Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.2003, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 2003 15
Næsta v ika
Myndlist
Árbæjarsafn: Daglegt líf í
Reykjavík – sjötti áratug-
urinn. Til 1.9. Lárus Sig-
urbjörnssson, safnafaðir
Reykvíkinga. Til 20.7.
Galleri@hlemmur.is:
Ómar Smári Kristinsson.
Gestur Ómars er Karl Jó-
hann Jónsson. Til 22.6.
Gallerí Skuggi: Joris
Rademaker. Til 14.7.
Gerðuberg: Sumarsýn-
ingin „Hvað viltu vita?“:
Upplýsingar um Breiðholtið
á 18. og 19. öld. Til 5.9.
Hafnarborg: Afmælissýn-
ing Hafnarborgar – 1983–
2003. Til 4.8. Rambelta –
Samsýning. Til 30.6.
Hulduhólar, Mosfellsbæ
Steinunn Marteinsdóttir.
Til 29. júní.
i8, Klapparstíg 33: Egg-
ert Pétursson – Úr jurtarík-
inu. Til 28.6.
Kling & Bang, Lauga-
vegi 23: Myndbandsverk
Ragnars Kjartanssonar –
Nýlendan. Til 22.6.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Kristján Dav-
íðsson og Þór Vigfússon. Til
31.7.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Sum-
arsýning – Úrval verka úr
eigu safnsins. Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Ásmund-
ur Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5.2004
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Innsýn í al-
þjóðlega myndlist á Íslandi.
Til 7.9. Erró – Stríð. Til 3.1.
Humar eða frægð –
Smekkleysa í 16 ár. Til
31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Nýir
tímar í íslenskri samtíma-
ljósmyndun. Til 17.8.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sumarsýn-
ingin Andlitsmyndir og af-
straksjónir. Til 1.9.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg: Ulf Liljeblad. Til
25.6.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Claire
Xuan. Til 1.9.
Mokkakaffi: Katrín Elv-
arsdóttir. Til 5.7.
Norræna húsið: Norræn
fílasýning. Til 17.8. Ljós-
myndir Ragnars Th. Sig-
urðssonar við texta Ara
Trausta Guðmundssonar. Til
31.8.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg
3B : Matthew Barney. Til
29.6.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands, Eyja-
firði: Tíu úti- og innisýn-
ingar. Til 14.9.
Sjóminjasafn Íslands,
Hafnarf.: Magnea Þ.
Ingvarsdóttir. Jón E. Gunn-
arsson. Til 23.6.
Skálholtsskóli: Björg Þor-
steinsdóttir. Til 1.9.
Slunkaríki, Ísafirði: Haf-
steinn Michael Guðmunds-
son. Til 29.6.
Þjóðmenningarhúsið: Ís-
landsmynd í mótun –
áfangar í kortagerð. Til
8.8. Handritin. Landa-
fundir. Íslendingasögur á
erlendum málum.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www.umm.is
undir Fréttir.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Veislan, lau.
Borgarleikhúsið
Rómeó og Júlía, lau., sun.
Grease, frums. fim.
Nasa v. Austurvöll:
Sellofon, lau.
Morgunblaðið/SverrirKammerhópurinn Camerarctica og gestir á Norrænum sumartónum í Norræna húsinu.
ÞRÍSKIPT tónleikaröðKammerhópsins Camerarctica, Nor-rænir sumartónar,
hefst í Norræna húsinu kl. 22
í kvöld. Þetta er í annað sinn
sem hópurinn heldur þessa
tónleikaröð og verður að
þessu sinni boðið upp á sól-
stöðu-, barna- og kamm-
ertónleika. Flytjendur eru
Hallfríður Ólafsdóttir flautu-
leikari, Ármann Helgason
klarinettuleikari, Hildigunnur
Halldórsdóttir fiðluleikari,
Sigurlaug
Eðvalds-
dóttir fiðlu-
leikari,
Guðmundur
Kristmunds-
son víólu-
leikari og Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari ásamt
gestunum Erni Magnússyni
píanóleikara, Mörtu Guð-
rúnu Halldórsdóttur sópr-
ansöngkonu og Lovísu Ósk
Gunnarsdóttur dansara.
