Íslendingaþættir Tímans - 24.11.1971, Page 15

Íslendingaþættir Tímans - 24.11.1971, Page 15
MINNING Guðríður Þórarinsdóttír frá Drumboddsstöðum Fædd 5. september 1888. Dáin 31. október 1971. Kynslóðir koma. Kynslóðir fara. Þó eru engin raunveruleg skil milli kynslóðanna. Einstaklingur kemur og einstaklingur fer. Þeir, sem lifðu bernsku sína og æsku um og eftir aldamótin síðustu, hafa verið nefndir aldamótakynslóðin og eng inn er í efa um hvað við er átt. Svo skörp voru skilin, er urðu í tíð þeirra í ljóðlífinu öllu. Þeir tóku með opnum huga við straum um mennta og umbreytinga í störf um og háttum, er bárust utan úr heimi. Lyftu grettistaki við hin erf iðustu skilyrði í framsókn sinni til betra lífs. Þessari kynslóð til- heyrði Guðríður Þórarinsdóttir frá Drumboddsstöðum, vinkona mín, er andaðist 83 ára gömul 31. októ- ber s.l. Ung drakk hún í sig, og tileinkaði sér hugsjónir aldamót- aði hann eftirtektarverðar greinar. Jónas Oddsson var fríður maður sýnum, skarpgreindur, tillögugóð- ur á vettvangi félagsmála og þeirra mála er til framfara horfðu, hik- laus og stefnufastur þegar á reyndi. í langvarandi og þjáningarfull- um veikindum sínum, sem bæði reyndu á þolinmæði og karl- mennsku, virtist þó lífsþróttur hans svo mikill, að erfitt var að trúa hinni óvæntu helfregn, að hann væri allur og lífsstarfi hans lokið. Ég er þakklátur fyrir það, að hafa kynnzt slíkum inanni, er Jón- as Oddsson læknir var. Yfir þeirri kynningu er sú heiðríkja, sem að- eins lýsir farinn veg hinna beztu drengja. Ástvinum Jónasar Oddssonar sendi ég samúðarkveðjur. Erlingur Davíðsson. anna og allt til þess síðasta hafði hún vakandi áhuga á öllu, sem til heilla horfði. Guðríður giftist aldrei, en bjó á bernskuheimili sínu með tvíbura- bróður sínum fjölda ára. Drumb- oddsstaðir eru í miðri sveit, Bisk- upstungum. Þar var tvíbýli og margt af ungu fólki í æsku Guð- ríðar og eftir að hún tók við búi með bróður sínum. Hjá þeim syst- kinum ólust upp, eða dvöldust ár- um saman, no'kkur ungmenni og nutu aðhlynninga1' hennar og þeirra beggja. Á þessu heimili sköpuðust því ákjósanleg skilyrði til félagslegrar vakningar og for- ystu. Á áliðnu sumri 1906, sama ár og fyrsta ungmennafélag lands- ins var stofnað á Akureyri, höfðu þau Drumboddsstaðasystkin for- göngu um stofnun unglingafélags í eystritungunni, með svipuðu markmiði og ungmennaféögin síð- ar, enda rann það saman við ung- mennafélag sveitaiínnar, þegar það var stofnað tveimur árum seinna. Lestrarfélag var í eystritung- unni um mörg ár, með aðsetri á heimili þeirra systkina. Þegar við þetta bættist alúð og gestrisni þeirra húsbænda, fór ekki hjá þvi að fleiri ættu erindi að Drumb- oddsstöðum, en framhjá. Benda þessar ljóðlínur, er einn sveitungi Cruðríðar reit í gestabók hennar, til þess: „Sezt ég við og les og les lítið sinni flestum hér er komið vafstur og ves og vitlaust allt í gestum eins og væri ös' í búð á lestum". Um sama leyti og unglingafélag- ið var stofnað lagði eldri Ibróðir Guðríðar grundvöllinn að litlum skrúðgarði, þeim fyrsta í sveitinni, að ég ætla. Fljótlega tók hún við Framhald Abls. 28. Svava Guðrún Mathiesen Fædd 20. marz 1909. Dáin 9. október 1971. Kveðja frá Svavari. Fagurt sumar með sólskinsdaga, blómajurtir og bjarkailm. Geymast í huga glaðar raddir þeirra indælu óskastunda. Þannig var líf þitt, listelska kona bjart, fagurt og blómum vafið. Þó að ógnuðu úrsvalir vindar sigraði hlýr sólarbjarmi. Kosið hefðum lemgiu: leiðsögn þína, vel þú snerist við vanda hverjum. Ró þín og festa á fundi hverjum skapaði þér virðingu og vinafjölda. Skarð er fyrir skildl skuggar þéttast, vetur í vændum veður breytast. Bót er þó í máli að minning valdr og að þú bíður bak við tjaldið. Þ.S. fSLENDINGAÞÆTTIR 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.