Íslendingaþættir Tímans - 21.03.1973, Blaðsíða 2
Sextugur:
Ingólfur Helgason
frá Gautsdal
Þegar feröamaöur á vesturleiö kem-
ur á öxlina ofan viö Króksfjaröarnes I
Geiradal blasir viö fögur sýn yfir fjöll
og byggöir. Þar er Geiradalur næst og
Reykhólasveitin aöeins fjær. Landslag
er þar fjölbreytt. Sérkennileg fjöll,
firöir og annes. Mergö af eyjum —
stórum og smáum — þegar litiö er til
sjávarins. A lyngum vormorgni spegl-
ast hauöur og himinn I vlkum og vog-
um. Viö fjöllin standa bændabýlin
þekku, meö fallegar byggingar og vel
ræktuö tún, sem teygja sig upp í fjalls-
hlíöina. Vingjarnlegri sveitir fyrir-
finnast vart á landi hér. Þarna blasir
viö augum Barmahliöin, sem Jón
Thoroddsen hefur gert viöfræga
■meö skáldskap sinum.
í þessari fögru byggö er Ingólfur
Helgason vaxinn upp frá tveggja ára
aldri og þar hefur hann lifaö og starfaö
lengst ævi sinnar. Hann er fæddur aö
Kveingrjóti i Saurbæ i Dalasýslu 17.
janúar 1913. Foreldrar hans voru Helgi
Helgason bóndi þar og siöar I Gautsdal
I Geiradal og kona hans Ingibjörg
Friöriksdóttir. Börn þeirra voru mörg
og mannvænleg og heimiliö I fremstu
röö góöra og fallegra sveitaheimila viö
Breiöafjörö I þeirri tiö.
Ungur aö árum fór Ingólfur til náms
i Núpsskóla, eins og þá var siöur
margra ungra manna i Geiradal og
Reykhólasveit. Ég minnist þess enn,
er ég starfaöi meö Birni skólastjóra á
Núpi einn vetur nokkru siöar, aö hann
setti jafnan upp ánægjubros, er hann
minntist piltanna sinna úr fyrrgreind-
um hreppum. Mátti greina þaö af svip
75 ára:
Vigdís Helgadóttir
frá Meðalholtum
Hún Vigdis frá Meöalholtum varö 75
ára 20. febrúar.
Já, þaö er margt ööruvisi en manni
sýnist. Hún Vigdis frá Meöalholtum er
mörgum aö góöu kunn, þvi aö hún er
ein þessara manna, sem vilja létta
samferöamanninum byröarnar, og
hún hefur sjálfsagt fengiö þann eigin-
leika 1 vöggugjöf, þvi svo lengi, sem ég
hef þekkt hana, hefur hún sinnt þessari
köllun sinni. Aö gleöja aöra hefur
henni veriö sem matur og drykkur.
Kirkjubækur Arnesprófastsdæmis
segja hana Helgadóttur, fædda á Ósa-
bakka á Skeiöum 20. febrúar 1898. For-
eldrar hennar voru hjónin þar Krist-
jana Einarsdóttir og Helgi Jónsson.
Brátt uröu börnin fimm: Jón, Einar,
Sigriöur, Vigdls og Kristin, og þaö
varö þvi þungt áfall, er heimilisfaö-
irinn féll frá, barnahópurinn allur I
ómegö. Kristjana varö þvi aö bregöa
búi og varö þá hlutskipti Vigdísar,
innan viö 12 ára aö aldri, aö flytjast aö
Alfsstööum i sömu sveit til Ingveldar
og Eiriks Asbjörnssonar. Þaöan lá svo
leiöin aö Miödal i Laugardal samtimis
þvi aö Ingveldur fluttist einnig i
Laugardalinn og tók aö sér heimili
Ingvars i Laugardalshólum. Þarna
átti Vigdis eftir aö mæta tilvonandi
eiginmanni sinum, Jóni Þorvarössyni
Jónssonar, en hann haföi alist upp á
Laugarvatni hjá Magnúsi bónda þar.
Þau Vigdis og Jón felldu hugi saman
og eftir giftinguna hófu þau búskap á
Laugardalsvöllum eins og mörgum er
kunnugt, Þar fæddist þeim þeirra
fyrsta barn áriö 1919 en alls uröu
börnin 7, öll hafa þau reynzt dugmikiö
myndarfólk eins og þau eiga kyn til.
Eftir tæplega 40 ára búskap I Flóanum
fluttust þau hjónin til Reykjavikur 1957
og hafa búiö þar siöan.
Reykjavík var sá vettvangur, þar
sem hin fórnfúsa lund Vigdisar gat vel
notiö sin, þar var aö finna verkefni viö
hennar hæfi. Enda stóö ekki á aö hef ja
störf. Varö hún brátt starfsmaöur
heimilishjálpar Reykjavikurborgar,
þar sem hún siöan hefur starfaö. Hefur
hún þar unniö mikiö og óeigingjarnt
starf I þágu þeirra, sem af ýmsum
ástæöum, heilsufarslegum eöa félags-
legum, hafa þurft aö leita til þeirrar
stofnunar.
Margt hefur á dagana drifiö, Vigdis,
og margar bjartar minningar munt þú
eiga bæöi frá samvistum þinum viö
Arnesinga i Laugardalnum og I Gaul-
verjabæjarhreppnum svo og frá
störfum þinum hér I borginni. Ég veit
aö allt þaö fólk, sem þú hefur starfaö
fyrir og starfaö meö á öllum þessum 75
árum þinum, sendir þér hugheilar
kveöjur og þakkir og árnar þér heilla i
tilefni þessa merkisdags i lifi þinu. Ég
og fjölskylda min sendum þér
alúöarþakkir fyrir ánægjuleg kynni og
margvislega aöstoö þina og þinna og
óska ykkur hjónunum heilbrigöi og
starfsorki enn um sinn. Guö blessi
ykkur framtiöina, lifðu heil.
E.
2
íslendingaþættir