Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1983, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1983, Blaðsíða 5
 Hrólfur Ásvaldsson þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa átt Hrólf fyrir vin og starfsfélaga. Sendi ég Guðrúnu, börnunum, aidraðri móður Hrólfs og öðrum aðstandendum hugheilar samúð- arkveðjur. Starfsfólk Hagstofunnar kveður góðan félaga og samstarfsmann og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Högni T. ísleifsson t Að kynnast Hrólfi Ásvaldssyni var ein sú mesta lífsfylling sem hægt er að öðlast. Undirritaður varð þeirrar gæfu aðnjótandi, að vísu aðeins sl. 6-7 ár og aðallega vcgna starfa beggja, hans sem formanns Lyfjaverðlagsnefndar og ritarastarfs míns fyrir þá nefnd. Ég mun hér ekki fjalla um æviferil Hrólfs, enda veit ég að það mun gert af öðrum mér færari. Þau fátæklegu orð sem hér eru skrifuð eru fyrst og fremst ætluð sem þakkir til látins vinar og vinnufélaga fyrir samfylgd, sem varð alltof stutt. En enginn má sköpum renna og enginn veit raunar heldur hver verður næstur. Því ber ætíð að þakka það sem varð eða náðist; það er huggun harmi gegn þegar hið óviðráðanlega á í hlut. I iðu lífsins standa sem betur fer nokkrir einstakir menn eins og klettar upp úr straumnum vegna kosta sinna og Hrólfur heitinn tilheyrði einmitt þessari kjölfestu. Viðmót hans og starf einkenndist af réttsýni, skerpu, öryggi og óvcnju- legum vinnuhraða. Þessir eiginleikar komu hon- um að góðu haldi hvar sem var og ekki síst við starfið í Lyfjaverðlagsnefnd, sem hlýtur að teljast vandasamt og erfitt að mörgu leyti. í því efni tel ég hiklaust að enginn sæmilega skynsamur maður hafi nokkru sinni efast um réttsýni hans. Hrólfur var ntjög fróður og skemmtilegur maður, sem óhikað lét skoðanir sínar í ljós, stundum á afar litríkan hátt. Skerpan var líka svo geysileg; ég lield ég hafi aldrei átt styttri og hnitmiðaðri samtöl við nokkurn mann þcgar því var að skipta. Það þurfti heldur ekki að segja honum neitt tvisvar og siglingin milli aukaatriða og aðalatriða var honum leikur einn. Hrólfur var talsvert fatlaður líkamlega frá unglingsárum vegna lömunarveiki, en kjarkurinn og lífsgleðin báru þess samt engin marki. Síðustu fimtn árin barðist hann við krabbameinið, þennan meinvætt setn enn er illlæknanlegur þrátt fyrir þrotlaust erfiði færustu manna um allan hcim. Hrólfur háði hitdi þessa af mikilli karlmennsku eins og hans var von og vísa. Hygg ég því, að við sem til þekktum,'höfum alltaf ofmetið stöðuna í þeirri viðureign, jafnvel haldið lengst af, að um varanlegan bata vrð: að ræða. Eiginkonu. börnum og vcnsiaf ilki öllu flyt ég mína innilegustu samúð. lno;t kvcð ég með þökkum fyrir allt. Reynir Eyjólfsson islendingaþættir t Haustið 1945 var hópur glaðra unglinga santan kominn að héraðsskólanum á Laugum í Reykja- dal. Ætlunin var að afla sér mcnntunar á komandi vetri, og mörgum varð veran þar upphaf annatrar og meiri skólagöngu. Veður voru tíðum góð þetta haust og Reykjadalurinn skartaði haustlitum sínum fagurlega. Þegar skólastjórinn, séra Hermann Hjartarson. lýsti skólastarfi vctrarins fyrir okkur, lét hann þess getið, að skólinn væri að þessu sinni settur síðar en venjulega, og hann sagöi að við myndum vita ástæðuna. Lömunarveiki hefði gengið þar og í nærliggjandi sveitum, - og sagði hann; Hér, í næsta nágrenni skólans, veiktust tveir piltar alvarlega. Annar þessara pilta er dáinn núna, en hinn var fyrir skömmu tluttur suður til Reykjavík- ur, mikið lamaður. Sá bróðirinn sem lamaðist, en lifði þó, er Hrólfur Ásvaklsson, og það er hann, sem við erum að kveðja í dag með söknuði og trega. Það er sagt, að við sjáum lítið aftur, en ekkert fram. Þegar þessir atburðir gerðust, fyrir tæpum fjörutíu árum, var ég ekkert annaðen óþroskaður unglingur, enda datt mér það auðvitað sízt í hug þá, að ég ætti eftir að kynpast Hrólfi Ásvaldssyni eins lengi og náið og raun varð á. Þaö liðu sautján ár. Þá var það í desember 1962, fyrir réttum tuttugu árum, að leiðir okkar Hrólfs lágu saman hér suður í Reykjavík. Við bundumst þá nánum tengda- og vináttuböndum, sem