Íslendingaþættir Tímans - 13.04.1983, Blaðsíða 8
60 ára
Þráinn Valdimarsson
Amerískur rithöfundur, er uppi var á 18. öld og
W. Irwing hét, sagði svo: „Stórhuga menn eiga sér
markmið, aðrir óskir. Erfiðleikarnir buga slævðar
og lítilsigldar sálir, en stórhugar menn sigrast á
þeim''.
Þráinn Valdimarsson er einn af þeim fáu
mönnum, sem ég álít að hafi átt sér markmið og
hafi unnið sleitulaust að þeim, þann tíma sem
hann var framkvæmdastjóri Framsóknarflokks-
ins. Þegar hvað vcrst hefur gengið hefur að jöfnu
verið að mæta stórhuga manni. er ekki hefur látið
erfiðleika stundarinnar buga sig. Fyrir stjórnmála-
flokk ríður á miklu að málsverjendur hans séu
traustir og sterkir og láti ci bifast frekar en klettar
í hafi. cr standa af sér bálviðri sjávar. Það mæðir
meir á manni í þeirri stöðu er Þráinn hefur gegnt
svo vel um áratugi, en í nokkru öðru starfi er ég
þekki til. Að vera sannur til orðs ogæðiser háleitt
og stórt gæðamerki á hverjum þeim er slíkt fá í
einkunn um starf sitt. Ég hefi haft dálæti á likingu
Snorra Sturlusonar þegar hann talar um drengi
góða og batnandi. Þannig hygg ég að vinur minn
Þráinn Valdimarsson sé. Hann er drengur góður
ogbatnandi.
Þráinn er fæddur 9. janúar 1923 á Ástólf -
stöðum. Gnúpverjabæjarhreppi. Samskipti okkar
hafa á liðnum árum verið mér til ánægju og gagns.
Starf það sem Þráinn hafði með höndum var erfitt
og ekki eftirsóknarvert. v
Ég hygg að ekki í nokkru starfi þurfi menn eins
að geta siglt byr beggja og vera í reynd manna
sættir á hverju sem dynur. Dyr Þráins hafa ávalt
verið opnar öllúm til hjálpar. því til lians komu
hin ólíkustu rhál til úrlausnar. Þráinn getur því
með sanni sagt: „Ég er rhaður og tel mér ekkert
mannlegt óviðkomandi".
íslendingasögúr okkar fjalla mest um hetjur
bæði góðar og slæmar. Margir af sögufrægustu
görpum sögunnar voru jafn fimir með vopn sem í
orðakasti við náifnga á þingum. sumir af þessum
mönnum þóttu öðrunt mönnum meiri af sjálfum
sér eins og t.d. Njáll á Bergþórshvoli og Hrútur
bróðir Höskuldar föðurbróðir Hallgerðar þeirrar
er gift var hetjunni Gunnari Hámundarsyni frá
Hlíðarenda. Um þá Njál og Hrút var sagt að þá væri
gott að sækja heim til hinna stærri ráða enda munu
þeir hafa átt lausn við flestum málum er upp
komu. Þráinn Valdimarsson hefur um langan
tíma orðið að vera viskubrunnur flokksbræðra
sinna og vina í hinum ólíkustu málum, þannig að
margur hefur frá honum glaðari í bragði farið, en
þegar hann kom.
Þráinn minn. þessi kveðja til þín kemurseint og
óvænt og þó mest fyrir mig, þar sem eg ætlaði ekki
að trúa því að þú værir orðinn scxtugur, en
lífsgleði þín og söngur hafa blekkt fleiri en mig.
En nú er vorið að koma og „Vér förum gegnum
skógargöng við glaðan fuglasöng við skógar hlýja
hlé sem hvíld oss lét í té". Þú ert svo ungur. en þó
ríkur af reynslu lífsins. sem svo margir keppast við
að fanga en tekjan svo misgóð. Ég veit að við starfi
þínu tók vaxandi drengur og músíkalskur líka, en
ég er ekki viss um að hann nái að hrífa reiðar og
daprar.sálir á sama hátt og þú. Þegar við „Látum
sönginh hvellan hljóma. helgum honum þetta
kvöld, látum hreinar raddir róma rituð orð á
söguspjöld; dýrast gaf oss djásn í heim. drottning
lista söngsins hreins". Þráinn minn. þér og þínum
góða förunauti Elise Árc óska ég alls hins besta í
framtíðinni og bið þann sem öllu ræður að vera
þér og þínum um ókominn tíma förunautur.
Krisján B. Þúrarinsson.
60 ára
Hörður Helgason
■ Enskur stjórnmálamaður R. Pccl scm var
uppi á 19. öld sagði „það tekur þrjár kynslóðir að
skapa heiðursmann". 27. mars 1923 leit einn
slíkur Ijós dagsins vestur á ísafirði. Hörður
Helgason fyllir í dag sjötta tug ævi sinnar. Ég hygg
að þessir sex tugir hafi verið á margan hátt
viðburðaríkir í lífi Harðar. Hann setti sér 13 ára
gamall markmið sem hann hefur svo síðan fylgt
eftir án þess að víkja nokkru sinni út af stefnunni.
Markmið Harðar var að starfa fyrir íslensku
þjóðina að utanríkismálum. Hann varð stúdent
-frá Menntaskólanum á Akureyri 1943. Þaðan lá
svo leiðin til frekara náms, er tryggði honum sem
besta þekkingu á hcimsmálum-cins og þau gerðust
þá er hann kom sprenglærður frá námi í utanríkis-
þjónustuna 1948.
Hörður er nú sendiherra íslands í New York.
þar sem hann gætir þess að hagsrríundir íslands á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna séu ekki fyrir borð
bornir. Ég er þeirrar skoðunar að öll markmið séu
merkileg, svo framarlega sem mönnum takist að
fylgja þeim eftir. Hæfileikar Harðar til að umgang-
ast fólk eru með þeim ágætum að ég get ekki látið
hjá líða að geta þeirra að nokkru.
Þegar hann var í M.A. var hann hrókur alls
fagnaðar hvortt sem var við íþróttir eða annan
leik. Hann lét sig ekki muna um að spila fótbolta
renna sér á skíðum eða taka að sér helstu hlutverk
í leikritum t.d lék hann Frænku Charlcs í því
ágæta verki og tókst mjög vel að skila því eins og
öðru sem hann gerir.
Ég veit ekki hvort minn ágæti vinur og fyrrum
húsbóndi les nokkru sinni þessar línur. en mér er
oft hlátur í huga þegar þú. Hörður. ert að
undirbúa laxveiðiferðir þínar strax um áramót.
þú ert sjálfsagt þegar byrjaður að líta flugurnar
þínar hvru auga eins og svo margt annað fallegt
sem ber fyrir augu í þessari veröld.
Kæri vinur ég vona að heilladísir vorsins verði
þér og Söru alltaf fvlgispakar hvert sem leið ykkar
liggur út í hinum stóra heimi. Ég veit að ég tala
fvrir munn alls starfsfólksins í utanríkisráðuneyt-
inu þegar ég tek mér í munn orð enska vísinda-
mannsins J. Lubbock „Allir vita að glaður vinur
er eins og sólskinsdagur. sem stráir birtur allt í
kringum sig. og það er á færi okkar flestra að gera
þennan heim ýmist að höll eða fangelsi". Ég vona
því að höfundur tilverunnar megi gera alla da^a
vkkar Söru konu þinnar. að sólskinsdögum. Ég
hlakka til að sjá ykkur í sumar og ég veit ég þarf
ekki að minna ykkur á að koma með veiðidótið.
Kristján B. Þórarinsson.