Íslendingaþættir Tímans - 08.07.1978, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 08.07.1978, Síða 5
Sigríður Gísladóttir húsfrú, Skálmarbæ F*dd 8. des. 1886 Ddin 21. júlí 1977 Höggvið er rjóður. Hnigin til jarðar sú eik sem lengst og styrkast stóð. E.B. Dessi orð Einars Benediktssonar komu d^dr ihugþegar ein af okkarmerku skaft- fellsku aldamótakonum hefur lokið langri ®vi sinnihérá jörð. Húnléztá St. Jóseps- sPitalanum i Hafnarfirði fimmtudaginn 21 • júlí. Sigriður var fædd i Gröf i Skaftártungu 8- desember 1886, dóttir þeirra merku ^rafarhjóna Þuriðar Eiriksdóttur frá Hlið og Gisla Gislasonar bónda i Gröf. Dau voru bræðrabörn að skyldleika. Duriður var dóttir Eiríks Jónssonar og ^onu hans Sigriðar Sveinsdóttur Pálsson- ar læknisi Vik. Gisli var sonur Gisla Jóns- ^nar eldri frá Hlið og seinni konu hans Hristinar Simonardóttur. Þau Grafarhjófi Duriður og Gisli eignuðust þrjár dætur. ^griðurvarelzt.Ragnhildi misstu þau tiu ra gamla. ölöf var yngst þeirra systra ■'dn giftist Jóhannesi Árnasyni og bjó eftir oreldra sina i Gröf, og er nú ekkja þar. 'griður ólst upp á mannmörgu heimili oreldra sinna. Þar var alltaf margt Vuinufólk. öllum sem voru í Gröf þtítti v®nt um Siggu, þvi öllum vildi hún góð vera. ^ þeim árum var stórt bú i Gröf að talið Var d þeim tima. Vandist Sigriður þvi Jdtt við öll störf, bæði úti og inni og ekki ‘Our voru henni útistörfin hugleikin. Föð- r hennar var ákaflega kært að hafa hana e& sér við alla skepnuhirðingu, enda ^0rn fljótt i ljós að hún var mikill dýravin- ’ sem siðar verður að vikið. ^ Sigriður var sérstaklega félagslynd, féla var einn af stofnendum ungmenna- gsins Bláfjalls, sem stofnað var árið I ‘ Grafarstofunni og var þar góður og s,erkúr félagi. Ég man hana vel á emrntisamkomum, er hún spilaði á okurn°n'*tuna ^r'r Hansi og dreif aur krakkana út á dansgólfið, hvað við eftn(Hr með henni. Ef til viU eigum við Um'r a& hitta hana afhir, er við flytj- °U hl mdðuna miklu, sem hún hefur er fe®ar farið á undan okkur. Ef svo fer, þnr vinu að fagna. Jón Þóröarson vrnu að fagna. Is|endingaþættir vorum henni þakklát eftirá, þvi þegar út i dansinn var komið þá var björninn unn- inn. Og eigi siður man ég hana á málfund- um ungmennafélagsins. Þar tók hún oft skörulega til máls. Einnar ræðu hennar minnist ég sérstaklega. Þar var þá til um- ræðu dýraverndunarmál, sem ung- mennafélögin beittu sér töluvert fyrir á þeim árum, þar hélt hún mikla og eftir- takanlega ræðu, sem ég tel að við unglingarnir höfum haft gott af að hlusta á. Liðan allra dýra var hennar hjartans mál. Sigriður var skarpgreind kona eins og hún átti kyn til, var skemmtileg i við- ræðum og hélt vel á sinum málstað, og oftast enduðu umræðurnar um kýr og hesta. Hún var mikil hestakona og sat vel hest, enda voru þá margir fallegir og góð- ir reiðhestar i Gröf. Hún átti þá mikið fal- legan og góðan reiðhest rauðblesóttan að lit, sem hún sat þá oft á. Arið 1911 giftist hún Vigfúsi