Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Síða 8
ú.
ric
EE
Sesselja Jörundardóttir
Fædd 28. september 1897
Dáin 15. janúar 1983
Foreldrar hennar voru Jörundur bóndi og
sjómaður á Birnhöfða á Akranesi Hákonarson
bónda á Birnhöfða, Jörundarsonar bónda á
Klafastöðum í Innra-Akraneshreppi Guðmunds-
sonar og seinni kona hans Halldóra Guðmunds-
dóttir bónda í Hlíð í Snóksdal Hannessonar. Fyrri
kona Jörundar var Sesselja Guðrún Bjarnadóttir.
Börn þeirra voru Vilborg, fædd 1890, dáin
kornung og Salvör, fædd 1893, og er nú ein á lífi
af börnum Jörundar. Börn Jörundar og Halldóru
voru: Sesselja fædd 28. september 1897, Sigurrós
fædd 18. júlí 1900 og Hákon fæddur 22. október
1903. Þau eru nú öll látin, en eiga afkomendur.
Sesselja ólst upp með foreldrum sínum, og var
hjá þeim fram yfir tvítugt, meðan þau lifðu, við
öll þau störf sem til féllu úti og inni, smala fé og
tóvinnu, einkum vefnað. Eftir að þau féllu frá,
vann hún í Borgarfirði, mest við vefnað, fram til
1929 að hún fór að stunda fiskverkun og síldar-
söltun á Siglufirði, og fluttist um það leyti til
Reykjavíkur. Eftir 1940 vann hún við iðnað og
upp úr 1950 vann hún við hreingerningar í
Búnaðarbankanum svo lengi sem heilsa og kraftar
leyfðu. Síðustu árin var hún þrotin að kröftum og
sjónin mjög tæp. Féll henni þá þungt að geta ekki
unnið.
Sesselja var létt á fæti og kvik í hreyfingum,
mjög dugleg og vandvirk, að hverju sem hún
gekk. Hún vildi ekki vera öðrum háð, var
sjálfstæð í skoðunum, hreinlynd og nokkuð
stórlynd. Hún sóttist ekki eftir að vingast við aðra,
en var vinur vina sinna. Hún hafði ánægju af að
skoða landið sitt. Mér er kunnugt um yfir 30
ferðir, eins dags til 14 daga ferðir. um byggðir og
óbyggðir sem hún fór, skemmtilegar og fróðlegar
ferðir, sem hún minntist síðar með ánægju. Hún
var bókelsk og las allmikið meðan sjónin entist,
og átti nokkurt bókasafn.
Sesselja eignaðist ekki bónda né börn, en segja
má að allir fatlaðir hafi verið börn hennar. Hún
gaf Sjálfsbjörg,landssambandi fatlaðra oft pen-
inga, eftir að sá félagsskapur fór að byggja yfir
starfsemi sína, og til að byggja sundlaugina í
Sjálfsbjargarhúsinu í Hátúni 12, á árunum 1979
og 1980, og ýmsir söfnuðu til, gaf hún meira en
nokkur annar einstaklingur. Og svo artleiddi hún
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra að eftirlátnum
eigum sínum.
Vertu sæl Sesselja. Góðar vættir fylgi þér.
Eiríkur Einarsson.
Bjarni
skipherra
Fæddur 7. maí 1930
Dáinn 9. febr. 1983
Kveðja frá móður
Níslir hjartað sorgin sára
sól til viðar gengin er
Ævidagar framhjá flognir
feigðin markar stefnu hér
Gegnum sortannleiftur lýsa
leið sem ekki neinum bregst
Hinsta sinn t höfgum dvala
höfuð þitt á koddann legst
Pú varst minnar ástaróður
augasteinn og geisli hlýr
Hjá vöggu þinni sat ég sonur
söng um lífsins œvintýr
Lítill kúlur lék í varpa
leit með spurn um grœna jörð
Þá var bjart í Brautarholti
bjart um allan Dýrafjörð
Er seinna kaldir sviptivindar
sárast léku hjarta mitt
Þá var ósköp gott að geta
grátið upp við brjóstið þitt
Þú varst okkar stoð og styrkur
studdir þá sem kjarkinn brast
8
Ólafur Helgason,
Því ber margur sáran sefa
sorg að dyrum knúði fasl
Þín mynd er geymd í móðurhjarta
og minningin sem aldrei dvín
Yfir dauðans banaboða
bjartur náðargeisli skín
Sofðu vært þó sorgin lami
safnar vonin nýjum þrótt
Breiði drottinn blessun sína
á beð þinn vinur - góða nótt.
(Elías Þórarinsson)
í minningu Bjarna Helgasonar
Kveðja frá sysfrum
Nú er nökkvinn í naustu,
nóttin köld og dimm,
svanurinn fagri í sárum
sorg nístir huga minn.
Drýpur dögg af sleinum
í dal fyrir vestan.
Hniginn að moldu af meinum,
maður er vissum við bestan.
Guð gefur og tekur
Guð huggar og grœðir.
Lyftum huganum og hœrra
er hryggð okkur mœðir.
Höll rís yfir liöllu
starir á móti sólu,
stýrir í drottins nafni.
A.H.
(Andrea Helgadóftir)
íslendingaþaettir