Á tónleikunum verða flutt verk
eftir Øistein Sommerfeldt, Pál
Ísólfsson, Árna Björnsson,
Jón Nordal, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Jørgen Bentzon,
Sigursvein D. Kristinsson,
Kristian Blak og Jón Leifs.
Einnig dansar Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir í einu verk-
anna.
Að hvaða leyti er tónleika-
röðin frábrugðin þeirri fyrri?
„Í fyrra voru tónleikar þrjá
sunnudaga í röð en núna
langaði okkur að breyta til og
hafa þá alla um sömu
helgina. Við höfum þróað
mismunandi hugmyndir og
erum nú með þrenna mjög
ólíka tónleika sem miða að
mismunandi áheyrendahópi.
Sólstöðutónleikarnir eru
spennandi og finnst mér alveg
nauðsynlegt að vaka eina
sumarnótt og ekki slæmt að
ganga út í hana með ljúfa
tóna í eyrunum. Svo höfum við
ekki áður haldið barna-
tónleika,“ segir Hallfríður
Ólafsdóttir.
Hvernig stemmningu ætlið þið
að skapa?
„Á sólstöðutónleikunum verða
frekar stutt stykki og mjög fjöl-
breytt efni en norræni tónninn
er til þess fallinn að skapa
réttu stemmninguna fyrir þessi
ótrúlegu björtu kvöld og næt-
ur. Sum verkin eru fengin beint
frá tónskáldunum og önnur
eldri sem við höfum fengið hér
í Norræna húsinu. Einnig flytj-
um við nokkrar þjóðlagasyrp-
ur, allar fyrir mismunandi
hljóðfæri eða söng, og ýmis
smástykki. T.d. norsk smáverk
fyrir einleiksflautu sem bera
titla eins og Bjartur vormorg-
unn, Litli lækurinn og
Fjallaþrá og gefa öll ákveðna
mynd af birtu og gleði.“
Það er ekki oft sem börn fá að
dansa við klassíska tónlist.
Segðu okkur frá því.
„Já, tónleikarnir byrja kl. 14 á
morgun og munum við
skiptast á að leika fyrir börnin,
leyfa þeim að syngja og
dansa við tónlistina. Marta
Guðrún og leikbrúðan Ófelía
syngja saman einn söng og
Marta syngur Súkku-
laðiaríuna eftir Hjálmar H.
Ragnarsson en þetta eru hvort
tveggja leikhúsverk. Lögin eru
öll norræn og ættu flest börn
að þekkja, eins og Siggi var
úti, Göngum, göngum og Vor-
vindar glaðir.“
Á tónleikunum kemur fram ný
hljómsveit. Hverjir skipa
hana?
„Það er ungliðahljómsveitin
Spýtnabrak skipuð þremur
börnum á grunnskólaaldri og
flytur hún frumsamda tónlist.
Þau heita Halldór Bjarki Arn-
arsson, Viktoría og Klara Sig-
urðardætur og eru foreldrar
þeirra í Camerarctica. Að
tónleikum loknum verður farið
í „fílaleiðangur“.
Lokatónleikarnir eru kl. 20
annað kvöld og verða ein-
vörðungu flutt kammerverk.
Hverju verður þar teflt fram?
„Klassísku meisturunum frá
Skandinavíu, þeim Franz Ber-
wald og Berhard Crusell, móti
nýju verki Árna Egilssonar, In
the twilight (Í ljósaskiptunum).
Verkið er samið árið 2000 en
hefur ekki fyrr heyrst hér á
landi. Þar kennir ýmissa
grasa. Í byrjun er það bæði
íhugult og leyndardómsfullt
og notar þá dimmu tóna alt-
flautunnar. En svo færist fjör í
leikinn með dansandi rytma
og djössuðum hljómarunum.
Mér finnst þetta skapa
skemmtilega andstæðu við
klassíkina.“
Vakað, dansað og sungið á sumarsólstöðum
STIKLA
Camerarctica
í Norræna
húsinu
Í LESBÓK Morgunblaðsins 14. júní sl.
greinir hinn ágæti fræðimaður, rithöf-
undur og listfræðingur, Björn Th.
