Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Blaðsíða 32
75 ÁRA:
HJALTI BENÓNÝSSON
FORSTÖÐUMAÐUR, AKRANESI
Stutt afmælisspjall
Einn af aldamótamönnunum,
sem lengi hefur sett svip sinn á
Akranes — Hjalti Benónýsson for
stöðumaður Hjólbarðaviðgerðar
innar h.f. — varð 75 ára þann
17. júní s.l. Hann fæddist að Litla-
Kroppi í Flókadal í Borgarfjarðar
sýslu. Foreldrar hans voru hjónin
Guðbjörg Jónsdóttir frá Snóksdal
i Dalasýslu og Benóný Jósefsson
frá Brúsholti í Flókadal, en þar
bjuggu þau hión, unz þau fluttu
á Akranes 1901. Þar hefur Hjalti
því átt heima í nær 70 ár og man
tvenna tímana.
Systkini Hjalta voru þrjú, sem
upp komust. Jón, lengi formaður
í Vestmannaeyjum. Hann var elzt-
ur og er enn á lífi. Tryggvi vél-
stióri í Re.ykjavík, sem er látinn,
og yngst Rósa kona Daníels
Friðrikssonar bifvélavirkjameist-
ara á Akranesi, sem einnig er lát-
in fyrir nokkrum árum. Allt var
þetta mesta dugnaðar- og myndar
fólk.
í tilefni af 75 ára afmælinu átti
ég stutt spjall við Hjalta um lið-
inn tíma.
Hvernig var Akranes fyrir 70
árum?
— Lítið og fátæklegt fiskiþorp.
Hvergi var um venju'lega götu að
ræða, heldur hlvkkjótta stíga, sem
einu sinni hafa verið fjárgötur.
Bárugatan kom fyrst frá bryggj-
unni í Steinsvör og að verzlunum
þorpsins. sem stóðu við Bakkatún
og neðst við Vesturgötu. Bryggjan
í Steinsvör var aðeins kláfbryggja,
sem unpskipunarbátar g.va iagzt
við. Almennt var búið í tort'bæj-
um og tæplega um aðrar bygging-
ar að ræða, nema verzlunarhúsin,
sem voru sæmileg timburhús.
Fólkið lifði aðaile?a á því, sem
fékkst úr sjónum, auk þess sem
flestir höfðu kindur og eina eða
tvær kýr. í Garðaflóanum var mó-
tekja, en mórinn var þá aðal orku
gjafi Skagamanna og þeirra eina
eídsneyti.
Efnahagur var bágborinn hjá
flestum. Ur þessu tók að rakna
með vélbátaútgerðinni á öðrum
tug aldarinnar. Meðan skútuöldin
var upp á sitt bezta höfðu margir
Akurnesingar þar atvinnu sína.
Hvað uni skólagöngu á þeim ár-
um?
— Ég var stuttan tíma í barna-
skóla. Kennarar voru Sæmundur
Guðmundsson síðar ljósmyndari i
Hafnarfirði og Sveinn Oddsson á
Akri. Um haustið 1909 var ég svo
fermdur af sr. Jóni Sveinssyni.
Á vertíð í Garðinum.
— Rétt eftir fermingu eða í árs
byrjun 1910 fór ég suður í Garð.
Var ráðinn þar í skiprúm hjá Hall-
dóri Þorsteinssyni í Vörum, en
hann er frændi minn. Þegar suð-
ur kom, þótti Halldóri ég vera of
ungur á sinn stóra áttæring. Hann
sótti sjóinn fast og fiskaði mikið
og leizt því vitanlega ekki á að
hafa þennan strákkettling á hinu
stóra skipi og kom mér fyrir hjá
MiMjónafélaginu í Garðinum og
hjá því var ég þessa vertíð. Ég
var ráðinn fyrir 40,- kr. og fritt
fæði. En Þórarinn Böðvarsson,
sem veitti félaginu forstöðu
greiddi mér 50,- kr. Það þóttu mér
miklir peningar, enda fyrsta kaup
ið mitt á ævinni. Þegar ég kom
til Reykjavíkur keypti ég mér
glansandi regnkápu á 8,- kr. og
man égvel, hversu montinn ég
var af flíkinni, enda ekki vanur
neinum stássfatnaði. Afgangur-
inn af vertíðarkaupinu gekk svo í
heimilið, eins og venja var á þeim
árum.
Hvað tók svo við?
— Næstu vertíðir reri ég á ára-
bát frá Akranesi. Var lengst á Ein-
ari Þveræing, en formaður á hon-
um var Jóhannes Sigurðsson á
Auðnum. Hann var alla tíð mikill
formaður og aflamaður. Glöggur
og aðgætinn í alla staði. Hann
hafði allt til að bera, sem einkenn-'
ir góðan skipstjóra og afbragðs-
maður í allri umgengni. Kemur
hann mér jafnan í hug, þegar rætt
er um fyrirmyndar formenn
þeirra ára.
Á sumrin var siður að iara í
kaupavinnu yfir sláttinn. Var ég
nokkur sumur uppi i Hál'sasveit,
en síðan heillaði sjórinn mig, einn
ig yfir sumarið. Réðst ég á bát,
sem gerður var út frá SkáTum á
Langanesi, en eigandi hans var
Þorsteinn Jónsson útgerðarmað-
ur á Seyðisfirði. Var hann kunnur
athafnamaður á Austurlandi á
þeim árum. Næsta sumar gerðum
við Jón bróðir minn út bát frá
Skálum, en hann var formaðurinn.
Það gerðum við svo á hverju
sumri næstu sex áirin. Höfðum við
langtum meira kaup með því að
gera út sjálfir. Á þessum árum
fiskaðist ágætlega við Langanes.
Þorsteinn Jónsson keypti aflann af
okfclir
Hvernig var lífið á Skálum?
— Þar var mjög gaman að vera.
Framhald á blis. 31-
32
ISLENDINGAÞÆTTIR