Íslendingaþættir Tímans - 20.06.1970, Síða 1
9. TÖLUBL. — 3. ÁRG.
LAUGARDAGUR 20. júnl 1970
BENEDIKT BJÖRNSSON,
bóndi í Sandfellshaga í Öxnafirði.
Benedikt Björnsson bóndi í Sand
fellshaga í Öxarfirði lézt á sjúkra-
húsi í Reykjavík 26. marz s.l., 73
ára 'gamall. Hann var jarðsungian
frá Skinnastaðakirkju 2. apríl.
Hann fæddist á Halldórsstaða-
parti í Reykjadal, 3. des. 1896.
Foreldrar hans voru Björn bóndi
þar — síðar í Glaumbæ og víðar —
(dáinn 1930), Björnsson bónda í
Presthvammi, Björnssonar bónda
í Hólum, Einarssonar og kona vqr)S
Sigurveig (dáin 1931) Jónsdóttir
trésmiðs Pálssonar prófasts (þjóð-
fundarmanns 1851) í Hörgsdal á
Síðu, Pálssonar. Stóðu þannig að
Benedikt ættir norðan og sunnai
fjalla. Foreldrar hans áttu við
þröngan hag að búa og skorti jarð-
næði, voru við búskap eða í hús-
mennsku á ýmsum stöðum í Reykja
dal, Aðaldal og á Tjörnesi, og fóru
börn þeirra að heiman til að vinna
fyrir sér, er kraftar leyfðu. Tveir
bræður Benedikts, sem voru eldri
en hann, gerðust bændu.r í Öxar-
firði, Karl í Hafrafellstungu og
Jón í Ærlækjarseli, en þau Björn
og Sigurveig fluttust austur í
Hafrafellstungu árið 1913 og dvöld
ust þar til æviloka. Fór Benedikt
einnig austur sama ár, þá milli
fermingar og tvítugs og var næsta
áratU'ginn eða rúmlega það 1 vist-
um á nokkrum bæjum í Öxavfirði,
en einnig í Aðaldal. Undir lok
vinnumiennskunnar var hann tvo
vetur við nám í bændaskólanuim á
Hvanineyri. — Hefði eflaust þegið
lengri skólagöngu og fyrr, ef þess
hefði verið kostur .Námsþra ung-
nienna var víða mikil í þann tíð,
on hvorki stóðu þá til boða styrk
i'r_né námslán á þann hátt, sem
nú 'gerist.
Árið 1924 þegar hann var 27
ára> og nýorðinn búfræðingur,
festi hann ráð sitt og gekk að
eiga Friðbjörgu Jónsdóttur, er síð-
ast var á Snart'astöðU'm í Núpa-
sveit MagnúiS'Sonar, góða konu og
dugmikla, sem nú lifir hann, og
reyndist honum traustur förunaut-
ur og styrk stoð. Hún nam ljós-
móðurfræði og hefur lengi stund-
að Ijósmóðurstörf. Jón faðir Frið-
bjargar var bróðir Guðmundar,
sem varð og er þjóðkunnur undir
höfundarnafninu Jón Trausti. Þau
hjón eignuðust tvo sonu, ÞorgL’s
lækni á Vífilsstöðum, sem var við
framhaldsnám erlendis, og kvænt-
ist þar danskri konu, Emmu Reer-
slev, prestsdóttur frá Norður Jót-
landi, og Björn bónda í Sandfells-
haga, sem kvæntur er Jónínu Ásfu
Björnsdóttur frá Kópaskeri, Krist-
jánssonar. Þau Friðbjörg og Bene-
dikt tóku til fósturs og ólu upp
Silju Kristjánsdóttur, sem nú á
heima í Kópavogi, gift Brynjólfi
Brynjólfssyni borgfirzkum manni,
og Svein Árnason, sem enn er
ungur að aldri heima hjá fóstur-
móður sinni í Sandfellshaga.
Vorið 1924 hófu þau Beneclikt
og Friðbjörg búskap á hálfri jörð-
inni Grásíðu í Kelduhverfi, sem
hann tók á leigu, en fluttust fjór-
um árum síðar að Víðihóli á Hóls-
fjöllum og keyptu þá jörð hálfa.
Minntist Benedikt þess síðast nú í
vetur, hve nágrannar hans þar
efra hefðu tekið vel á móti honum
og fólki hans og fúslega rétt fram
hjálparhönd, er b.yrjunarerfiffleik-
ar steðjuðu að, en þau hjónin
reyndust lika án efa góðir liðs-
menn í hinni fámennu og strjálu
byggð. Bjuggu þau í 10 ár, 1928—
1938, og munu hafa aukið þav efni
sín. Þar stundaði Benedikt m.a.
grenjavinnslu á vorin, og minntist
þaðan margra bjartra nátta, er
hann vakti við þá iðju umvafinn
kyrrð og tign hins ósnortna öræfa-
lands. Á Hólssandi við Jökulsá á
heimleið til Fjalla ortl hann m.a.
þessar hringhendur:
„Strjálast gróður, stækkar svið
streymir móða að unni
tekur hljóða heiðin við
hrekkur ljóð af munni.
Drottna þá hin duldu mögn
draumabláu sala,
heyra má í heiðaþögn
hvernig stráin tala“.
Árið 1938 seldi hann hluta sinn
í Víðihóli, keypti háifan SandfelLs
haga í Öxarfirði og bjó þar síðan
til æviloka, en í Sandfellshaga hef-
ur lengi verið tvíbýli. SandfeMsr
hagi er næsti bær undir Öxar-
fjarðarheiði að vestan og þar með
i þjóðleið, enda löngum gestkvæmt
þar, og gott að koma. Standa bæ-
irnir nokkuð hátt og staðarlegt
heim að líta. Mikið var þar um
MINNING