátíðinni. Að þessu sinni bjóð-
ast þeim ókeypis námskeið í gömlum og nýjum
söngdönsum með Aðalsteini Ásberg Sigurðs-
syni og Önnu Pálínu Árnadóttur, auk leikj-
anámskeiðs og leiklistarnámskeiðs í umsjá
heimamanna. Námskeiðin eru einnig opin öðr-
um börnum gegn vægu gjaldi. Öllum börnum
er heimill aðgangur að tónleikum hátíðarinnar.
Nánari upplýsingar um Þjóðlagahátíðina á
Siglufirði er að finna á heimasíðu hennar á
siglo.is/festival.
ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐIN Á SIGLUFIRÐI 2.–6. JÚLÍ 2003
Morgunblaðið/Jim Smart
Anna Pálína Árnadóttir söngkona og þjóðlagatríóið Draupner.
VIKIVAKI Á
SIGLUFIRÐI
Renáta Iván Magnea Tómasdóttir Egill Ólafsson
Höfundur er listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðar
á Siglufirði.
E F T I R G U N N S T E I N Ó L A F S S O N
S
EX tónskáld verða staðartónskáld Sumartónleika
í Skálholti, en þessi elsta sumartónleikaröð
landsins hefst laugardaginn 28. júní og lýkur um
verslunarmannahelgina. Tónskáldin sex eru
Gunnar Reynir Sveinsson, Bára Grímsdóttir,
Hugi Guðmundsson, Tryggvi M. Baldvinsson,
Þuríður Jónsdóttir og Óliver Kentish. Fyrstu
tónleikarnir, 28. júní, verða helgaðir andlegum
verkum Gunnars Reynis, en um leið verður sjötugsafmæli tón-
skáldsins fagnað. Atli Heimir Sveinsson flytur erindi um tón-
smíðar Gunnars Reynis kl. 14 í Skálholtsskóla, en afmælistón-
leikarnir hefjast kl. 15 Kammerkór Suðurlands og einsöngvarar
syngja undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, en Kári Þor-
mar leikur á orgel. Eins og venjulega eru aðrir tónleikar kl. 17,
en þá leikur Contrasti-hópurinn verk frá barokktímanum og ný
íslensk verk eftir Oliver Kentish, Hafliða Hallgrímsson og Atla
Heimi Sveinsson. Þeir tónleikar verða endurteknir daginn eftir,
29. júní, en við messu kl. 17 verða aftur flutt nokkur verka Gunn-
ars Reynis frá laugardeginum.
Rúnar Óskarsson, klarinettuleikari og talsmaður Sumartón-
leikanna, segir að Óliver Kentish verði einnig áberandi í tónleika-
dagskránni í sumar. „Það verður frumflutt verk eftir hann á tón-
leikum Contrasti-hópsins fyrstu helgina, sjálfur ætla ég að
frumflytja annað verk eftir hann á bassaklarinettutónleikum um
verslunarmannahelgina, en auk þess verður sönghópurinn
Hljómeyki og hljóðfæraleikarar með heila tónleika með verkum
hans laugardaginn 12. júlí kl. 15. Fyrir þá tónleika segir Óliver
sjálfur frá verkum sínum í erindi í Skálholtsskóla kl. 14.“ Á seinni
efnisskránni þann dag leikur Helga Ingólfsdóttir sembalverk
eftir Louis Couperin, Georg Böhm og Jóhann Sebastian Bach.
Hin staðartónskáldin fjögur hafa öll verið að vinna að sérstöku
verkefni í samvinnu Skálholtstónleika og Collegium musicum í
Skálholti. „Þau Þuríður, Tryggvi, Hugi og Bára hafa verið að
vinna með Kára Bjarnasyni handritafræðingi að því að skrifa
upp gamla sálma úr íslenskum handritum. Þau hafa verið að út-
setja þessi lög og þau verða frumflutt á tónleikum aðra tónleika-
helgina, 5. og 6. júlí, og eru öll byggð á söngvum og kveðskap
Ólafs Jónssonar á Söndum.“ Flytjendur verða sönghópurinn
Gríma og hljóðfæraleikarar.
