Morgunblaðið - 08.07.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
RANNSÓKN RNF LOKIÐ
Niðurstöður rannsóknar RNF á
flugslysi í Hvalfjarðarsveit hinn 28.
mars í fyrra benda til þess að und-
irbúningur fyrir flug vélarinnar hafi
ekki verið í samræmi við verklags-
reglur Flugskóla Íslands. Í skýrsl-
unni kemur fram að flugmennirnir
höfðu ekki aflað sér veðurupplýs-
inga fyrir brottför.
Gæsluvarðhaldsúrskurður
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði karlmann í tveggja vikna
gæsluvarðhald í gær en hann er
grunaður um aðild að hvarfi fyrrver-
andi sambýliskonu sinnar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur lögreglan fundið blóð í íbúð og
bíl sakborningsins.
Allawi fær aukin völd
Forsætisráðherra Íraks, Iyad
Allawi, fékk í gær víðtæk völd til að
grípa til ýmissa aðgerða með það að
markmiði að sporna við árásum of-
beldismanna. Má hann m.a. setja
herlög á ákveðnum svæðum, gefa
skipun um útgöngubann í borgum,
banna samkomur og skerða ferða-
frelsi útlendinga.
Lengja vinnuvikuna
Víða í Evrópu, þ.á m. Frakklandi
og Þýskalandi, er nú rætt að lengja
þurfi vinnuvikuna þar sem stutt
vinnuvika dragi úr efnahagslegum
þrótti ríkjanna. Meðalvinnuvika í
Evrópu er að jafnaði um 10% styttri
en í Bandaríkjunum, einnig eru
sumarleyfisdagar mun fleiri.
Y f i r l i t
Í dag
Erlent 12 Viðhorf 24
Höfuðborgin 14 Minningar 25/29
Akureyri 16 Dagbók 32/33
Landið 16/17 Myndasögur 32
Neytendur 18 Víkverji 32
Daglegt líf 19 Staður og stund 34
Umræðan 21/24 Menning 35/41
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 42
Bréf 24 Veður 43
* * *
Kynning – Blaðinu fylgir auglýsinga-
blaðið Rokksöngleikurinn Hárið.
Blaðinu verður dreift á höfuðborgar-
svæðinu.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
+
GUÐJÓN Brjánsson, forstjóri Sjúkrahússins á
Akranesi, segir að sér lítist afar vel á aukið sam-
starf við Landspítala – háskólasjúkrahús og að
sjúkrahúsið taki í auknum mæli að sér sjúklinga
frá höfuðborgarsvæðinu. Í ræðu sem Magnús Pét-
ursson, forstjóri LSH, hélt á ársfundi Sjúkrahúss-
ins á Akranesi nýlega lagði hann til að í haust
efndu sjúkrahúsin til viðræðna um hvernig mætti
best nýta þá fjármuni og aðstöðu sem sjúkrahúsin
hefðu yfir að ráða.
Guðjón segir að kragasjúkrahúsin svokölluðu,
sem séu við jaðar höfuðborgarsvæðisins, hafi um
tíma rætt við LSH um hvernig megi hátta auknu
samstarfi. „Við teljum að þessi sjúkrahús á suð-
vesturhorninu; á Akranesi, Selfossi, Keflavík og í
Hafnarfirði, ættu að finna hinn sameiginlega takt
á göngunni með það fyrir augum að nýta sem best
mannafla og búnað,“ segir Guðjón. Hann segir að
mikilvægt sé að nýta sem best þá þekkingu og
tækni sem minni sjúkrahús búi við og að Landspít-
alinn eigi að einbeita sér að flóknum og veigameiri
aðgerðum sem krefjist mikils tæknibúnaðar.
Liðskiptaaðgerðir og fæðingar
Rúmlega 3.000 aðgerðir voru gerðar á sjúkra-
húsinu á Akranesi á síðasta ári og er um fimmt-
ungur þeirra sem gangast þar undir aðgerð höf-
uðborgarbúar. Guðjón segir að sjúkrahúsinu hafi
vegnað vel á mörgum sviðum, einkum varðandi
liðskiptaaðgerðir og þeim hafi verið fjölgað tals-
vert. Í ár sé útlit fyrir að um helmingi fleiri lið-
skiptaaðgerðir verði gerðar en í fyrra.