Björnsson, frá þeirri „uppgötvun“ sinni,
að Jón Sigurðsson, forseti, hafi ekki
flutzt í „Jónshús“ við Østervoldgade í
Kaupmannahöfn fyrr en 1861, þ.e. níu
árum síðar en alltaf hefur verið talið.
Segir Björn undirritaðan og Lúðvík
Kristjánsson fullyrða, að Jón forseti hafi
flutzt í þetta hús haustið 1852, en það sé
rangt. Hann nefnir í þessu sambandi
hvorki aðalævisöguhöfund Jóns, Pál
Eggert Ólason, né sjálfan sig, en í bók-
inni „Á Íslendingaslóðum í Kaupmanna-
höfn“ (útg. 1961) eftir Björn er tíma-
setningunni 1852 haldið fram. Röksemd
Björns nú er sú, að húsið hafi ekki verið
tekið endanlega út af opinberra hálfu
fyrr en 1857, og ekki finnist kvittun fyrir
húsaleigu í eftirlátnum fórum Jóns eldri
en fyrir tímabilið 1861–62.
Þessu er m.a. til að svara, að í bréfa-
safni Jóns forseta (útg. 1911, bls. 200) er
birt bréf, sem hann skrifar Jens bróður
sínum, dagsett 29. september 1852, þar
sem segir: „Eg flyt nú til Østervold 486
2. Sal, þar sem Schram tóbaksmaður
býr.“ (bls. 200).
Ég hef að undanförnu verið að vinna
að útgáfu bréfa Jóns Guðmundssonar,
Þjóðólfsritstjóra, til Jóns forseta, og því
hæg heimatökin að sjá, hver áritunin er
til Jóns. T.d. þetta sama haust, 1852, er
ritað á bréfi, dags. 11. nóvember 1852:
„Herr Archiv Secretair Jón Sigurðsson i
Kjöbenhavn Østervold Nr. 486 2. Sal.“
Og 30. ágúst 1856 er skrifað: „Herr
Archivar og Althingsmand Jón Sigurðs-
son i Kjöbenhavn Østervold Nr. 486 B.,
2.“ Svo mætti lengi auka við. Hefur Guð-
jón Friðriksson, sem er að rita ævisögu
Jóns forseta, svarað fyrir sitt leyti í Mbl.
15. júní sl.
Af þessu og auðvitað ótal öðru er ekki
frekari blöðum um að fletta, að það er
staðreynd, að Jón Sigurðsson fluttist í
„Jónshús“ við Østervoldgade umrætt
ár, 1852. Engum „erroribus“ þarf að
koma á flot í því efni! Með beztu kveðju
til Björns Th. og þökk fyrir marga góða
söguna.
ATHUGASEMD
E I N A R L A X N E S S
SKOPPARAKRINGLUR með boðskap og Mitt
lið nefnist sýning BS-KH-samsteypunnar sem
staðið hefur yfir í Súfistanum í Hafnarfirði
undanfarið. Annað kvöld kl. 21 verður efnt til
kvöldvöku sem er lokaþáttur sýningarinnar.
„Samsteypan hefur það á stefnuskrá sinni að
veita ánægju og gleði í líf fólks, ekki síst okk-
ar sjálfra,“ segir Kristján Helgason myndlist-
armaður og barítonsöngvari, en hann er for-
sprakki samsteypunnar ásamt Birgi
Sigurðssyni myndlistarmanni. „Við höfum
fengið til liðs við okkur Sigurborgu Kr. Hann-
esdóttur sagnakonu. Við erum fyrstu leik-
menn í „Mínu liði“ Birgis.“
Ekki verður látið staðar numið hér því hug-
myndin er að halda 10 sýningar á næstu
mánuðum og kvöldvökur í tengslum við þær.
„Leitað verður eftir fleiri leikmönnum vítt og
breitt um landið og í fyllingu tímans mun liðið
keppa í „lífsdeildinni“ undir merkjum fótbolta
og myndlistar. Ennfremur mun sýning á
skopparakringlunum þróast. Nafn samsteyp-
unnar kemur svo til með að breytast á ferð
sinni og draga dám að nöfnum þátttakend-
anna tuttugu og tveggja.“
Á sýningunni á Súfistanum eru tvær ljós-
myndir eftir Birgi af tveimur leikmönnum,
önnur heitir Styrkur og hin Ótti og eru hvort-
tveggja eiginleikar sem hann vinnur nú með í
sjálfum sér.