Á seinni efnisskrá þessarar helgi flytur hollenski kvartettinn
La Pellicana, sem eingöngu leikur á hljóðfæri í stíl endurreisn-
artímans, kammer- og einleiksverk frá 16. og 17. öld. „Þetta er
ungt fólk, en hefur þegar farið mjög víða og er orðið nokkuð
þessari grein tónlistarinnar.“
Jaap Schröder kemur í 13. sinn
Einn af bestu gestum Sumartónleika í Skálholti er án efa hol-
lenski fiðluleikarinn og stjórnandinn Jaap Schröder. Laugardag-
inn 26. júlí flytur hann erindi í Skálholtsskóla þar sem hann
fjallar um strengjaverk Jóseps Haydns. Á tónleikunum kl. 15
verður fluttur strengjakvartett Haydns Sjö orð Krists á kross-
inum. Hljóðfæraleikar auk Schröders verða Rut Ingólfsdóttir
Svava Bernharðsdóttir og Sigurður Halldórsson, en þau leika öll
á barrokkhljóðfæri. Upplestur úr íslensku sálmahandriti frá
tíma Haydns annast sr. Egill Hallgrímsson staðarprestur.
Á seinni tónleikum dagsins leikur Guðrún Óskarsdóttir semb-
alleikari franskar svítur eftir Jóhann Sebastian Bach.
Þessa helgi, 26.– 27. júlí, bjóða Skálholtsskóli, Sumartónleikar
í Skálholtskirkju, og Fornleifastofnun Íslands auk þess upp á
menningar- og sögutengda dagskrá. Um er að ræða dagskrá
með fyrirlestri, tónleikum, messu, gistingu og mat þar sem boðið
verður upp á kaffiborð Valgerðar biskupsfrúar og miðaldahlað-
borð að hætti Þorláks biskups með viðeigandi dagskrá undir
borðum. Einnig verður staðarskoðun og leiðsögn um uppgraft-
arsvæðið í Skálholti. Nánari upplýsingar um þessa þjónustu eru
veittar á skrifstofu Skálholtsskóla.
Bachkantötur og bassaklarinetta
Síðustu tónleikahelgina leikur Bachsveitin í Skálholti tvenna
tónleika með leiðara sínum Jaap Schröder. Á fyrri tónleikunum
verða fluttar kantötur eftir Jóhann Sebastian Bach. Einsöngv-
arar verða Rannveig Sif Sigurðardóttir sópran, Sigríður Jóns-
dóttir alt, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Benedikt Ingólfsson
bassi.
Á seinni efnisskránni eru ítölsk kammerverk frá 17. og 18. öld.
Á þriðju tónleikum helgarinnar leikur Rúnar Óskarsson ný verk
fyrir bassaklarínettu og frumflytur sem fyrr segir verk eftir
Óliver Kentish og Tryggva M. Baldvinsson. Rúnar hefur unnið
ötullega í að leiða bassaklarínettuna til vegs og virðingar sem
einleiks- og kammerhljóðfæri og er meirihluti þeirra verka, sem
flutt verða á þessum tónleikum, saminn fyrir hann og bassa-
klarínettuna.
Alla tónleikadaga verða veitingar seldar í Skálholtsskóla og
barnagæsla er í skólanum meðan á tónleikum stendur.
Nýjung þetta sumarið er að Kynnisferðir bjóða rútuferð á alla
laugardagstónleikana frá Hótel Loftleiðum kl. 13.30. Haldið er til
baka eftir seinni tónleika dagsins og komið til Reykjavíkur um kl.
19. Nánari upplýsingar um ferðirnar fást hjá afgreiðslu Kynnis-
ferða, Hótel Loftleiðum.
ELSTA SUMARTÓNLEIKARÖÐ LANDSINS, Í SKÁLHOLTI, HEFST 28. JÚNÍ
NÝ VERK BYGGÐ Á SÁLM-
UM ÓLAFS Á SÖNDUM
Morgunblaðið/Jim Smart
Gamli og nýi tíminn mætast á Sumartónleikum í Skálholti.