Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Qupperneq 9
Hrefna Jóhannesdóttir
frá Hróðnýjarstöðum
Fædd 8. nóveinbcr 1912
Dáin 11. febrúar 1983.
Um Laxárdalsheiði liggur þjóðleiðin milli
Nörður- og Vesturlands aö fornu og nvju. Til
hliðar við þráðbcinan akvcg, nútímans liggja
grónar götur tortíöarinnar. þær gcyma sþor lið-
inna kynslóða. scm um heiðina fóru á öllum
árstímutn, löngu fyrir upphaf bíla-aldar. Scm cg
rita þcssar línur, sc cg fyrir mcr þcssa vcgfarcndur
löngu liðins tíma. Þar cru ckki allir jafn vcl að
heiman búnir og það stendur misjafnlcga á
fcrðum þeirra. Þarna cru vcrmcnn úr Norðurlandi
á leið út undir Jökul. þcgar þcir fara aftur um
heiðina aö aflokinni vcrtíð mát vcra að cinhvcrja
vanti í hópinn. Gildur bóndi úr Laxárdalnum cr á
leið til Borðcyrar í kaupstaðarfcrð. áðurcn dagur
cr allur ntun hann aftur kominn til síns hcima.
Ættfaðir minn úr Dölunum. scm þarna cr á fcrö
með konu sína og tvær barnungar dætur. á lengri
lcið fyrir höndum. Hann er að fara norður. þar
scm Amcríkuskipið bíður. ..Margar leiðir liggja
um hcim" scgir í fallcgu kvæði, scm hér veröur
ekki rakið frckar. og hið sama má segja um
heiðina. Um liana liggja þcir gagnvcgir. scm talað
cr um í Háv<jmálum og ævinlcga vcrða milli vina.
Hrútafjörður og Laxárdalur cru þær byggöir. scm
næst liggja hciðinni að norðan og vestan, Hrút-
firðingar og Laxdælitigar hafa löngum kunnaó vcl
að rækja vináttu og frændscmi hvorir við aðra.
Sú kona. scm þcssi minningarorð cru hclguð.
átti æsku sína og uppvaxtarár í Hrútafirði. í
fyllingu tímans fluttist hún mcð bónda sínum
vcstur yfir heiði og gcrðist húsfreyja á föðurlcifð
hans í Laxárdal. Upp frá þeim tíma átti hún sér
tvær heimabyggðir og rækti vel skvldur sínar við
báðar.
Hrcfna Jóhannesdóttir var fædd í Hrafnadal í
Hrútafirði 8. nóvcmbcr. 1912. Voru forcldrar
hennar Jóhannes Jónsson bóndi þar og kona hans
Guörún Þorsteinsdóttir í Hrafnadal Hclgasonar.
Forcldrar Jóhanncsar voru Jón Olafsson. scm
kallaður var læknir. á Hornsstöðjum t Laxárdal
og kona lians Kristbjörg Bcrgþórsdóttir frá
Lcikskálum í Haukadal Þorvarðssonar. Hrcfna
'ar cinkadóttir forcldra sinna og mun hún liafa
'erið hjá þcim í Hrafnadal fram vfir tvítugt. Hinn
-’lk mars 1935 gckk hún að eiga Þorkcl Einarsson
Irá Hróðnýjarstöðum í Laxárdal. cn hann hafði
þá búið að Kollsá í Hrútafiröi frá 1927. Fyrri kona
hans var Guðrún Valgerður Tómasdóttir t'rá
Kollsá Jónssonar cn hún lcst árið 193(1. tæplega 35
‘>ra að aldri. Fyrstu tvö hjúskaparár sín bjuggu
Lorkell og Hrcfna að Kollsá cn fluttust þá að
Hróðnýjarstöðum í Laxárdal. þarscm þau bjuggu
allt til; írsins 1967. að Þorkcll brá búi. þá hniginn
á efri ár. Eftir það áttu þau heima í Búðardal.
horkell lést n, novcmocr. l9/-t. cn fæddur var
hann 22. dcscmbcr 1889. Hrefna andaöist á
Sjúkrahúsi Akrancss 11. fcbrúars.l.
Hin unga kona úr Hrútaíiröinum. scm á
íslendingaþættir
vordögum 1937 fluttist vcstur yfir Laxárdalsheiöi,
átti cftir að ficra mikla giftu í bú bónda síns. scm
nú tók við forráðum á föðurlcifð sinni aö Hróð-
nýjarstöðum. Dóttur hans ungri frá fyrra hjóna-
bandi gekk hún í móðurstað. Foreldrar hans báðir
áttu síðustu æviár sín í skjóli hennar. svo og
forcldrarhcnnar. Var á orði haft, hvcrsu nærgætin
þau lijón voru við þctta aldurhnigna fólk. Einar á
Hróðnýjarstöðum. faöir Þorkels. dó 7. febrúar
1958 og skorti þá aðeins nokkrar vikur i tírætt.
Hélt hann góöri heilsu til hinstu stundar. Viö scm
konium rcglulcga á hcimilið síöustu árin. scm
hann lifði. hljótum að minnast þcss sérstaka og
kærleiksríka andrúmslofts scm umkringdi þcnnan
aldna höfðingja. Ekki mun á neinn hallað þótt
lullyrt sc. að hér átti húsmóðirin á hcimilinu.
