Íslendingaþættir Tímans - 18.08.1979, Side 2

Íslendingaþættir Tímans - 18.08.1979, Side 2
Kristján Benediktsson Hann vex upp í hliöum viö hóla og börö viö hreinsvala blæinn I ófrjórri jörö, en stendur þvi fastar og lifir þvi lengur og lætur ei buga sig hvernig sem gengur H.H. Oft er á íslandi talaö um aldamótmenn, en meö þvi er átt viö kynslóö þá er reis á legg um siöustu aldamót og fékk upp- eldisáhrif sln á fyrstu áratugum aldar- innar. Um þessar mundir var þjóö vor mjög aö rétta viö eftir siöasta haröindakafia 19. aldarinnar— 1881—1887. Skólum fjölgaöi, alþýöumenntun óx, Sjálfstæöisbaráttan var háð af hörku, eigin verzlunum lands- manna óx fiskur um hrygg og ungmenna- félagshreyfingin barst til landsins. Bjartar vonir fengu byr undir báöa vængi, rik löngun varö aö vinna aö hags- bótum á öllum sviöum og æskan hyllti kjöroröiö „Islandi allt”. Mun og mála sannast að mjög hafi gætt áhrifa þessar- ar kynslóðar I þjóölifi voru og framvindu þess, allt til siöustu ára. iýú hverfa meö hverju ári sem llður, nokkrir úr þessum hópi yfir móöuna miklu og brátt er hann allur. Einn af þessum aldamótamönnum var Kristján Benediktsson bóndi að Hæli i Torfalækjarhreppi en hann andaöist á Héraðshæli Húnvetninga 28. júni s.l. og var jarösunginn að Blönduósi 2. júli. Kristján var fæddur aö Hæli 2. mars 1901. Foreldrar hans voru Benedikt Bene- diktsson bóndi Hæli d. 1921 og kona hans Elisabet Guömundsdóttir d. 1962. Var þar um aö ræöa traustar húnvetnskar bænda- ættir með skagfirsku og eyfirsku Ivafi, Kristján var fjóröi ættliöur frá Kristjáni rika i Stóradal og bar nafn hans, hafa i þeim ættlegg margir kunnir menn veriö. Kristján ólst upp á Hæli i hópi 7 systk- ina, við sveitastörf þeirra tima. A þeim árum tók hviti dauðinn aö höggva skörö I raöir islensks æskufólks og fór hann ekki varhluta af þeirri viðureign, bar til ævi- loka ör á hálsi og höndum. Tvo fingur vinstri handar lét hann i þeirri orrustu og var aldrei verulega heilsusterkur eftir þaö. Um tvitugsaldur haföi Kristján unniö bug á sjúkdómi sinum aö hann taldi sér fært aö hleypa heimdraga og leita sér menntunar, innritaöist hann i Bændaskól- ann að Hólum haustiö 1922. Ekki var heilsan sterkari en svo, aö nám féll niöur næsta vetur — 23—24, en þá var þráðurinn tekinn upp aö nýju og prófi lokiö meö lof- legum vitnisburöi vorið 1925. Svo sem fyrr kemur fram, missti 2 Kristján fööur sinn vorið 1921. Móöir hans treystist eigi að halda áfram búskap og var jöröin seld. Þar var þvi aö engu aö hverfa og tók Kristján þá það ráð aö ger- ast umferðaplægingamaður. Er skemmst af að segja aö þaö starf stundaöi hann sem aðalvinnu þar til hann hóf búskap á Hæli 1931. Eftir það var hann oft við plægingar vor og haust þar til vélknúin tæki leystu hestavinnu af hólmi. Ekki batt Kristján sig eingöngu viö ætt- byggö sina um atvinnu. Leiðin lá noröur um land — Skagafjörð og Eyjafjörö allt til Hólsfjalla, en þar og viðar um Þingeyjar- þing stundaöi hann atvinnu sina lungann úr tveim sumrum. Nokkurri furðu sætir aö Kristján skyldi hefja þessa atvinnu, svo hamlaöur eftir