„Við erum nýbúin að taka í notkun hér mynd-
arlega kvennadeild og teljum að við ættum að vera
valkostur við Reykjavík t.d. varðandi fæðingar-
þjónustu og ýmsar aðgerðir sem lúta sérstaklega
að þörfum kvenna,“ segir Guðjón. Um 200 fæð-
ingar hafa átt sér stað á sjúkrahúsinu á ári, en
hann segir að spítalinn geti vel annað í það
minnsta 300 fæðingum á ári með sama mannafla.
Hann telur að það henti vel að finna þriðja sér-
sviðið, sem ekki þarfnast gjörgæslu, sem spítalinn
gæti sérhæft sig í, en á Akranesi er ekki starfrækt
gjörgæsla. Hægt væri að skoða möguleikana í
þessum efnum í viðræðum við LSH.
Guðjón segist ekki hafa heyrt annað en sjúk-
lingar af höfuðborgarsvæðinu hafi verið ánægðir á
Akranesi. „Sumum finnst kostur að komast út úr
amstrinu heima fyrir. Konur sem hafa komið hing-
að til að fæða börn sín vilja t.d. meira næði og þær
hafa fengið að vera lengur á sjúkrahúsinu en er
hægt í Reykjavík. Aðrir vilja vera fjarri heimahög-
unum þegar þeir gangast undir aðgerðir á við-
kvæmum sviðum eða af persónulegum ástæðum.
Sumum finnst þetta kannski líka ókostur, það er
ekki spurning um það, en fjarlægðirnar eru engar
í þessu tilliti.“
Geta tekið við sjúklingum
frá höfuðborgarsvæðinu
STÚLKAN sem
lést eftir að hafa
hrapað í fjallinu
Kubbanum í
Skutulsfirði á
þriðjudag hét
Sunneva Haf-
berg, til heimilis á
Reynimel 82 í
Reykjavík. Hún
var fædd 17. mars 1995 og eru for-
eldrar hennar Kristjana Nanna
Jónsdóttir og Einar Hafberg.
Lést af
slysförum
NEYSLA orkudrykkja og áfengis
samfara hreyfingu getur valdið
hjartsláttartruflunum og jafnvel
leitt til skyndilegs dauða. Umhverf-
isstofnun varar neytendur við því að
blanda þessu þrennu saman í kjölfar
rannsóknar sem gerð var í Svíþjóð,
en þar hafa nokkur dauðsföll orðið
vegna þessa.
Jóhanna Torfadóttir, næringar-
fræðingur hjá Umhverfisstofnun,
segir að viðvörunin, sem stofnunin
gaf út í gær, eigi við um orkudrykki
sem innihalda koffín, taurín eða
glucuronodeltalacton. Hún segir að
flestir orkudrykkir sem eru til sölu
hér á landi innihaldi koffín og margir
taurín. Það sé mikilvægt að fólk
skoði innihaldslýsingar drykkjanna
og forðist að blanda orkudrykkjum
sem innihaldi þessi efni saman við
áfengi. Margir drykkir í dag séu
auglýstir sem koffín- og taurínlausir.
Hún segir að einnig séu svokallaðir
íþróttadrykkir til sölu, sem innihaldi
ekki koffín heldur eingöngu sykur
og kolvetni.
Rannsökuð voru tengsl neyslu
orkudrykkja og áfengis samfara
hreyfingu á tíu heilbrigðum ein-
staklingum í Svíþjóð og kom í ljós að
þessi blanda hafði slæm áhrif á
hjartsláttartíðni við hreyfingu. Jó-
hanna segir að í Svíþjóð sé miklu
meira magn af koffíni leyft en hér á
landi í orkudrykki. Á Íslandi sé leyfi-
legt hlutfall koffíns 135 mg í lítra en
hlutfallið fari upp í 320 mg í Svíþjóð.
Svíar og Danir hafa einnig varað
neytendur við þessari blöndu í kjöl-
far sænsku rannsóknarinnar.
