Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Qupperneq 13

Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Qupperneq 13
Sjötugur Daníel Ágústínusson aðalbókari, Akranesi Það var veturinn 1934, að útvarpað var kvöld- vöku frá Héraðsskólanum á Laugarvatni. Héraðs- skólarnir voru þá umdeildir, ekki hvað sízt Laugarvatnsskólinn. Á kvöldvöku þessari flutti ungur Eyrbekkingur ræðu með þeim ágætum, að hún vakti mikla eftirtekt þeirra sem á hlýddu. Þessi á ungi ræðumaður er sjötugur í dag, Daníel Ágústínusson, aðalbókari við bæjarfógetaem- bættið á Akranesi. Hann erfæddur að Eyrarbakka 18. marz 1913. Foreldrar han's voru hjónin Ágústínus Daníelsson, bóndi í Steinskoti.og ingi- leif Eyjólfsd. Daníel lauk námi frá Héraðsskólan- um á Laugarvatni 1934 og kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1936. Þá tók hans samfelldi starfsdagur við. sem óslitið hefur staðið síðan. mcð sérstökum ágætum. þó ekki hafi hann farið eftir einum og sama farvcgi. Daníel gerðist kennari við Héraðsskólann að Núpi í eitt ár 1936- 37. Næst varð hann kennari við barna- og unglingaskóla í Stykkishólmi og Gagnfræðiskóla Austurbæjar 1947- 54.Daníel reyndist laginn ogduglegur kennari, sem nemend- ur náðu góðum námsárangri hjá, almennt virtu þeir hann og mátu. Þegar Daníel hætti kennslu í Stykkishólmi 1939 er hann ráðinn erindreki Fram- sóknarflokksins. Hann var fyrsti maðurinn, sem ráðinn var til þcssti trúnaðarstarfs hjá Frámsóknar- flokknum. Hann starfaði að málefnum flokksins af sama áhuga og heiöarlcika. sem einkcnnt hafa störf hans alla tíð. hlífði sér hvergi við ferðalög né annað, er starfi hans fylgdi. Þó skoðanir væru skiptar á stundum innan flokksins um menn og málefni, þá túlkaði Daníel í þeim atriðum það sem hann taldi réttast. og flokknum fyrir beztu og vann sem erindreki Framsóknarflokknum óvenju mikið starf. Hann kynntist flokksmönnum um allt land og hefur yfirleitt notið trausts þeirra og virðingar síðan. Eitt af þcim nýmælum, sem Daníel kom í framkvæmd, var fræðslunámskeið um stjórnmál. Ég var einn þeirra, sem naut þeirrar kennslu. sem framfór á námskeiði þess og minnist ég þeirra stunda með þakklæti og gleði. Eg mun hér ekki gcra frekari grein fyrir störfum hans sem erindreka flokksins. Árið 1954 verða alger þáttaskil í lífi Daníels. þá hættir hann kennslustörfum algerlega og gcrist hæjarstjóri á Akranesi. Hann flytur þangað með fjölskyldu sína og hefur verið þar búsettur síðan. Það var okkur samherjum og vinum Daníels Ijóst. að þar biðu hans mörg og vandasöm verkefni. Hins vegar kviðum við því ekki , að dugnaður hans mundi ekki duga til að koma þeim í tramkvæmd. enda rcyndist þaö svo. Stærsta verkefnið. sem framkvæmt var þá á Akranesi. var hafnargcrðin. Fram að þeim tíma hafði höfnin á Akranesi veriðopin. þannigaðekki 'ar skjól í höfninni fyrir flotann í stórviðrum. Með hafnargerð þeirri. sem framkvæmd var á árunum 1955- 56. var höfninni lokað. Framkvæmdin þá var stefnumarkandi og þær framkvæmdir. sem íslendingaþættir síðar hafa verið gerðar í höfninni og ennþá eru í framkvæmd eru frjimhald þessarar framkvæmdar í samræmi við stækkun flotans og þess takmarks, að hahn væri í skjóli þó úti fyrir væri rok og stórsjóar. I þessum áfanga hafnarframkvæmdar var bvggð scmentsbryggja og bátabryggjan. A þessum árum var lögð vatnsveita úr Hafnar- fjalli til Akranesskaupstaðar, sem ennþá er búið við, en cndurbætur hafa verið gerðar sérstaklega er varðar hreinsun. Gagnfræðaskóli Akrancss var upphaflega reist- ur á bæjarstjóraárum Daníels, svo og starfs- mannahús sjúkrahússins og einhver viðbót við það. Ennfremur voru að sjálfsögðu lagðar nýjar götur vegna fólksfjölgunar í bænum. þó ekki væri þá farið að stcypa þær