viöureign sina viö hvita dauöann, en þar mun tvennt hafa tilkomiö, hneigö hans til hesta svo og löngun til aö vinna á erkió- vini Islensks landbúnaöar — þúfunum. En starf sitt stundaði hann með sóma, átti jafnan úrvalshesta enda veitti ekki af, þvi aðeins tveimur var beitt fyrir plóg- inn I senn. Þaö ætla ég mál manna aö þrátt fyrir fötlun sina hafi Kristján ekki skilað lakara dagsverki en þeir er fremstir fóru heilhendir. Vorið 1929 auönaöist Kristjáni aö festa sér Hæli til ábúöar, en þá var jöröin kom- in i eigu nágrannabónda er taldi sig vanta beit og tók þvi undan nokkurn hluta beiti- landsins, en á þeim tima voru aöalkostir Hælis góö útbeit. Um þessar mundir var Kristján einn sins liös og fóru þá aö Hæli á hans vegum sæmdarhjónin Björn Björnsson og Kristín Jónasdóttir, siöan búendur á Auökúlu og viöar. Stóöu þar aö baki kunnar hún- vetnskar bændaættir, sem of langt yröi að rekja hér, bjuggu þau aö Hæli næstu tvö ár. Kristján stundaöi atvinnu sina aö nokkru, heyjaöi fyrir fénað sinn og fjölg- aöi. Meöal barna þeirra hjóna var gjaf- vaxta mær Þorbjörg aö nafni. Þau Kristján felldu hugi saman og var þar stigið gæfuspor, sem entist ævilangt. Voriö 1931 hófu ungu hjónin búskap en undu litt aö vera leiglendingar og festu þvi kaup ábýlis sins áriö 1935. Þarna var um tvo kosti að velja: Alla jöröina eöa undan væri skilinn allvænn hluti beiti- lands og verömunur þvi verulegur. Kristján tók þann kosinn aö sleppa land- spildunni og var þaö mjög i samræmi við þann þátt skapgeröar hans aö fara hvergi framar en getan leyfði og standa ávallt I skilum, var hann þó kappsmaöur aö eölisfari. Húsakostur var oröinn hrörlegur á Hæli og nú var efnaö til umbóta. Þegar 1936 var bærinn byggöur upp aö hluta, ræktun aukin árlega og peningshús lagfærö eftir föngum. Húsfreyjan unga tók virkan þátt i öllum störfum og var samhent bónda sinum i' hvivetna, jafnframt stækkaöi fjöl- skyldan. Avallt var þess gætt aö fara hvergi framar fjárhagsgetu enda timarn- ir meö afbrigöum erfiöir. Eins og allir vita, sem þá voru vaxnir til vits og ára, stóöu yfir þrúgandi kreppu- timar á fjóröa áratug aldarinnar. Verslunarárferöi var afleitt, afuröir bænda litils viröi sem söluvara, auk þess geisaöi þá hin illræmda mæöiveiki sem hjó óbætanleg skörö i sauöbúin. Verðlag breyttist aö visu til batnaöar meö heims- styrjöldinni sem hófst 1939 og áhrifa Stéttarsambands bænda tók að gæta frá 1946, en fjárskipti fóru ekki fram fyrr en 1948 og tók aö sjálfsögöu nokkurn tima aö koma sauöbúunum I eölilegt horf, en það ár tók til starfa mjólkurvinnslustöö I hér- aöinu, birti þá framundan. Furöu sætir hvernig bændur fleyttust yfir þetta vandræðatimabil og raunar óskiljanlegt nútimamönnum. Má nærri geta um hag frumbýlinga, sem auk þess aö sjá stækkandi fjölskyldum farboöa stóöu i framkvæmdum. Arið 1954 var seinni hluti ibúöarhúss á Hæli byggður. Unga fóikiö reis á legg, reyndist efnilegt og áhugasamt, enn birti i lofti. Ariö 1960 hóf sonur þeirra hjóna, Kristján Heiöar, búskap á Hæli I sam- islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.