Íslendingaþættir Tímans - 26.05.1983, Page 1

Íslendingaþættir Tímans - 26.05.1983, Page 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Fimmtudagur 26. mai 1983 — 19. tbl. TIMANS Guðrún Lilja Jóhannesdóttir Borðeyri Fædd 3. október 1912 Dáin 11. maí 1983 Guðrún Lilja Jóhannesdóttir var fædd og uppal- in í Skálholtsvík í Hrútafirði. Foreldrar hennar voru þau hjónin Sigríður Pórðardóttir frá Stóru Hvalsá og Jóhannes Jónsson, Skálholtsvík. Ólst Guðrún upp hjá þeim í stórum systkina hópi. Ung að árum fór hún að heiman til að vinna fyrir sér, eins og það nefndist í þá daga. Minntist hún stundum dvalarstaða sinna. Sem unglingur í Saurbæ í Dalasýslu, kaupakona í Eyjafirði og við ýmis störf í Reykjavík og víðar. Guðrún fluttist síðan alkomin heim í sitt hérað. Árið 1940 tekur hún að sér ráðskonustarf hjá Sæmundi Guðjónssyni Borðeyrarbæ. Hann hafði misst konu sína frá fimm börnum og surnum ungum og þar dvelur hún næstu árin. Árið 1947 hófu þau búskap á Borðeyri, Bryn- jólfur elsti sonur Sæmundar á Borðeyrarbæ og Guðrún. Þau hjónin dvelja þar öll sín samvistarár, eða þar til húsmóðirin veikist í byrjun árs 1981. Þau Gunna Jóh. og Binni, eins og þau voru nefnd heima og heiman eignuðust þrjár dætur: Dagmar húsmóðir á Kjörseyri. Hún er gift Georg Jóni Jónssyni og eiga þau átta börn. Jóhanna húsmóðir í Skálholtsvík. Gift Svein- birni Jónssyni og eiga þau þrjú börn. Jóna Pált'na búsett í Reykjavík. Gift Gylfa Þór Helgasyni og þau eiga tvö börn. Atvikin höguðu því þannig, að ég sem þessar línur rita, fluttist til Borðeyrar sama vorið og þau hjónin og þar áttum við samleið um 33ja ára tímabil. Fljótlega réðist Binni sem bílstjóri hjá Kaupfé- Hgi Hrútfirðinga og starfar þar enn sem slíkur. Þá höfðu þau hjónin búskap, í smáum stíl, fyrstu árin sér til stuðnings. Heimili þeirra hjóna veit ég er fjölmörgum minnisstætt fyrir mikla gestrisni. Gunna Jóh. tók á móti gestum og gangandi af hispursleysi og hlýleika og bauð þeim til eldhúss að jafnaði. Fólk fann sig velkomið í hennar húsum. Margoft hjálpaði hún mér og tók til skemmri eða lengri tíma fólk í fæði, serh var á vegum kaupfélagsins. Þetta var nánast ómetan’.egur stuðningur við mitt starf. Einnig er fjölmargs annars að minnast í samskiptum okkar og heimila Heggja, er yljar sem minning liðins tíma. Heimili þeirra hjóna var mjög tengt kaupfélag- lnu, sem að ofan greinir og einnig vegna starfs húsbóndans, en hann tók að sér fjölmörg úr- lausnarefni, sem langferðabílstjóri, fyrir fólk á félagssvæði kaupfélagsins. Mörg voru skilaboðin sem Gunna Jóh. tók á móti og margur pakkinn. Enda var konan ósérhlífin og stór í starfi hvers- dagsins með vilja þess sem vinnugleði þekkir. Heimamenn á Borðeyri lögðu oft leið sína heim til Gunnu Jóh. sér til tilbreytingar. Tylltu sér niður til að spjalla. Ef til vill til að víkja hversdagsleikan- um burt, sem kann að hafa sótt á sinnið. Skiptst var á skoðunum og var fólk ekki alltaf sammála. Ekki var húsmóðurinni að skapi að víkja frá sínu máli, teldi hún sig hafa rétt að mæla. Gunna Jóh. var dýravinur og hafði alltaf dýr allan sinn búskap. Hún talaði við dýrin enda