Íslendingaþættir Tímans - 21.03.1973, Side 4
Merk afmæli heiðurshjóna frá Akranesi:
80 ára:
Jón Kr. Guðmundsson
75 ára:
Björg Jónasdóttir
útsaumi húsfreyjunnar, en handa-
vinna hennar er gædd fáguðum, list-
rænum smekk. —
Fljótlega fór hún Margrét að koma
sér upp trjá- og blómagarði og við það
verk átti hún sér marga ánægjustund
eftireril dagsins. Hver vaxtarsproti er
gleðigjafi þeim, sem unna mold og
gróðri, og það kom lika fljótt gróska og
gróðurilmur i garðinn hennar við sim-
stöðina. —
Margrét Sæmundsdóttir er fædd 16.
febrúar 1903 að Lágafelli i Austur-
Landeyjahreppi. Foreldrar hennar
voru þau Guðrún Sveinsdóttir, ættuð
frá Stóru-Mörk, mild og móðurleg
gæðakona og sveitarhöfðinginn hann
Sæpiundur ólafsson, oddviti á Lága-
felli, er í marga áratugi var tilkomu-
mitóll forsvarsmaður sveitar sinnar
og farsæll formaöur á áraskipi, við
Landeyjasand. —
Margrét hefur erft góða kosti
foreldra sinna. Alúð og hlýtt hugarþel
og litrika persónulega reisn.
Margrét og Árni voru gefin saman í
hjónaband 1. júni 1924 og hófu búskap
að Eyjarhólum i Mýrdal. Þar voru.
3 frumbýlisárin, þá lá leiðin til
Vestmannaeyja, þar sem þau dvöldu
um nokkra mánaða skeið, en þaðan
fluttu þau aftur heim i Landeyjarnar,
þar sem ræturnar áttu djúpa festu.
Þegar Árni Einarsson hafði náð
aldurshámarki embættismanna fluttu
þau hjónin að Skipasundi 84 i Reykja-
vik. —
Margrét og Arni hafa eignazt þrjú
myndarleg börn, Einar, rafvirkja-
meistara i Hvolsvelli, Guðrúni, hús-
freyju i Hvolsvelli og Helgu Maggýju
húsfreyju að Galtafelli i Vik i Mýrdal.
011 eru börnin gift og eiga uppkomna
afkomendur.
Margrét Sæmundsdóttir hefur ekki
gengið heil til skógar um margra ára
skeið og oft þurft að dveljast á sjúkra-
húsum. Með þessari afmæliskveðju úr
Hvolhreppnum fylgir ósk Margréti til
handa um góða heilsubót, svo hún
megi enn eiga ótaldar ferðir á fornar
slóðir, þar sem dagarnir liðu i önn og
draumalöndin eru.
Pálmi Eyjólfsson.
Þann 8. des. s.l. varð Jón Kr. Guð-
mundsson skósmiðameistari á Akra-
nesi 80 ára og 15. des. s.l. átti kona
hans Björg Jónasdóttir 75 ára afmæli.
Þessi ágætu hjón eru bæði fædd og
uppalin í Dalasýslu. Hann er frá
Hornsstöðum i Laxárdal en hún frá
Stóra-Vatnshorni I Haukadal. Þau
gengu I hjónaband 5. júli 1940 og sföan
hefur heimili þeirra verið á Akran'esi.
Þau hafa jafnan veriö tengd Dalasýslu
sterkum böndum og eiga þar margt
frænda og vina. Heimili þeirra hér á
y>kranesi hefur staðið þeim opið. Rækt-
arsemi þeirra við Dalasýslu hefur og
komið fram i ýmsu öðru.
Jón Kr. Guömundsson nam ungur
skósmiði hjá fööurbróður sinum i Bol-
ungarvik og lauk þar sveinsprófi. Um
tima var hann bóndi að Giljalandi 1
Haukadal. Hann gerðist skósmiöur á
Akranesi 1921 og stofnaði eigin skó-
vinnustofu 1926 og rekur hana enn.
Hann hefur þvi unnið að þessari iðn á
Akranesi I meir en hálfa öld, og er enn
I fullu fjöri. Þetta segir þó minnst um
það, hver maðurinn er.
Jón Kr. Guömundsson hefur alla tið
verið mikill og áhugasamur félags-
maður. Hann var lengi I stjórn Iðn-
aðarmannafélags Akraness og
Stangveiðifélags Akraness, enda lax-
veiöimaöur af lifi og sál frá æskudög-
um og er enn. Hann hefur frá fyrstu tlð
haft brennandi áhuga á þjóðmálum og
verið sterkur og einlægur stuðnings-
maöur Framsóknarflokksins allt frá
endadægri Bjarna frá Vogi. Hann er
stálminnugur og betur að sér i stjórn-
málasögunni en flestir aðrir. Kann
hann að rekja stórpólitiska atburöi,
hvern af öðrum og greina þar frá
mönnum og málefnum, eins og þau
heföu gerzt i gær. Hann átti lengi sæti i
stjórn Framsóknarfélags Akraness og
I fulltrúaráði félagsins hefur hann
verið frá upphafi. Jón hefur lengi unn-
iö mikið og óeigingjarnt starf fyrir
Timann og Framsóknarflokkinn á
Akranesi, sem viö samherjar hans
4
islendingaþættir