Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Qupperneq 12

Íslendingaþættir Tímans - 08.09.1978, Qupperneq 12
Guðríður Jónsdóttir Hliðarendakoti F. 30. 11. 1882. D. 27. 7.1978. Vinina fornu hef ég hitt og hjörtun, sem ég þekki. Þverá tekur tiiniö mitt, tryggöinni nær hún ekki. Þessa visu skrifaöi Þorsteinn Erlings- son i vlsnabókina i Hliöarendakoti þegar hann kom þangaö heim eftir langar fjar- vistir, en kotiö sitt haföi hann gert lands- þekkt i ljóöinu, sem allir Islendingar kunna. — A þessum árum rann Þverá meöfram Fljótshliöinni og braut undir sig hiö gróna land, svo aö bæinn i Hliöarenda- koti þurfti eitt sinn aö flytja ofar I brekk- una. Núer fyrir löngu búiö aö veita Þverá frá Hliöinni og allt hefur þar breytzt nema Guöriöur i Hliöarendakoti, hún var i burstabænum sinum imynd óumbreyti- leikans i hálfa öld, tryggöina, höföings- skapinn og hetjulundina barhún meö sér til æviloka. Hún sýndist öldruö kona þegar viö kynntumst fyrir þrjátiu og fimm árum. Háriö var oröiö hvíttog hún var farin aö stiröna i spori. — Þaö sópaöi þó af henni. Persónuleikinn var mikiil og eftirminni- legur.Þaö fór ekkert á milli mála, aö hér fór kona stórrar geröar, en þó mild og móðurleg meö glettnisglampa i festuleg- um lifandi augum. Þegar hér varkomiö sögu haföi hún fyr- ir tveim árum misst manninn sinn, Arna Ólafsson, en þau hjónin höföu eignazt fimm friö og gjörvuleg börn. En sorgin sneiddi ekki hjá hennar heim- ili. Þrjú börn sin missti hún I blóma lifs- ins, GuörUnu, Ásdisi og einkasoninn, Pál. Tvær dætur hennar eru húsfreyjur I Reykjavik, Sigriöur og Ólafia (Lóa) og hjá henni og hennar manni dvaldi Guöriö- ur slöasta áratuginn aö mestu,þar sem vel var aö hnni búiö og hún borin á örmum af dætrum sinum, eins og hún oröaöi þaö sjálf. 1 2 Enginn sem naut gestrisninnar hennar Guöriöar I Hliöarendakoti gleymir henni. — Þjóövegurinn inn i Fljótshliðina lá lengst af fast viö bæinn hennar aö norðan inn I Hliöarbrekkurnar. Húsmóöirin I Hliöarendakoti vildi ekki aö fariö væri framhjá hennar garöi, án þess aö komiö væri I bæinn hennar og sjálf brá hún stór- um svip yfir rausnarleg veizluborö á viröulegan og hljóölegan máta. HUn hélt uppi þeim hætti aö skrifa vin- um sfnum sendibréf. Stilaöi þau vel og skipulega og ritaöi hreina og fagra rit- hönd. Milli llnanna mátti svo auk þess lesa fyrirbænirnar, fagra hugsun og ''gæzku. Guðríöur var fædd 30. nóvember 1882 aö Geröi i Hvammsveit i Dalasýslu. — Dvaldi ung um árabil að Broddanesi I Strandasýslu, en innan viö tvitugt fór hún til Reykjavikur og læröi þar fatasaum, siöan lá leiöin til Vestmannaeyja og hún giftist 18. júli' 1908,Arna Ólafssyni i Hlíö- arendakoti og I Fljótshliðinni bjuggu þau sæmdarhjónin allan sinn búskap. Guðriður I Hliöarendakoti fór ekki var- hluta af sorg og söknuöi. 1 bók bókanna stendur á einum staö: „Gull mótast I eldi, en guölegir menn i nauöum. Henni var léöur mikill hugarstyrkur og trúin var hennar leiöarstjarna og bjarg. Laugardaginn 5. ágúst var hún borin til grafar aö Hliöarenda i einu bezta veöri, sem komiö hefur á sumrinu. Fljótshliöin kvaddihana i iöjagrænum sumarklæöum. Þaö var fagurt aö horfa út til Eyja, þaö var einmitt þar sem unga stúlkan vestan úr Dölum og ungi efnismaöurinn Ur Fljótshllöinni sáust fyrst fyrir sjötlu ár- um. Sólin glampaöi á jökulinn I austri og Merkurnesiö blasti viö augum, dimm- grænt. Þetta veöur og þetta umhverfi var allt I fullu samræmi viö lif hennar og starf. Guðriöur i Hliöarendakoti horföi björtum augum á tilveruna og hugsaöi fyrst og fremst um þaö, sem gerir llfiö fegurra. Burstabærinn hennar I Hllöarendakoti varhennar höll, þar sem hjartarúmiö átti sér engin takmörk. — Þar var hún stórt sóiskinsbarn og þannig lifir hún I minn- ingunni. Pálmi Eyjólfsson. Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.