Íslendingaþættir Tímans - 01.03.1973, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 01.03.1973, Síða 5
Helga Pálsdóttir öld eöa voru fyrir löngu farnir af þessum heimi. Svo haföi og veriö um séra Pétur fööur hans. Séra Jón þurfti ekki aö leita i bókum aö þeim, sem rætt var um, hann gat leyst úr þeim gátum eins og án fyrirhafnar og þurfti ekki lengi aö biöa eftir svari hans á þvi sviöi. Séra Jóni voru hugleikin mörg almannamál og haföi ákveönar skoö- anir á þeim. Hann gat veriö gagn- rýninn og jafnvel hvasss i oröum, ef þvi var aö skipta, og rætt var viö hann I næöi og án truflana, en hann var mildur kennimaöur og lét ekki mikiö yfir sér. Hann dáöi hvorki hljóövarp né sjónvarp, en vildi, aö menn fengju næöi til hugsana og lesturs án áróöurs- tækja er sviptu marga frjálsri hugsun og ótrufluöum athugunum. Þaö var góö skemmtun og ánægjuauki aö fá hann i heimsókn og heyra hann spjalla um þaö sem honum var efst i huga, og var hann þá ekki viö eina fjöl felldur um menn og málefni. Séra Jón haföi mikla ánægju af feröalögum og fór oft utan eftir ab hann flutti til Reykjavikur. Hann vildi kynnast öörum löndum og þjóðum af eigin sjón og reynd og kunni frá mörgu að segja er hann hafði kynnzt á þeim feröalögum. Hann heimsótti sin gömlu sóknar- börn oftsinnis og dvaldi stundum meðal þeirra svo dögum skipti. Hann var þeim lika aufúsugestur i hvert skipti, vináttuböndin þeirra i milli voru traust, enda var hann jafnan reiöubúinn til aðstoðar, er þau þurftu hingað til Reykjavikur vegna sjúk- leika eða annarra erinda. Söfnuðir hans héldu þeim hjónum, séra Jóni og frú Þóru fjölmennt heiðurssamsæti og vottuðu þeim viröingu sina með góðum gjöfum nokkru eftir burtför þeirra frá Kálfa- fellsstaö. Vinir séra Jóns og kunningjar minnast hans með þökk fyrir störfin og samveruna og óska ekkju hans, börn- um og öðrum vandamönnum góðrar framtiðar og votta þeim einlæga samúð. Jón tvarsson LONGU lifsskeiði er lokið. Helga Páls- dóttir var fædd að Arngeirsstöðum i Fljótshlið 27. april 1877. Foreldrar hannar voru hjónin Páll Einarsson frá Kirkjulæk og Guðrún Auðunsdóttir á Arngeirsstöðum. Helga dvaldist a Arngeirsstöðum til 9 ára aldurs, en þá fluttist hún að Tungukoti með foreldrum sinu. Það var ekki auður i garði, það varð þvi hlutskipti Helgu að fara að vinna fyrir sér. Fór hún 17 ára gömul að Grjótá i sömu sveit og var þar að hálfu. Það urðu 6 ár. A Grjótá bjuggu þá Sigurlaug Sveins- dóttir og Teitur Ólafsson. Þaðan lá leiðin að Teigi til Arnþórs Einarssonar bónda, þar var Helga i 23 ár. Það má og geta þess, að i Teigi var haft i seli á sumrin, var það fyrir framan Þverá. Þar var Helga sela- stúlka og háði hún oft gráan leik við gömlu Þverá. Bar Helga þar ætið hærri hlut. Sennilega var Helga siðasta selstúlkan okkar hér um slóðir. Leiðin lá aftur að Grjótá, þá voru þau Sveinn sonur Teits og kona hans Vilborg Jónsdóttir tekin þar við búi, og þar var hún i 27 ár. Siðan fluttist Helga með.Helgu dóttur Sveins og Vil- borgar og manni hennar Þorbirni Jónssyni að Litla-Kollabæ, þar var Helga i 9 ár. Og aftur var flutt aðGrjótá með Helgu og Þorbirni. Dvaldist Helga þar óslitið þar til hún fór á sjúkrahúsið á Selfossi, þar var hún 2 siðustu árin sem hún lifði. Má það vera sjaldgæft aö Helga hefur þjónað fjórum ættliðum, en munað þá 6. Mér er efst i huga, er Helga var að koma i orlof sitt á bernskuheimili mitt, þar voru skemmtilegir dagar. Var þá látið fjúka i kviðlingum og fengum við krakkarnir sina stökuna hver, þvi Helga var prýðilega hagmælt enda ná- skyld Þorsteini Erlingssyni. Ég minnist einnig margra ómetan- legra stunda, er ég heimsótti hana að Grjótá og sat hjá henni. Hlustaði á sögur og margan gamlan fróðleik. Málfar Helgu streymdi fram hreint og tært, sem bæjarlækirnir i Hliðinni hennar kæru. Það voru lærdómsrikir timar i islenzku máli. Kærleiksþel hennar og gjafmildi var einstætt þótt ekki væri miklum veraldarauð af að taka. Marga rósa- vettlingana gaf hún að ógleymdum hyrnunum sem unnar voru úr togþræði og eru hreinustu dýrgripir. Þeim fækkar nú óðum konunum, sem kunna að kemba og spinna togþráð, svo og að vinsa þráð á legg. Helga kvæntist ekki og átti ekki af- komendur og er það skaði fyrir þjóðfélagið. Að endingu vil ég færa Helgu Sveinsdóttur húsfreyju á Grjótá þakkir fyrir frábæra umönnun fyrir gömlu konuna. Hún andaðist á sjúkrahúsi Selfoss 1. janúar s.l. og var jarðsett að Hliðar- enda 6. sama mánaðar. Helga min! Ég bið þér blessunar i nýjum heimkynnum. Frænka. islendingaþættir 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.