Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 14
s.l. missti Þyri, konu sína, vildi ég
gjarna igera að mínum eigin orð-
um.
Þyri Ágústsdóttir og Steindór
frá Auðsholtshjáleigu í Ölveri,
voru gefin saman í Kotstrandar-
kihkju þann 20. maí 1956.
Á samvistarárum þeirra fæddust
þeim fimm mannvænleg böm. Það
elzta 16 ára sonur, þá 14 ára dótt-
ir, 7 ára tvíburadrengir og hið
yngsta er 6 ára dóttir.
Eftir því var tekið, hve heimili
þeirra hjóna bar mikinn svip
manndóms, innan bæjar jafnt sem
utan.
Mætti maður þessum hópi á förn
um vegi, var ekki hægt annað en
veita því athygli og dást að því,
hvað drottinn getur verið gjöfull,
þegar hann vill hafa þann háttinn
á framgangi lífsins.
En tilveran er oft algerlega
óskiljanleg. Á síðast liðnum
jólum fór Steindór með barna
hópinn sinn til kirkju eins og und-
anfarin jól. En nú lá leiðin úr
kirkjunni ekki heim eins og venja
hafði verið, heldur út í kirkjugarð
til þess að minnast þar við eitt ný-
tekið leiði, eiginkonunnar og móð-
urinnar.
Gæti átt hér við sem víðar, það
sem Kristján fjallaskáld kvað:
Heimurinn er leikvöllur
heimsku og harms,
hryggðarstunur bengmála
syrgjandi barns.
Kristín Björnsdóttir
frá Höfn
Fædd 22.6. 1909
Dáin 2.2. 1972
Eilíft líf!
Ver oss huggun, vörn og hlíf,
lif í oss, svo ávallt eygum:
æðra lífið, þó að deyjum.
Hvað er allt, þá endar líf?
Eilíft líf!
Matth. Joch.
Þetta vers Matthíasar kom mér
í hug, þegar ég, óviðbúinn frétti
lát vin- og nágrannakonu minnar,
frú Kristínar Björnsdóttur, Hafnar
braut 20 hér á Höfn. Sólgerði heit-
ir það húsið hennar, þar sem hún
hefur búið alla sína búskapartíð
ásamt sínum elskaða eiginmanni,
Óskari Guðnasyni frystihússtjóra.
Kristín Björnsdóttir fæddist í
Dilksnesi, dóttir þeirra merku
hjóna, Lovísu Eymundsdóttur og
Björns Jónssonar oddvita Nesja-
hrepps. Að Kristínu stóðu ein-
hverjar merkustu ættir Hornfirð-
inga, amma hennar Halldóra, var
dóttir Stefáns Eiríkssonar alþing-
ismanns í Árnanesi, en afinn sjálf-
ur, Eymundur, hinn mikli þjóð-
hagasmiður, skáld og margt fleira,
og í föðurættina hin mikla Hof-
fellsætt. Björn faðir hennar, sonur
Jóns Guðmundssonar söðlasmiðs
og bónda í Hoffelli, svo óhætt er
um það að ekki var ættin af verri
endanum, enda sýndi Kristín það
bæði í verkum og allri umgengni,
að þar sem hún var fór góð og
mikilhæf kona.
Lífið allt er blóðrás og
logandi und,
sem læknast ekki fyrr en á
aldurtilastund.
Ó, þú lífs og Ijóssins herra,
sendu frá þínu himneska hásæti
líknandi náðargeisla til hinna sorg
mæddu barna. Léttu þeim stríðið í
hinni þungu lífsreynslu. Þá er það
einnig von okkar og bæn, að þú
lítir í náð til hins syrgjandi eigin-
manns, að þú sendir honum hjálp
til að halda barnahópnum sínum
saman og ala þau upp í anda þinn-
ar kenningar, eins og hans heitasta
takmark, — er og verður. Líttu
einnig af sérstakri náð til Pálínu
Eiríksdóttur, ömmu þessara barna.
Hún eignaðist 6 dætur, en varð að
sjá á bak fjórum þeirra í blóma
lífsins. Hin mikla fórnarlund henn-
ar virðist engin takmörk sett. Nú
aðstoðar hún eftir mætti hin móð-
urlausu dótturbörn sin.
Við hjónin þökkum Þyri fyrir
ágæta viðkynningu, hennar
traustu vináttu og það sólskin, sem
hún flutti í hús okkar, þegar hún
gerði sér ferð til að tala við Her-
dísi, konu mína og stytta henni
stundirnar.
Við hjónin vottum eiginmanni,
hina fyllstu samúð okkar.
börnum og öllum vandamönnum
Vestmannaeyjum 5. jan. 1972,
Stefán Jónsson
frá Steinaborg.
14
islendingaþættir