hafa æ síðan orðið mér því dýrmætari scm lengra hefur Iiðið. Ég hef oft sagt, og get vel endurtekið það einu sinni enn hér, aö meí linnst ég fáum mönnum hafa kynnzt eins vel úr garði gerðum frá náttúrunnar hendi og Hrólfi Ásvaldssyni. • Gáfur hans voru óvenjumiklar og fjölbreyttar, og birtust meðal annars í geysilega yfirgripsmikilli þekkingu hans. Hann var forkunnargóður stærð- fræðingur, viðskiptafræðingur að mennt, tungu- málamaður ágætur og mikill unnandi fagurra bókmennta, enda prýðisvel ritfær sjálfur, eins og rn.a. sést á bók hans Auðnahjón, sem hann skrifaði til minningar um hjónin Hildi Benedikts- dóttur og Jón Pétursson á Auðnum í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Sú bók kom út haustið 1979. Auk annarrar ritleikni var Hrólfur einnig vel hagmæltur og hafði feiknarlegt yndi af góðum lausavísum. - Þegar minnst er á gáfur Hrólfs, koma mér, í hug ummæli þjóðkunns rithöfundar og menntamanns, er hann mælti við mig í fyrravetur. Hann hringdi heim til mín og spurði um líðan Hrólfs og síðan röbbuðum við saman stundarkorn. Þá sagði hann, og lagði þunga áhcrslu á orð sín: „Já Hrólfur er óvenju skemmtilega gáfaður maður." Þarna hitti þessi ágæti maður naglann á höfuðið, eins og svo oft endranær. Hrólfur var einmitt óvenju skemmti- lega gáfaður. Þrátt fyrir sérþekkingu sína - sent enginn dró í efa - var hann svo fjarri því sem hugasast gat að vera einskorðaður viö tiltekiö fræðasvið. Hann virtist vera alls staðar heima. Mér fannst oft, að eiginlega mætti einu gilda, úr hvaða átt maður kæmi að honum,skilningurinn var alltaf til staðar. En gáfur manna, þótt góðar séu, eru þó ekki nema einn þáttur af mörgum, sem skapa persónuna. Og hér er eftir að minnast á annan þátt, eigi síður gildan. í persónu Hrólfs Ásvalds- sonar. Það eru mannkostirnir. Hann var það, sem forfeður okkar kölluðu að vera drengur góður. Hann var einlægur, sannorður og vinfastur. Greiðugur var hann og hjálpfús svo að af bar, eigingirni var ekki til í fari hans. Það eru harðir kostir fyrir tápmikinn, hraustan og lífsglaðan mann að vera lamaður í fótum frá átján ára aldri. Þá raun bar Hrólfur með mikilli hugprýði. Þó varð honum það fyrir, um eitt skeið ævinnar, að gripa til þeirrar dægrastyttingar, cða eigum við heldur að segja svalalindar, sem engum er holl og allra síst í miklum mæli. Þetta mcga þeir lá . honum, sem telja sig þess um komna, en ekki tek ég undir það. Ég er ekki farinn að sjá, að ég og ýmsir aðrir hefðum staðið okkur ncitt betur, ef við hefðum verið í sporunum hans. En fyrst á þetta er minnst, þá má hitt ekki heldur gleymast, að einmitt á þessum vettvangi vann Hrólfur glæsilegan sigur, scm vakti aðdáun þeirra er til þekktu, og gæti verið mörgum manni þörf lexía. Nú, þcgar götur greinast um sinn, langar mig að þakka Hrólfi Ásvaldssyni mjög vel ánægjulega samfylgd, sem hefur nú staðið í full tuttugu ár. Við áttum að sönnu sitt heimilið hvor, en þó vorum við iðulega öll eins og ein fjölskylda, þó að nokkrar húslengdir væru reyndar á milli. Stórt skarð hefur nú verið höggvið í hópinn okkar, en sárastur harmur er kvcðinn að börnum Hrólfs og eiginkonu hans, Guðrúnu Sveinsdóttur, sem stóð við hlið hans af dæmafáu þreki, í langvarandi og þungbærum vcikindum, uns yfir lauk. Það er mikil hamingja að hafa fengið að kynnast slíkum manni sem Hrólfi, og minningin um hann, og sömuleiðis allt það sem ég lærði af honum, mun fylgja mér fram á veginn. Hins vegar finnst mér það í meira lagi hart aðgöngu, að hann skyldi ekki fá nema tæp 56 ár til ráðstöfunar hér í heimi. Lögmál lífs og dauða er strangt, cn lífsþrá mannsins og lífið sjálft eru þó sterkust alls. Síðasta kvöldið, sem Njáll á Bcrgþórshvoli lifði, sagði hann heimafólki sínu, að dauði sinn og annarra, sem létu þá líf sitt þar á bæ, myndi aðeins vcra „él eitt". Ég held, að hann hafi haft rétt fyrir sér. Og ef svo er, sem mig grunar, þá munum við Hrólfur hittast síðar, þegar röðin kemur að mér að flytja mig um sct í tilverunni. Ég hlakka til þeirra endurfunda. Valgeir Sigurðsson 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.