hændust þau að henni. Hugleikin er mér æðarkollan, sem þáði reglulega mat frá henni, á fjörukampinum fyrir sunnan húsið hennar. Væri húsmóðirin of sein með matinn þá gekk kollan yfir götuna og fast að dyrum hússins. Veturinn kom og sjóinn tók að leggja. Skörin færðist utar og utar með hverjum deginum, sem veður var kyrrt og frost á. Æðarkollan kom gangandi eftir ísnum morgun eftir morgun um langan veg. Þáði velgjörðir. Leit sínum dökku djúpu augum til vinkonu sinnar. Gekk sömu leið til baka, áleiðis á auðan sjó, virðuleg en lítið eitt vaggandi í spori. Síðar varð húsavegurinn henni of langur. Um vorið þegar ísa leysti var fagnaðar- fundur í fjörukampinum fyrir sunnan húsið. Þessi minning, samspil örfárra þátta náttúrunnar í bland við vináttu og tryggð gefur þeim sem nýtur sanna gleði og lífinu gildi. Faðir minn dvaldi einn um árabil. Til að gera honum bærilegri og jafnframt að skapa honum nokkurt öryggi var lagður „sími“ frá hans bæ til Gunnu og Binna, enda stutt á milli. Á hverju kveldi mun gamli maðurinn hafa hringt og alltaf var tími aflögu til að spjalla. Einn af kostum góðra manna er aðstoð við lítilmagnann. Þau hjónin áttu sér gott heimili, sem einkennd- ist af miklu starfi, vinnugleði og góðvild. Börnin ólust upp í öryggi og góðu umhverfi. Síðar komu barnabörnit) í heimsókn eða til stuttrar dvalar. Á sjúkdómstíma sínum dvaldi Guðrún lengst af á sjúkrahúsum. Kom heim til sín stöku sinnum til stuttrar dvalar í senn. Hún var styrk í mótlæti og hófsöm í gleði. Eg minnist hennar með virðingu og þökk. Votta Brynjólfi vini mínum, börnum þeirra hjóna og barnabörnum og öðrum aðstandendum samúð, Jónas Einarsson. t Elskuleg systir okkar hefir kvatt þetta jarðlíf. Það kom okkur ekki á óvart því að hún leið Iangvarandi veikindi síðastliðin ár, og var þungt haldin. Alltaf kemur dauðinn samt í opna skjöldu, og þá finnst okkur oft að við höfum ekki verið ástvini okkar eins mikið og við hefðum óskað. Guðrún systir okkar var gift Brynjólfi Sæ- mundssyni á Borðeyri, þau áttu þrjár efnilegar dætur. Sú elsta, Dagmar, er gift Georg Jóni Jónssyni bónda á Kjörseyri, ogeiga þau átta börn. Þá er Jóhanna Guðrún, gift Sveinbirni Jónssyni bónda í Skálholtsvík, og eiga þau þrjú börn. Sú yngsta Jóna Pálína, er gift Gyfla Þóri Helgasyni, kaupmanni og eiga þau tvö börn. Eiginmaðurinn og dæturnar og tengdasynirnir gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að létta systur okkar veikindastríðið og stóðu eins og hetjur við hlið hennar unz yfir lauk. Það sem okkur er efst í huga að leiðarlokum er hin hressandi glaðværð sem alltaf fylgdi Gunnu hvar sem fór, og entist henni til hinstu stundar. Svo var gestrisni þeirra hjóna, þau voru aldrei glaðari en þegar fullt var af gestum, og var þá veitt af rausn. Oft nutum við systkinin og makar okkar yndisstunda á þeirra góða heimili, fyrir það þökkum við öll. Við biðjum góðan guð að milda sorg ástvinanna sem hafa svo mikið misst, en minningin lifir í hjörtum okkar og huggar okkur öll. Guð blessi þig systir, og þökk fyrir allt. Systkinin frá Skálholtsvik

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.