Íslendingaþættir Tímans - 15.05.1976, Síða 14
ábyrgðarstörf, sem hann um árabil
vann hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum i
Washington. Um þau mál tókst mér
aðeins að toga upp nokkur orð. Hann
sneri ræðunni jafnan aftur að raun-
hæfum vandamálum liðandi stundar.
Eg mun ávallt búa að árunum, sem
ég var i læri hjá Kristni. Og þar er ég
ekki einn. Hann þj^Ifaði og leiðbeindi
fjölmörgum ungum hagfræðingum I
Seölabankanum og miðlaði starfs-
bræðrum í öðrum stofnunum af þekk-
ingu sinni. Arfur hans er góður.
Kristinn Vignir Hallgrlmsson er
horfinn okkur. Eftir lifir minningin um
merkan Islending. Ég votta konu hans,
ungum börnum, öðrum ættingjum og
vinum einlæga samúð mlna.
Þráinn Eggertsson.
Kveðja frá félögum.
Avallt mun verða bjart yfir minn-
ingunni um hinn góða dreng, hdn verð-
ur aldrei frá okkur tekin. Kiddi var
vinsæll af öllum, sem til hans þekktu,
hvort heldur var aö störfum eða leik.
Hann var maður lifsgleðinnar og naut
llfsins,hvar sem hann var. Aræðinn og
úrræöagóður er tekist var á við vanda-
málin enda var honum gefin þolin-
mæði og þrautseigja i rikum mæli.
Ösérhllfnihansog hjálpsemi voru ef til
vill þeir eiginleikar hans, sem mest
máttu sln i daglegum önnum. Það var
þvi gott aö eiga Kidda að félaga og
vini. Sá félagsskapur hefur staðið allt
frá æsku og stendur enn. Það er
félagsskapur, sem við mátum meir
eftir þvl sem árin liöu.
Þó að Kiddi hafi verið dæmigerður
Reykvikingur naut hann þess I rikum
mæli að hverfa á vit náttúrunnar og
voru ef til vill bestu stundir hans
ferðalög og útivera. Hann var góður
laxveiðimaður og ófáar voru þær
stundir sem hann eyddi i hvlld og ró
með fjölskyldu sinni og tengdafólki að
Þúfukoti i Kjós.
Þeir, sem höfðu samskipti við Krist-
in V. Hallgrímsson, hagfræðing Seðla-
bankans, hafa við fráfall hans misst
mikið og þvi meir sem þau samskipti
voru nánari. Við félagar hans frá æsku
söknum vinar og sérstaks mannkosta-
manns, Aldraður faðir, sem naut þess
að fá drenginn sinn með börnin I heim-
sókn. Börnin hans ung sakna föðurins,
sem hafði svo mikið að gefa og eigin-
konan ástrlks og umhyggjusams
eiginmanns.
Við félagarnir vottum fjölskyldu
hans, eiginkonu og börnum, föður og
öllum ættingjum og vinum samúö okk-
ar og söknuð.
VIÐ fráfall Kristins Hallgrlmssonar
hefur orðið skarð fyrir skildi meðal
vina þeirra hjóna og I hópi islenzkra
hagfræðinga. Mestur er þó missir
eiginkonu hans og barna, sem svo
snögglega hafa verið svipt ástúð hans
og umhyggju.
Kynni okkar Kristins hófust árið
1966, er ég gerðist samstarfsmaður
hans við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn I
Washington D.C. Er hann stuttu siðar
kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni,
önnu Lorange, varð sú vinátta með
okkur hjónum, sem eflzthefur æ siðan.
A liönu sumri áttum við ásamt börnum
okkar minnisstæðar samverustundir
við veiðar og náttúruskoðun norður á
Ströndum, og var stefnt að endurtekn-
ingu þeirrar farar á sumri komanda.
En enginn ræður sinum næturstað.
í starfi sínu við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn og siðar sem hagfræðingúr
Seðlabanka tslands vann Kristinn sér
verðskuldað traust. Hann hafði afláð
sér góðrar menntunar i hagfræði við
háskóla vestan hafs og í Bretlandi og
gekk að störfum slnum með ábyrgðar-
tilfinningu, nákvæmni og vinnugleði.
Hans biðu mikil verkefni á sviði Is-
lenzkra efnahagsmála og mun hans
þvl mjög saknað af starfsbræðrum I
stétt hagfræðinga.
Orð mega sln litils við sviplegt frá-
fall eiginmanns og föður I blóma llfs-
ins. Fyrir höndfjölskyldu minnar, færi
ég Kristni þakkir fyrir samfylgdina og
bið eiginkonu hans og börnum blessun-
ar guðs.
Gunnar Tómasson.
Fáein minningarorð.
Kristinn Vignir Hallgrlmsson hag-
fræðingur fæddist I Reykjavik 2. janú-
ar 1934. sonur hjónanna Svanborgar
Siguröardóttur og Hallgríms Péturs-
sonar vélstjórá. A æskuárum áttihann
við nokkra vanheilsu að striða, sem
kann að hafa átt sinn þátt I, að hann
kaus sér fremur langskólanám en
önnur verkefni. Kristinn sótti nám I
Verzlunarskóla Islands og lauk
þaðan stúdentsprófi vorið 1955. Um
þær mundir munhann hafa verið tölu-
vert óráðinn um framhald, enda voru
fjárráð af skornum' skammti, en hug-
urinn stefndi helzt að námi erlendis.
Þá bar svo til, að honum bauðst náms-
styrkur i Bandarikjunum, og haustið
1955 hélt hann vestur um haf og hóf
hagfræðinám við College, þar sem
hann lauk B .A. prófi 1957. Þaðan lá svo
leiðhans austur um haf til framhalds-
náms I hinum kunna hagfræðiskóla
Breta, The London School of Eco-
nomicsandPolitical Science. Þar lauk
Kristinn meistaraprófi i hagfræði árið
1961. Að prófi loknu kom hann heim og
hóf störf i Seðlabankanum, en átti þar
skamma dvöl aðsinni og hvarf aftur til
Bandaríkjanna. Þar starfaði hann
nokkur ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um, og lágu þá leiðir hans víða á veg-
um þeirrar umfangsmiklu stofnunar.
Eftir nokkur ár hvarf hann þó heim á
ný og tók upp fyrri störf sln sem hag-
fræöingur hjá Seðl’abankanum árið
1969. Þar starfaöi Kristinn svo, unz
hann hneig niöur við störf sín meðvit-
undarlaus. Var hann fluttur á sjúkra-
hús, ar sem hann andaðist fáum dög-
um siðar, hinn 16. marz. Banameinið
var heilablæðing.
A slðari dvalarárum sinum 1 Ame-
14 íslendingaþættir