Nokkur dauðsföll í Svíþjóð
„Það er allt í lagi að drekka þetta
eitt og sér, mesta áhyggjuefnið er ef
fólk blandar saman orkudrykkjum
og áfengi og hreyfir sig mikið eins og
t.d. að dansa á útihátíð eða sveita-
balli. Það getur farið að valda þess-
um hjartsláttartruflunum sem geta
verið stórhættulegar. Það hafa orðið
nokkur dauðsföll í Svíþjóð, ég held
núna í sumar,“ segir Jóhanna.
Hún segir að í landskönnun
Manneldisráðs sem gerð var hér á
landi árið 2002 hafi komið í ljós að
15–19 ára unglingspiltar séu helstu
neytendur orkudrykkja hér á landi.
Jóhanna segir að þörf sé á frekari
rannsóknum og að viðvörunin sé
öryggisráðstöfun. Hún segir að jafn-
framt sé ekki mælt með því að fólk
slökkvi þorsta með orkudrykk sem
innihaldi mikið af koffíni og þess
háttar efnum, íþróttafólk eigi frekar
að nota vatn til að slökkva þorsta.
Orkudrykkir, áfengi og
hreyfing varasöm blanda
Morgunblaðið/Ásdís
Mikilvægt er að neytendur skoði
hvort orkudrykkir innihalda koffín,
taurín eða glucuronodeltalacton
hyggist þeir einnig neyta áfengis,
þar sem sú blanda getur reynst
stórhættuleg samfara hreyfingu.
ÍRSKIR dagar á Akranesi verða
haldnir í fimmta sinn um næstu
helgi. Að sögn Rakelar Óskars-
dóttur hjá Akranesbæ taka meðal
annarra þátt í hátíðinni hressir
krakkar á aldrinum 13 til 16 ára
sem verið hafa á leiklistarnám-
skeiði Skagaleikflokksins, sem
Steingrímur Guðjónsson hefur leitt.
„Þetta er í annað sinn sem við starf-
rækjum leiklistarnámskeiðið,“ seg-
ir Steingrímur. „Þau munu meðal
annars taka vel á móti gestum sem
koma til bæjarins á írska daga,“
segir Rakel. Einnig verða þau sýni-
leg víða um hátíðarsvæðið og
skemmta sér og öðrum. Meðal at-
riða á írskum dögum verða sand-
kastalakeppni, sundlaugarpartí og
götugrill, dorgveiðikeppni, sigl-
ingar um Hvalfjörð, útimarkaður
og lopapeysuball. Á sunnudag verð-
ur svo haldið Skagamótið í knatt-
spyrnu.
Morgunblaðið/RAX
Lífsglöð ungmenni á Langasandi
SÝNI sem tekin voru úr hjarta
Helga Einars Harðarsonar
hjartaþega komu vel út og svo
virðist sem lík-
ami hans taki
vel á móti
þessu nýja líf-
færi. Helgi var
í skýjunum
þegar Morg-
unblaðið hafði
samband við
hann í gær, en
hann dvelur á
sjúkrahúsi í
Svíþjóð.
„Þetta kom allt hreint út og
gekk rosalega vel. Líkaminn lif-
ir í sátt og samlyndi við hjartað
enn sem komið er. Fjölskyldan
mín er öll komin hérna út. Í
gær [fyrradag] fékk ég að fara í
fyrsta skipti út á meðal fólks.
Mamma átti afmæli svo við fór-
um út að borða og vorum í
burtu alveg í fjóra tíma.“
Við hjartaígræðsluna var
jafnframt grætt nýtt nýra í
Helga og að hans sögn er
nýrnastarfsemin orðin fullkom-
lega eðlileg. „Ég get varla orðið
betri í þeim. Nýrnalæknarnir
eru í raun að sleppa af mér
hendinni núna.“
Helgi á von á að fara fljótlega
í íbúð sem fjölskyldan hefur til
umráða í Gautaborg. „Svo fer
að styttast í heimförina. Það fer
svolítið eftir því hvenær þeir
heima treysta sér til að taka við
mér. Mér líður konunglega.
Hvert skipti sem kemur hreint
út úr svona sýnatöku er ég him-
inlifandi. Nú er ég líka ekki á
eins mörgum lyfjum og það er
léttir,“ sagði Helgi.
Líkaminn
sáttur við
hjartað
Helgi Einar
Harðarson