Íslendingaþættir Tímans - 27.04.1972, Síða 23
fyrirtæki landsins. Mun sú reynzla
samfara áhuga og árvekni i störfum
og samvizkusemi, hafa ráðið mestu
um^að Helga Guðmundssyni voru falin
hin vandasömu verzlunarerindreka-
störf i Suðurlöndum. Enda fóru þau
störfsvo úr hendi Helga, að allir sem
hagsmuna áttu hér að gæta, luku á
lofsorði.
begar Helgi Guðmundsson tökst á
hendur bankastjórn Otvegsbanka ís-
lands h.f., kom brátt i ljós, að bankan-
um hafði bætzt ný, örugg og farsæl for-
ysta. Viðskipti bankans fóru sivax-
andi, og hagur hans batnaði með ári
hverju. Enda lagði Helgi Guðmunds-
son ávallt mikla vinnu og alúð i öll
störf, Bankanum helgaði hann starfs-
krafta sina alla og óskipta.
Hann mat mjög samstarfsmenn sina
i fyrstu bankastjórn, Jón Baldvinsson
og Jón Ólafsson, en þeir voru báðir
alþingismenn og höfðu þvi mörgum
hnöppum að hneppa. I minningargrein
að þeim látnum, sagði Helgi Guð-
mundsson um þá i Bankablaðinu 1938:
„Þeir eins og kepptust um að reyna að
hlúa svo að mér og minu verki, að sem
mest af utanaðkomandi næðingi lenti á
þeim og sem minnst á mér. Þvi voru
þeir gagnvart mér eins og skjólgarðar
eða klettar úr hafinu, sem stormar og
sjóir brutu á. En ég fékk að vera i friði
við okkar sameiginlegu verk.”
Viðskiptamönnum bankans var
hann hollur ráögjafi og leiðbeinandi.
Kom þar að góðu haldi glögg mann-
þekking, er fram kom i viðtölum Helga
Við viðskiptamenn bankans um erindi
þeirra og vandamál. Hann krufði
hvert mál til mergjar og var siðan
skjótur að taka ákvarðanir.
Hafnfirðingum reyndist Helgi Guð-
mundsson mikið tryggðartröll allt frá
stofnun Bæjarútgeröar Hafnarfjarðar,
sem komst á fót af vanefnum og i
fátækt, á árum atvinnuleysis við þröng
kjör bæjarbúa. Með heilum ráðum og
dáð studdi hann fyrirtækið yfir öldur
erfiðleikaára kreppunnar, þegar upp-
gjöf virtist jafnan á næsta leiti.
Einnig við endurnýjun og uppbygg-
ingu þessa óskabarns Hafnfirðinga,
var Helgi jafnan hvetjandi til stór-
átaka með vini sinum Asgeiri G.
Stefánssyni. Forystumenn bæjarfé-
lagsins frá þeim árum muna þá báða
með þakklæti i huga.
Mörg stórvirki voru unnin i atvinnu-
sögu þjóðarinnar eftir lok siðustu
heimsstyrjaldar. Ejtt stærsta átakið i
þeim efnum var án efa kaup á 32
islendingaþættir
nýsköpunartogurum frá Englandi. Að
undirbúningi þeirra kaupa vann
Helgi Guðmundsson mikið og farsælt
starf, er hann fór utan i umboði rikis-
stjórnarinnar 1946, þeirra erinda að
ganga frá samningum um togara-
kaupin. Fór vel á,að hann skyldi valinn
til þeirra erinda, þvi aö hann var mað-
ur áræðinn, bjartsýnn og stórhuga, en
þó aðgætinn og athugull.
Starfsfólki útvegsbankans var Helgi
Guömundsson alla tið góður húsbóndi,
raunsýnn og réttlátur.
Harður var hann á köflum, en veg
allra vildi hann greiða til vaxandi
brautargengis i bankastörfum. Um
hagsmuni stéttarinnar stóð hann vörð
og var málsvari þeirra gegn pólitisk-
um embættisveitingum, sem létu oft á
sér brydda um hinar veigaminni
stöður.
Helgi fylgdist ávallt vel og af áhuga
með hag og afkomu starfsfólksins. Oft
greiddi hann götu þess á ýmsa vegu og
leysti ótal vandamál bess.
Starfsmannafélag Otvegsbankans
studdi hann vel og drengilega. Hann
afhenti félaginu á sinni tið fyrsta sam-
komusal, er isienzkir bankamenn
fengu til afnota.
Starfsfólki bankans var hann mestur
haukur i horni, þegar hann kom i gegn
stofnun Eftirlaunasjóðs starfsmanna
Otvegsbanka tslands, með félags-
stjórninni, og öllum þeim óteljandi
óeigingjörnu störfum, er hann vann að
eflingu sjóðsins.
Helgi Guðmundsson var tvikvæntur,
Fyrri konu sina Karitas ólafsdóttur,
prófasts á Stóra-Hrauni, Eyrarbakka,
i Arnessýslu, missti hann 1951. Höfðu
þau þá búið saman i hamingjusömu
hjónabandi i 32 ár. Heimili þeirra var
undurfagurt, og hlýtt viðmót húsbænd-
anna veitti gestum þeirra dásamlegar
móttökur.
Þau eignuðust fjögur börn, sem öll
eru á lifi: Þóra, bankaritari i Otvegs-
bankanum i Reykjavik, Kristin gift
Einari G. Kvaran forstjóra, S.H.,
Olafur bankastjóri i Vestmannaeyj-
um, kvæntur Sigriði Helgadóttur,
augnlæknis Skúlasonar á Akureyri, og
Guðmundur, raffræðingur, kvæntur
Katrinu dóttur Sverris Thoroddsen
fyrrverandi bankafulltrúa.
Siðari kona Helga var Elin Július-
dóttir. Þau slitu samvistir eftir stutta
sambúð og voru barnlaus.
Siðustu 12 ár ævinnar naut Helgi
umönnunar jafnöldru sinnar, Svöfu
Jakobsdóttir, sem reyndist honum
ómetanleg á hinum siðustu æviárum
hans i einveru og við hrakandi heilsu.
Likami Helga Guðmundssonar hefur
verið tií moldar borinn, en sál hans og
endurminningar um góðan húsbónda,
ljúfmenni og einlægan vin og félaga
munu lifa og ljóma i skæru og björtu
ljósi i þakklátum hjörtum gamalla
starfsmanna Otvegsbanka íslands til
æviloka og endurfunda.
Þannig hygg ég,að hugur margra
gamalla viðskiptamanna bankans falli
i sama farveg.
1 riki guðs á himnum óskum við hon-
um gleðilegra páska.
28-3-1972
Adolf Björnsson.
23