fyrr en síðar. Það sem einkenndi störf Daniels sem bæjar- stjóra var traust og reglusemi í stjórn fjármála bæjarins. Ekki ætla ég mér að halda því fram, að Daníel hafi reynzt öllum öðrum fremri í* rcglusemi og aðgæzlu í fjármálastjórn. Ég hefi hins vegar fyrir mér álit gagnmerks manns, sem þekkir vel til starfs hans á þessum sviðum. Hann hefur sagt í mín cyru og fleiri. að engan þekkti hann fremri Daníels um aðgætni og reglusemi í stjórn fjármála á vegum bæjarfélagsins slík fyrirmvnd hafi hún verið. Þcgar Daníel gerðist bæjarstjóri á Akranesi, hafði Alþýðuflokkurinn forustu fyrir bæjarstjórn- ar meirihlutanum eða þrjá fulltrúa af 5 og 405 atkvæði. Framsóknarflokkurinn hafði aðeinseinn fulltrúa og fæst atkvæði eða 172, Alþýðubandalag- ið hafði einnig einn fulltrúa í bæjarstjórninni en eitthvað fleiri atkvæði. Við vinir og samherjar Daníels höfðum nokkrar áhyggjur af því, að hans pólistíski styrkleiki skyldi ekki vera meiri í bæjarstjórn Akraness en raun varö á. Ekki vcröur annað talið, en samkomulag mpirihlutans hafi gengið snuðrulaust fyrstu Danícls sem bæjarstjóra, cn á því varö breyting. Árið 1959 um vorið urðu Alþingiskosningar, þær síðustu í gömlu kjördæmunum. Þá hætti hinn vinsæli þingskörungur Pétur Ottesen þing- mennsku sinni eftir ein fjörutíu og þrjú ár. Eftirmaður Péturs í framboði fyrir Sjálfstæðis- flokkinn var Jón Árnason, útgerðarmaður á Akranesi, vclmetinn og vinsæll maður, sem átti eftir að reynast farsæll þingmaöur. Hann hlaut kosningu með 880 atkvæðum. Hins vegar hlaut frambjóðandi Framsóknarflokksins, Daníel Ág- ústínusson, 846 atkvæði. Ekki orkar það tvímælis að þessi koningasigur Daníels vakti mikla athygli og sýndi hvað dugnaö- ur hans samvizkusemi í starfi og hyggindi höfðu skapað honurn mikið traust, þó ckki nægði það honum til sigurs. Hins vegar haföi hlutur Álþýðuflokksins rcynzt rýrari í þessari kosningu en gcrt hafði verið ráð fyrir. í haustkosningu 1959 var Daníel í þriðja sæti á lista Framsóknarflokksins í Vesturlandskjör- dæmi. Fyrsti varaþingmaður Framsóknarflokksins á Vesturlandi var hann árin 1959- 78 og sat alls sex sinnum á Alþingi. Vcrt er að vckja athygli á því, að þótt Daníel skipaði aljdrei ncma varaþings- sæti þrátt fyrir sinn dugnað og hæfileika, _var hann og cr cnnþá liinn sami flokksmaður, scin alltaf lagði flokknum það lið, er hann kunni bezt. Fyrir hans sönnu og drengilcgu framkomu í stuðningi sínum við Framsóknarflokkinn og fram- bjóðendur hans á Vesturlandi færi ég honurn sérstakar þakkir. Stjórnmálaþátttaka Danícls með framboði í Borgarfirði og síðar á Vesturlandi varð til þess, að samstarfið um bæjarstjórastarfið á Akranesi rofn- aði og Daníel var sagt upp bæjárstjórastarfinu fvrirvaralaust síðsumars 1960. Kratar mynduðu þá meirihluta mcð Sjálfstæðisflokknum. í þessari grein ætla ég ekki að rcka það mál frekar, en vek þó athygli á tve'nnu. Engin sök var framborin á hcndur Daníel. Þó hann viki úr sæti bæjárstjóra samdægurs sannaði það til viðbótar því, sem áður cr framtekið, hvað festa og reglusemi í fjármáia- stjórn hans var traust, að ekkcrt skyldi þar finnanlcgt, sem hatt var að hengja á. Ég minni einnig á fund þann, sem haldinn var á Akranesi afþessu tilefni. Þaðvakti athygli mína, hvað fundurinn var fjölmennur. hófsamur og rólegur. Sérstaka athygli vakti ró og festa í ræðu Daníels, hún var slík, að hún gleymist ekki. Þrátt fyrir þetta áfall, sat Daníel rólegur í störfum á Akranesi. Hann gerðist nú aðalbókari hjá bæjarfógcta 1961 og hefur gengt því starfi síðan með ágætum. Hann gcrðist bæjarfulltrúi 1962 og bæjarráðsmaður samtímis. Hefur hann gegnt því til bæjarstjórnarkosninga síðastliðins 13

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.