„Skopparakringlurnar eru með boðskap,“
segir Kristján um verk sitt. „Skífur með pinna
og texti um þær miðjar. Textinn er ákveðin
hringavitleysa og má lesið endalaust. Hann
getur verið táknmynd um samskipti fólks eða
samskiptaleysi, þar til það stígur skref út úr
hringavitleysunni. Á kringlunum er m.a.
þessi texti: „Við sitjum hér saman í sátt og
samlyndi en einhvern veginn er það ekki nóg
að við sitjum hér saman…“ o.s.frv. Kringl-
unum er skipt í sex tvílita fleti, sem getur tákn-
að tvær persónur. Þegar kringlunni er snúið
hverfur textinn og liturinn verður einn. Í
gamni og alvöru fjallar þetta verk um sam-
skipti fólks og samskiptaleysi.“
Á kvöldvökunni kynnir Birgir hugmynda-
fræði og leikskipulag liðsins og Kristján frum-
flytur kantötuna „Tilbrigði við skopp“. Sig-
urborg flytur tvær sögur og eigin ljóð.
Að kvöldvökunni lokinni verður fyrsta Ís-
landsmeistarmótið í skopparakringlusn-
úningi, en fastagestir Súfistans hafa æft stíft
að undanförnu. Aðgangur er ókeypis.
Dagskráin er liður í menningarhátíðinni
Björtum dögum.
Innra lið og samskipti fólks á Súfistanum
BS-KH-samsteypan í grasrótinni.
SÝNING á verkum myndlistarkonunnar Ósk-
ar Vilhjálmsdóttur stendur nú yfir í Þjóðarbók-
hlöðunni.
„Í verkum sínum hefur Ósk gjarnan teflt sam-
an og kannað eiginleika einkarýmis og al-
mannarýmis. Hún hefur m.a. rannskað þá
leyndardóma einkalífsins sem birtast okkur í
fjölskylduljósmyndum; þeim sem rata inn í
fjölskyldualbúm og einnig þeim sem þykja
misheppnaðar og er lagt til hliðar og síðan
fleygt. Fyrir þá sem ekkert þekkja til fólksins á myndunum eru skyndimyndir úr einkalífinu
kannski leyndardómsfyllstu myndir sem til eru þar sem lykilinn vantar að svipbrigðum,
stemmningum og tilefni,“ segir í fréttatilkyningu.
Þetta er síðasta opnunin í sýningaröðinni Fellingar, sem er samstarfsverkefni Kvennasögu-
safnsins, Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og þrettán starfandi myndlistarkvenna.
Ósýnileg augnablik
Ein ljósmynda Óskar Vilhjálmsdóttur.
Laugardagur
Grasagarðurinn í Laug-
ardal kl. 22
Gestur Páls Ósk-
ars & Moniku er
Sigrún Hjálmtýs-
dóttir. Flutt verða
bæði gömul og
ný lög í bland við
frumflutt efni.
Árbæjarsafn
kl. 14 Gróa Margrét Valdi-
marsdóttir fiðluleikari leikur
verk eftir Bach. Kolbrún Hulda
Tryggvadóttir sópran og Sól-
veig Samúelsdóttir mezzosópr-
an flytja þætti úr ljóða-
flokki eftir Dvorac.
Tónlistardeild LHÍ ann-
ast tónleikaröð sum-
arsins að þessu sinni.
Á morgun er flug-
drekadagur í safninu.
Sunnudagur
Hafnarfjarðarkirkja kl. 20
Kristín R. Sigurðardóttir sópran
syngur kirkjuleg lög og óp-
eruaríur. Undirleik: Antonía
Hevesi, orgel og píanó.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl.
20.30 Kristjana
Stefánsdóttir
söngur, Agnar
Már Magnússon
píanó og Helga
Björg Ágústs-
dóttir sellóleikari
flytja djasstónlist
eftir Tómas R. Einarsson.
Tilkynningar sem birtast eiga
á þessari síðu þurfa að berast
í síðasta lagi kl. 11 árdegis á
fimmtudögum. Sjá einnig
Mbl.is/staður og stund.
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Tómas
R. Einarsson