Íslendingaþættir Tímans - 02.03.1983, Side 1

Íslendingaþættir Tímans - 02.03.1983, Side 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Miðvikudagur 2. mars 1983 — 8. tbl. TÍMANS Sr. Kristján Bjarnason, fyrrv. sóknarprestur Reynivöllum Fæddur 25. júní 1914 Dáinn 20. febr. 1983 l’ann 20. febrúar síöastliðinn andaðist að heimili sínu í Kópavogi sr. Kristján Barnason. fyrrverandi sóknarprestur Reynivöllum í Kjós. Sr. Kristján var fæddur á Brún á Stokkseyri þann 25. júní 1914. Hann var sonur hjónanna Ólafíu Kristrúnar Magnúsdóttur frá Brún á Stokkseyri og Bjarna Benediktssonar frá Meðal- holtum í Flóa. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum. sem bjuggu í Mávahlíð við Reykjavík, en sem unglingurvarhann nokkursumuraðStekkum í Sandvíkurhreppi. Á vetrum stundaði hann nám og lauk stúdentsprófi 1938. Sama vor lauk hann einnig svcinsprófi í múrsmtði. Hann stundaði nám í rekstrarhagfræði við háskólann í Leipzig vetur- inn 1938-39. Lauk prófi í viðskiptafræðum við Háskóla íslands í scptcmber 1941. Cand. theol. frá Háskóla íslands 23. maí 1947. 1. júní sama ár var hann vígður prestur að Svalbarðsprestakalli í Þistilfirði og sat á Raufarhöfn til ársins 1950. að hann sótti um Revnivallaprcstakall í Kjós. og var honum veitt það 1. júní það ár. Árið 1943 kvæntist sr. Kristján eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Guðmundsdóttur úr Reykjavík. mikilhæfri mann- kostakonu. sem jafnan var hin styrka stoð við hlið manns síns. Þegar þau lijón komu aö Reyni- völlum. voru húsakvnni þar öll næsta léleg; en fljótlega réðust þau í uppbyggingu staðarins. með bvggingu nýs íbúöarhússEnnfremur voru öll fénaðarhús og hlöður byggðár upp á næstu árum. Þá var ræktun einnig stóraukin. þannig að nú eru stærstu túnin á einni jörð í sveitinni á Reyni- völlum. Jafnframt þessari uppbvggingu stækkaði búið. Það segir sig sjálft. að hér var það áhugi og athafnasemi prestshjónanna fyrir uppbyggingu og velferð, staðarins. sem réði ferðinni. Sjötti ára- tugur þessarar aldar mun liafa verið mestu framfara ár í sögu þessarar sveitar og lét sr. Kristján ekki sinn hlut eftir liggja eins og framar er greint. Ennfremur vann hann að fjölmörgum félags- og velferðarmálum sveitarinnar. Hann var einn af frumkvöðlum að stofnun Flutningafélags Kjósarhrepps og formaður þess og framkvæmda- stjóri mörg fyrstu árin. en þctta félag annaðist flutninga á mjólk og öðrum vörum úrog í sveitina. Var til þess tekið hversu rekstur þessa félags gekk vel um þessar mundir. Mörg fleiri störf voru sr. Kristjáni falin af sveitungum sínum: Hann var kjórinn í hreppsnefnd fyrir árin 1962-1974. jafn- framt átti hann sæti í skólancfnd sama tíma. í stjórn Veiðifélags Kjósarhrepps. í stjórn Sjúkra- samlags Kjósarhrepps mörg ár. Hann var í Karlakór Kjósverja og Karlakór Kjósarsýslu með- an þeir kórar störfuðu. Á heimili þeirra hjóna að Rcynivöllum var jafnan mjög gestkvæmt. má til marks um þaðgeta þess. að kirkjugestum var jafnan boðið til bæjar að veisluborði að aflokinni messugjörð. en þeim hjónum báðum var gestrisni í blóð borin. Frá þessum árum má minnast þess og þakka hve Guðrún vann mikið óeigingjarnt starf við að skreyta og snyrta kirkjuna að Reynivöllum fyrir allar messugjörðir og þó ekki síst á hátíðum. Þessi sem önnur störf vann hún af látleysi og með hógværð. þrátt fyrir annasamt húsmóðurstarf á stóru heimili. Þcini hjónum varð 8 barna auðið, en þau eru: Áslaug f. 3. maí 1945. gift indverskum manni hjúkrunarfræðingi að mennt. býr við London. Bjarni f. 26. júlí 1946, kvæntur Unni Jónsdóttur frá Vestmannacyjum. Þau búa á Þorláksstöðum í Kjós. Karl Magnús viðskipta- fræðingur f. 30. apríl 1948. Kvæntur Hclgu Einarsdóttur úr Hafnarfirði. Hann vinnur hjá Kópavogskaupstað og býr þar. Halldór f. 31. janúar 1950, kvæntur Guðrúnu Kristinsdóttur úr Rcykjavík. Þau búa í Stíflisdal í Þingvallasveit. Kristrún f. 22. októbcr 1958, gift Axcl Snorrasyni, prcntara. Þau búa í Rcykjavík. Valdimar f. 10. nóvcmbcr 1955. Hann er kvæntur nýsjálenskri konu og cr sölumaður þar í landi. Guðmundur, bankastarfsmaður f. 14. ágúst 1957. kvæntur Jónínu Ólscn. Þau búa í Kópavogi. Sigurður f. 9. júlí 1959, kvæntur Halldóru Gísladóttur. Þau búa á Víðivöllum í Skagafirði. Árið 1975 lét sr. Kristján af prestsskap og flutti fjölskyldan í Kópavog, og hafa þau búið þar síðan. Synir hans tvcir höfðu þá tekið við búskap á Rcynivöllum, Bjarni við kúabúinu fyrir nokkr- um árum og Halldór við fjárbúinu. Að lciðarlokum vil ég þakka sr. Kristjáni fyrir samstarf okkar í hrcppsncfnd Kjósarhrcpps um árabil og fyrir öll þau störf, sem hann innti af hendi fyrir þessa sveit. Ég og kona mín sendum Guðrúnu og börnum þeirra hjóna, tengdabörnum og barnabörnum dýpstu samúðarkveðjur. Magnús Sæmundsson. Peir sem skrifa minningar- eða afmælis- greinar í íslendinga þætti, eru vins amlegas t beðnir um að skila vélrituðum handritum

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.