Íslendingaþættir Tímans - 21.08.1976, Blaðsíða 1

Íslendingaþættir Tímans - 21.08.1976, Blaðsíða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 21. ágúst 1976 — 28. tbl. 9. árg. Nr. 262. TIMANS Arnfríður Karlsdóttir Sólbakka á Húsavík F. 26. jlíni 1905 D. 7. júni 1976 Á öndverðum sólmánuði, þegar vor- ið og sumarið bera fegursta daga árs- ins við Skjálfanda saman á lyftum höndum um sæ og land, og sólvagninn ekur himinleiöina um lágnættið yfir Grimsey fyrir Gjögur og Tjörnes, kvaddi Arnfrlöur á Sólbakka og tók sér far til betri heims. Með henni hvarf af sjónarsviði okkar mikilhæf öndvegis- kona, sem bar birtu á veg allra, er kynntust henni, og var sinum nánustu gyðja sjálfrar lifshamingjunnar. A þessari kveðjustund lauk i senn bjartri lifssögu og langri þrautasögu, sem þó endaði við sigurmark. Lifssigri Arnfriðar á Sólbakka i harðleiknu sjúkdómsstriði áratugum saman, auönast aðeins fáu afreksfólki aö ná. Hún lézt á heimili Ingiriðar dóttur sinnar á Húsavik nær 71 árs að aldri. Otförin var gerð frá Húsavikurkirkju 12. júni að viöstöddu fjölmenni. Arnfriður Karlsdóttir fæddist i Túnsbergi á Húsavik 26. júni 1905. For- eldrar hennar voru hjónin Anna Maria Arnadóttir úr Mývatnssveit og Karl Einarsson, útgerðarmaður á Húsavik. Jónas, föðurfaðir Karls, var bróðir Sigriðar móður Þórhalls Bjarnasonar biskups. Anna og Karl i Túnsbergi voru vel metin myndarhjón. Auk Arnfriöar voru börn þeirra Þórhallur og Hansina, sem bæði eru á lifi á Húsa- vik. Karl I Túnsbergi —■ eins og hann var ætið nefndur — var annálaöur gerðarmaður og höfðingi I sjón og raun, enda setti hann með atgervi sinu verulegan svip á þennan vaxandi at- hafnabæ á fyrstu áratugum aldarinnar og var á efri árum kjörinn heiðurs- borgari Húsavikur. Karl byggöi sér fallegt og stórt hús'i bezta skjólreit bæjarins upp meö Búðaránni, og þar mótaði húsmóöirin heimili, sem orð fór af fyrir rausn og myndarbrag. Systkinin i Túnsbergi ól- ust þar upp við önn og aga I ástriki og mótuðust til manndóms. Arnfriður naut á barnsárum venju- legs skólanáms þeirra ára, en fór sið- an á kvennaskólann á Blönduósi um tvitugsaldur. En 26. júni 1927 giftist hún Þóri Friðgeirssyni frá Þórodds- stað, siðar gjaldkera Kaupfl. Þingey- inga og bókaveröi Bókasafns Þingey- inga á Húsavík. Fyrsta hjónabandsár- iöbjuggu þau á Þóroddsstað i Kinn, en 1928 fluttust þau til Húsavikur og sett- ust fyrst aö i Túnsbergi hjá Karli, en þá var Anna kona hans látin. Þar voru þau fimm ár, en keyptu þá húsið Sól- bakka, sem nú ber númerið 4 við Höfðaveg. Sólbakki var óvenjulega myndarlegt og vandað steinhús á þeirri tið, byggt af Guðmundi Guö- jónssyni, bilstjóra, sem þá fluttist brott frá Húsavik. Sólbakki stendur enn með sama myndarsvip á bakka- brúninni og hefur með góðri umhyggju haldið allri reisn sinni og staðizt tim- ans tönn betur en mörg önnur hús. Þar hefur heimili þeirra Arnfriðar og Þóris staöiö fulla fjóra áratugi, og með sanni mátt kalla það hamingjureit og rausnargarö, og fór það þó ekki var- hluta af áföllum lifsins. Arnfriöur og Þórir eignuðust sex börn. Tvö þeirra misstu þau. Fyrsta barnið, stúlka, dó við fæðingu, og dreng, Friögeir Karl, misstu þau á öðru ári 1939. Fjórar dætur þeirra eru á lifi og bera glögg manndómsmerki ættar sinnar og uppeldis. Anna Maria.f. 24. okt. 1929, stúdent frá M.A. 1951, gift Sigurði Sigfússyni, verkfræðingi, búsett i Reykjavik. Þau eiga þrjú börn. Anna er óvenjulega vel ritfær kona og hefur ritað, ort og þýtt margt, sem athygli hefur vakið. Kristbjörg Hildur, f. 31. jan. 1933, stúdent frá M.A. 1952, gift Inga Kristinssyni skólastjóra i Reykjavik. Þau eiga þrjú börn. Ragnheiður Grima, f. 2. júni 1939, gift Sigurði Friðrikssyni. Þau eru búsett i Keflavik og eiga tvö börn. Ingiriður.f. 4. ágúst 1945, gift Aðal- steini Skarphéöinssyni, húsgagna- smið. Þau eru búsett á Húsavik og eiga þrjú börn. Ég var svo lánsamur, er ég hóf kennslustörf á Húsavik 1939, að hljóta húsvist á Sólbakka hjá þeim Arnfriði og Þóri. Þar kynntist ég heimili, sem var sannkallaður kastali, ekki aö ytri virkjum heldur innri gerö. Ég naut þar ekki aðeins alúðar og frábærrar um- hyggju, heldur einnig sálufélags við heilsteypt og gott fólk. Þessi kynni og síðan skuggalausa vináttu viö Sól- bakkahjónin hef ég jafnan talið meðal beztu gjafa á lifsleiðinni. Arnfriður á Sólbakka var gædd mörgum hinum beztu eiginleikum. Hún var frið kona og gjörvuleg, búin góðum gáfum og styrkri og stilltri skapgerð. Hún var jafnan glöð og nær- gætin i öllum samskiptum viö aðra, og

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.