Hrcfna Jóhanncsdóttir. drýgstan hlut að máli. Lét
og Einar oft á sér heyra. hvcrsu mikils hann mat
tengdadóttur sína.
Tvíburasysturnar Erna Inga og Hugrún Björk.
dætur Hrcfnu og Þorkels. voru afa sínum mikið
augnavndi og vörpuðu birtu á spor hans síðustu
æviárin. Er ntcr cnn í minni. hvcrnig athafnir
þeirra og ævintýri urðu honum efni í ótejandi
skemmtilegar frásagnir. Á því heimili féllust
æskan ogellin í faðma mcðcftirminnilcgum hætti.
I Laxárdalnum fór orð af því að á Hróðnýjar-
stöðum væri fagur hcimilisbragur. Börn Einars og
Ingiríðar. sem upp komust. voru níu. Þetta var
listrænt og söngvið fólk og nokkrir í hópnum
kunnu vcl að leika á hljóðfæri. cinkum Kristján
scm lcngi varorganlcikari við Hjarðarholtskirkju.
I skemmtilcgri rímu. sem Jóhannes skáld úr
Kötlum flutti Einari tcngdafööursínum níræðum.
cr þcssi fallcga vísa:
Hýggjun i þeim liýni bte
hufði við sig einhvern blæ,
sein ég altlrei ofnn fte
iipplifuð um jörð og ste.
Hrcfna Jóhannesdóttir féll vcl inn í þctta fagra
umhverfi. Það kom í hcnnar hlut að taka við
arlinum frá gainla Hróðnýjarstaðahcimilinu,
varðvcita hann og cfla um nokkra tugi ára og skila
honum síðan áfram til næstu kynslóðár. Því
aðcins tókst henni þcttasvo vcl scm raun barvitni,
aö í skaphöfn hcnnar sjálfrar var að finna ýmsa
hina bcstu þætti, sem þessi arflcifö var reist á. Þar
má til ncfna létta lund. Ijúft viömót og mikla
gcstrisni. cn cinkum og scr í lagi mikið æðruleysi
á alvörustundum lífsins, Hrcfna batt mikla tryggö
viö Hróðnýjarstaöi. Aðcins nokkrum dögum fyrir
andlát sitt fór hún þangað mcð dóttur sinni í
síöustu hcimsóknina - að hitta góða vini, sem nú
byggja þann bæ.
Hvcrs konar þjóölcgur fróðlcikur var Hrcfnu
mjög huglcikinn. Hún varættfróömcðafbrigðum,
vcl að sér í skáldskap og kunni mikið af lausavís-
um. Minnist ég nú með þakklæti margra ánægju-
lcgra samvcrustunda. þcgar þcssi hugöarcfni
hcnnar bar á góma. Minni hennar var frábært og
segja mér Hrútfirðingar að þctta góða minni sé
ættarfylgja úr Hrafnadal. Hrcfna haföi mikiðyndi
af ferðalögum og þó að þrálátur öndunarsjúkdóm-
ur bagaði hana hin síðari ár, lét hún slíkt ckki aftra
sér frá að hleypa hcimdraganum. Auk margra
fcrða innanlands fór hún þrjár fcrðir til útlanda á
allra síöustu árum.
Þau Hrcfna og Þorkell voru cinkar samhcnt um
alla hluti. Sama létta lundin hjá báðum, gcstrisnin
cin og söm, sama hlýja viðmótið, þcgar vini og
vandamcnn bar aö garði. Minnumst við nú að
lciðarlokum margra ánægjulcgra samvcrustunda
á hcimilum þeirra að Hróðnýjarstöðum og í
Búðardal.
Þorkcli og Hrcfnu féll mikið barnalán í skaut.
Eftir að hún var orðin ekkja var þaö kannske
mcsta glcði hennar að sjá frændgarðinn cflast og
vaxa. Eins og áður var gctið cignuöust þau hjón
tvíburadætur. Þærcru:
Erna Inga, gift Haraldi Árnasyni sýsluskrifara í
Búðardal. eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn.
Hugrún Björk, gift Jökli Sigurðssyni, kcnnara og
bónda að Vatni í Haukadal. ciga þau 4 börn.
Dóttur Þorkcls af fyrra hjónabandi, Valdísi
Guðrúnu -reyndist Hrcfna scm besta móðir - scm
og Valdís hcnni sern bcsta dóttir. Maöur Valdísar
er Haraldur Guðmundsson, bifrciðarstjóri hjá
Stjórnarráðinu í Rcykjavík og ciga þau eina
dóttur barna.
Laugardaginn 19. fcbrúar s.l. voru jaróiícskar
lcifar Hrcfnu Jóhanncsdóttur færðar til hinstu
hvílu frá Hjarðarholtskirkju í Laxárdal. Eins og
lífshamingjan bcið hennar handan Laxárdalsheið-
ar fyrir hálfri öld. svo mcgi íriður Drottins bíða
hcnnar handan þcirra lciða, scm hún nú heíur
fyrir stafní. Börnúnt hcnnar og öllum öðrum
ættingjum scndum við Inga innilcgar samúðar-
kvcðjur.
Sigurður Markússun
9