Gestssyni eldrafrá Ljótarstöðum og fengu þá jörð- ina Skálmarbæ i Álftaveri til ábúðar, þá 25ára gömul. Þar átti hún eftir að eignast marga góða og fallega hesta og góðar kýr, þvi maður hennar var mikill hestamaður. Mun margur muna hann á Hervar sinum. Það var oft tekið til þess hvað Skálmar- bæjarhestarnir voru fallegir og vel með farnir, og þar eru fallegir og góðir reið- hestar enn. 1 'Skálmarbæ búnaðist þeim vel. þvi bæði voru dugleg. Urðu þau þar mjög vin- sæl. Gestrisni þeirra var við brugðið, var ekkerttil sparað að láta gestum vel liða. Þá var munað eftir hestum ferðamanna. Alltaf var Vigfús vel birgur af heyjum. Kom það sér oft vel fyrir ferðamenn, mun húsmóðirin þá oft hafa séstúti við að gæta að liðan hesta ferðamanna, hvort þeir hefðu nóghey á meðan'staðið var við eða ef henni fannst eitthvað athugavert við liðan þeirra. Þá var umhugsunin um aö reyna að bæta úr þvi, og var hún þá óspör á að finna að þvi sem henni fannst ábóta- vantfrá hendi eiganda, með ljúfmannlegu e$ ákveðnu fasi. Þar áttu dýrin sinn góða málsvara. Þau hjón eignuðust þrjá syni: Gisla fæddan 1912, Gest fæddan 1914 og Jafet Kristin fæddán 1922. Eftir Kötlugosið 1918,,er Skálmarbæjar- hraunin urðu óbyggileg, keypti Vigfús jörðina ásamt ábúðarjörð sinni. Skálmar- bæjarhraun voru þá búin að vera i byggð i 41 ár, fyrstur byggði þar Runólfur Gunn- steinsson 1858. Eftir það rak hann þar stórt bú á þeirra tima visu, þó við erfið- leika væri þar að etja, þar sem stórvatn skar i sundur jarðirnar, en þau voru bæði dugleg og unnu mikið, og eftir að synir þeirra komust upp,fór að hægjast um hjá þeim, þvi þeir voru snemma duglegir verkmenn. Oftast voru unglingar hjá þeim hjónum á sumrin, fleiri og færri, og alltaf sóttust þeir eftir að fá að koma aft- ur. Það sýnir að þar hefur þeim liðið vel, enda voru bæði hjónin sérstaklega lipur og góðviðbörn, ogsvomunþarennvera. Árið 1949 missti Sigriður mann sinn 69 ára að aldri. Það var henni þungt áfall. Hjónaband þeirra var sérstaklega far- sælt. En hún tók þvi með sinni sérstöku ró og festu. Eftir það bjó hún með sonum sin- um, sem voru henni sérstaklega góðir og eftirlátir og vildu allt fyrir hana gera. Eftir áttræðisaldur fór heilsa hennar að bila, og átti-hún þá mjög erfitt með fóta- vist, var þá oftast við rúmið. Það hef ég heyrthafteftir konu i Alftaveri, að þó hún hefði átt tiu dætur hefðu þær ekki getað hugsað betur um hana en synir hennar gerðu. Þaö var góður vitnisburður. Arið 1975 i desember var hún flutt frá heimili sinu á Borgarspitalann i Reykjavik þá orðin mjög lasburða ogsiðar á St. Jóseps- spi talann i Hafnarfirðiog þar dvaldi hún á annað ár, þar til kallið kom við sérstak- lega góða umhiröu og hjúkrun. Kærar þakkir eru þvi fólki hér með færðar fyrir það og öllum þeim sem á einn eða annan hátt sýndi henni vinsemd 1 hennar löngu legu. Og nú þegar ég er að ljúka þessum fátæklegu minningarorðum um mina 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.