Íslendingaþættir Tímans - 22.11.1975, Page 7
Júlíus Jónsson
Hítarnesi
Kristrún Magnúsdóttir trá Glerár-
skógum i Dalasýslu og Eggert bóndi i
Skálholtsvik i Strandasýslu, kona hans
er Þórgerður Sigurjónsdóttir, sem
þar er fædd og uppalin. Allt er þetta
hið myndarlegasta fólk og nýtir þjóð-
félagsþegnar.
Guðmundur var mikill að vallarsýn
og gjörvulegur maður. Hann var með
sterkustu mönnum i héraðinu, eins og
sjá má af þvi að hann tók upp og bar
hina frægu kviahellu á Húsafelli þegar
hann var átján ára gamall. En þvi
miður naut Guðmundur ekki krafta
sinna eins og efni stóðu til. Um miðjan
aldur varð hann fyrir þeim illu örlög-
um að missa heilsuna og varð aldrei
sami maður aftur. En verklagni hans
var hin sama. Honum var sérstaklega
lagið að smíða úr járni. Smiðaði hann
skeifur og annað það, sem til búsins
þurfti og fórst það allt prýðilega úr
hendi. Hefði sjálfsagt orðið góður
iðr.aðarmaður ef hann hefði lagt út á
þá braut. Voru þau öll systkin miklar
og lagnar verkmanneskjur, sem verið
hafði faðir þeirra og móðir.
Guðmundur unni landinu, jörðinni.
Þegar á unga aldrei gerðist hann mik-
ill jarðræktarmaður. Bera túnin á jörð
hans vitni um vandvirkni. Lagði hann
metnað sinn i að jörðin væri vel unnin
og flögin slétt og með réttum halla.
Hann mun hafa verið með þeim fyrstu,
er unnu á dráttarvélunum gömlu með
járnhjólunum við jarðrækt. Voru það
nokkur vor og haust, sem hann stund-
aði þá vinnu á ýmsum bæjum i Borg-
arfirði. Honum lét sá starfi vel, bæði
sem jarðræktarmanni og vélstjóra.
Hann hafði gott vit á vélum og meðferð
þeirra. Það er heldur ekki ofmælt að
Guðmundur hafi verið mikill land-
græðslumaður.
Guðmundur var að eðlisfari hlé-
drægur maður. Það varð þvi ekki hlut-
skipti hans að starfa að opinberum
málum samfélagsins utan þátttöku
hans á yngri árum i ungmennafélagi
sveitarinnar, er hann unni sveitinni og
þeim jarðvegi, er hann var sprottinn
úr. Hann naut heimiiisins og sinnar
góðu konu, sem var honum ómetanleg-
ur styrkur i veikindum hans og erfið-
leikum lifsins, þrátt fyrir það, þó að
hún á sama tima gengi ekki heil tii
skógar. Hún stóð gegn öllu andstreymi
með óbilandi kjarki og viljaþreki.
Ahtthagatryggðin hefur oft orðið
sterkari en löngun i gull og gersemar.
Gylliboð kaupstaðalifsins freistuðu
aldrei Guðmundar. Hann stóð á
meðan stætt var við sitt hlutskipti og
vel það. Færi betur að fleiri væru slik-
ir. Þökk sé honum fyrir það.
Mér er það sérstaklega i huga
hversu handtak Guðmundar var þétt
íslendingaþættir
Að kveðjustundu komið er,
það klökknar hugurinn.
Þinn lifsins vegur lokast hér.
Við lofum sigurinn.
Þú áttir jafnan heilan hug,
og hollust gafstu ráð.
Hjá þér fann enginn brest né bug
um baráttunnar láð.
Og börnin áttu öruggt skjól
og yl við barminn þinn.
Með litla hönd i hönd um hói
fór hollur ráðgjafinn.
Nú eru færðar þakkir þér
við þessa kveðjustund,
og minningarnar mætaát þér,
en móða byrgir sund.
Ó, Drottinn Guð, við þökkum þér,
sem þreyttum veittir fró.
Að njóta hvildarinnar er
hjá alföðurnum nóg.
Laugardaginn 23. ágústfylgdum viö,
ættingjar og vinir, Júliusi Jónssyni frá
Hitarnesi til grafar, en hann lézt að
heimilisinu 16.sama mánuð, þá nýlega
niræður, eða 23. júli 1975.
Er ég nú að leiðarlokum lit til baka
og rifja upp brot úr ævi hans, er úr
vöndu að ráða, svo margt væri hægt að
segja, en hér verður aðeins um smá-
brot að ræða.
Hans ætt og uppruna þekkja margir,
svo og hvaða persónu hann hafði að
geyma. Hann var ekki svona i dag og
öðruvisi á morgun, nei, hann lét sam-
og innilegt þar sem hann stóð á hlaðinu
og bauð gesti velkomna eöa árnaði
þeim fararheilla með sinni sterklegu
hönd og sérstöku áherzlu. Nú hefur
hann verið kvaddur hinztu kveðjunni.
Guðmundur var kvaddur af miklu
fjölmenni, sveitingum, vinum, frænd-
um og skylduliði i bezta veðri þriðju-
daginn 2. sept. sl. frá Reykholtskirkju.
Blessuð sé minning hans.
Guðjón Bj. Guðlaugsson
Kfstasundi 30.
tiðina ekki rugla sig i riminu. Hann
ávann sér lika traust samferðamanna
sinna með orðheldni sinni og heiðar-
leik, sem ekki brást, svo ég viti.
Minnist ég þess, að eitt sinn seldi
hann ungum manni hest, en leið hon-
um um greiðslu til ákveðins tima. En
það dróst nokkuð lengur en um var tal-
að, að peningarnir kæmu. Sendi hann
þá þessum unga viðskiptavini sinum
eftirfarandi visu. Hitti hún beint i
mark, þvi að greiðslan kom i næsta
pósti.
Visan er svona:
Það er brýnust bending min,
og ber þig sizt i vanda.
Láttu ei tinast loforð þin
lofaðu þeim að standa.
Þannig lét þessi mikli hugmaður lip-
urð og skynsemi ráða. Hann sáði
trausti og uppskar traust. Hér fór lika
mikill gæfumaður, sem byggði upp sitt
stóra heimili. Hann byrjaði með tvær
hendur tómar, en skilaði miklu dags-
verki i hendur næstu kynslóðar.
Mætti ég eiga ósk til handa afkom-
endum hans, þá yrði hún sú, að þeir
hefðu hann sér til fyrirmyndar i stund-
visi, reglusemi, heiðarleika og frjáls-
mannlegri íramkomu. Þá væri vel.
Nú ert þú þá kvaddur af fjölmörgum
vinum þinum og ættingjum með virð-
ing og þökk.
7