Íslendingaþættir Tímans - 28.12.1973, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 28.12.1973, Blaðsíða 1
ISLENDINGAÞÆTTIR Föstudagur 28. desember 1973, 66. tbl. 6. árg. nr. 151. TIMANS Gísli Guðmundsson alþingismaður Kveðja ó útfarardegi Ljóst er, aö þeir veröa margir, sem vilja minnast Gisla Guðmundssonar i Timanum, og verður honum þvi siðar helgað blaö af Islendingaþáttum. Viö útför hans þykir samt rétt að minnast nokkuð starfs hans i þágu þess blaðs, sem hann stjórnaði við góðan orðstir i meira en áratug. Gisli Guömundsson var ritstjóri Timans á árunum 1930-1940 og ritstjóri Nýja dagblaðsins, sem Framsóknarflokkurinn gaf út 1934-1936. Hann var einnig stjórnarmálaritstjóri Nýja dag- blaðsins 1933-1938. Heilsubrestur olli þvi, að ritstjórnarferill hans varð ekki lengri. Gisli Guömundsson var i hópi ritfærustu blaðamanna og reyndist þvi verðugur arftaki þeirra Tryggva Hórhailssonar og Jónasar Þorbergssonar, sem lengst höfðu verið ritstjórar Timans á untían honum. I þann rúma áratug, sem Gisli stjórnaði Timanum, var hann tvimælalaust einn af áhrifamestu leiötogum Framsóknarflokksins. Hann myndaöi, ásamt þeim Hermanni Jónassyni og Eysteini Jónssyni, nýja forustusveit, sem tók við stjórn Framsóknarflokksins á þcssum áratug, þótt Jónas Jóns- son héldi áfram að vera áhrifa- mikill i flokknum. Stjórn Gisla Guðmundssonar á Timanum átti t.d. drjúgan þátt i þvi að Framsóknarflokkurinn varö jafn- sigursæll i glimunni við Bænda- flokkinn og raun varð á. Svo laus- lega var þá gengið frá skipulagi Timans, að ritstjórinn gat ráðið blaðinu, og hefðu úrslitin getað orðið önnur, ef Gisli hefði látið Timann snúast á sveif meö Tryggva Þórhallssyni og þeim öðrum leiötogum Framsóknar- flokksins, sem stofnuöu Bænda- flokkinn. Það leiddi af stöðu Gisla Guömundssonar á þessum árum, að hann mótaöi þá málflutning Framsóknarflokksins flestum fremur. Þaö var i átökunum við Bændaflokkinn, sem Gisli bjó til hið þekkta vigorð — að vinna eftir málefnum. Framsóknarflokkur- inn lá þá undir þeim ásökunum, að hann væri of hlynntur sósia- listum og léti jafnvel stjórnast af þeim. Þessu var ekki sizt beint að flokknum af Bændaflokks- mönnum, Ýmsir yngri menn i flokknum — og var ég einn i hópi þeirra — vildu svara þessu með hinu gamla vigorði Tryggva Þór- hallssonar: Allt er betra en ihaldið. Gisli taldi réttara að fara hóflegar i sakirnar og benda fyrst og fremstá málefnin.sem um var deilt. Þau vinnubrögð reyndust sigurvænleg I kosningunum 1934. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Bændaflokkurinn gengu i bræðra- lag fyrir þingkosningarnar 1937

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.