Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 19

Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 19
Jóhannes Sigurðsson bóndi, Hafnarnesi félagsþegnar. Ég, sem þessar lín- ur rita, hef þekkt þau Guðbjörgu og Halldór í mörg ár, eða frá því að ég var lítill drengur, og er mér það enn í minni hve hressandi þau voru er þau komu í heim- sókn til foreldra minna. Þau voru sannarlega igóðir gestir, Guðbjörg full af lífsfjöri og hugsjónum, Hall dór hægari, en fyndinn og skemmti legur, ágætur söngmaður, er hafði gaman af að taka lagið í góðra vina hópi. en sérstakur hófsmaður í öllu. Það var gott að koma að Úlfs- stöðum, og ekki sízt ef gesturinn var ungur og umkomulítill. Þau hjón kunnu vel að taka á móti igestum, húsfreyjan veitti af rausn og svo miikilli innri gleði að ég er viss um, að það hefur verið henni lífsnauln að veita öðrum og lið- sinna. Þau hjón munu aldrei hafa hugsað til auðsöfnunar, en snoturt bú höfðu þau alltaf, og fóru vel með allan búfénað, svo til fyrir- myndar var. Guðbjörg var miög barngóð og af þeim sökum sóttu kaupstaðarbúar eftir því að koma börnum til sumardvalar að Úlfs- stöðum. og þau eru mörg börnin sem búin eru að dvelia hjá þeim hiónum öll þeirra búskaparár. Við hjónin vorum svo heppin að 'koma dreng er við eigum til sumardval- ar til Guðbjargar og Hall- dórs, hann dvaldi hjá þeim í 5 sumur, oig leið þar alltaf vel, enda farinn að Úlfsstöðum um leið og skólanum var lokið. Þetta segir sína sögu um bað hvernig viðmót- ið hefur verið hjá húsráðendum, og börnum þeirra. Guðbjörg var vel gerð kona, hafði alltaf jákvæða afstöðu til lífsins, sá yfirleitt björtu hliðarnar á öllum hlutum, það sem miður fór hjá öðrum heyrði ég hana aldrei tala um. Ég heyrði hana fieldur ekki kvarta yfir sínum kjörum, en þó gæti ég trúað að stundum hafi hún óskað þess að hafa úr meiru að spila, en það hefur þá verið til þess að geta gef- ið öðrum meira. Þannig var hugar- far hennar. Við hjónin kveðjum Guðbjörgu með þökk og virðingu, og vottum eiginmanni, börnum og öðrum ást- vinum hennar innilega samúð. Ingólfur Jónsson. Hinn 22. desember síðastliðinn, var jarðsettur frá Hafnarkirkju í Hornafirði, Jóhannes Sigurðsson, bóndi í Hafnarnesi. Við andlát hans voru vandamenn hans og vin ir alvarlega á það minntir, hve líf- ið, þessi dýri fjársjóður, sem al- mættið réttir að hverjum manni við fæðingu, er hverfult, og hve bil ið á milli þess og dauðans er oft miiklu styttra en okkur virðist í fljótu bragði. Jóhannes fór að heiman frá sér, til að vinna á Höfn að morgni þ. 17. desember, fullhraustur, að því er séð varð, en hné örendur niður á heimleið, fáum klukkustundum síðar. Margir munu hafa staðið hljóðir við slíka helfregn, því að Jóhannes var af mörgum talinn óvenju hraustur og sterkbyggður maður. Jóhannes fæddist að Kambsfelli í Eyjafirði 10. des. 1931 og þvi ný orðinn fertugur að aldri. Foreldr- ar hans voru hjónin Sigurður Arn- ljótsson Húnvetningur að ætt og Jóhanna Lilja Jóhannesdóttir úr Dalasýslu. Varð þeim 10 barna auð ið og var Jóhannes fjórði í röð- inni, yngsta barnið lézt stuttu eft- ir fæðinigu. í fyrstu bjuggu foreldr ar Jóhannesar að Kambsfelli og Tinnastöðum í Eyj'afirði, en er bamahópurinn stæklkaði var horfið úr eyfirzkri afdalabyggð og at- vinnu leitað þar sem afkomuveg- ir voru auðveldari, fyrst á Akur eyri og Siglufirði en að siðustu að Saurbæ í Kolbeinsdal í Skagafirði. Þann daig, sem „sólin heim ur suðri snýr“, 22. desember 1941, þegar Jóhannes var ný orðinn 10 ára lézt móðir hans, að afstaðinni barnsfæðingu og barnið stuttu síð- ar. Varð það mikill örlagadagur í lífi allrar fjölskyldunnar, sem brátt hvarf í ýmsar áttir. Jóhannes fór þá að Ásgeirsbrekku í Viðvíkur- sveit, til móðurömmu sinnar, Þrúð ar Quðmundsdóttur og dvaldist hjá henni fram yfir 16 ára aldur. Minntist hann jafnan ömmu sinn- ar og dvalarinnar hjá henni með þakklæti. Að lokinni dvölinni að Ásgeirsbrekku fór hann alfarinn burtu úr Skagafirði í atvinnuleit til Suðurlands og vann þá m.a. islendingaþættir 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.