Íslendingaþættir Tímans - 06.07.1983, Qupperneq 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Miðvikudagur 6. júli 1983 — 25. tbl. TÍMANS
Þrjár systur
Fríða Ingimundardóttir,
Klúku í Bjarnarfirði
F*dd 22. nóv. 1908
Dáin 1. júní 1983
Sína Karólína Ingimundardóttir
Fædd 29. ágúst 1923
Dáin 24. apríl 1977
Sína Vilhelmína Svanborg
Ingimundardóttir
Fædd 19. júlí 1913
Dáin 12. desember 1948
Fríða Ingimundardnttir. Sína Karolína Ingimundardóttir. Sína Vilhelmína Svanborg Ingimundardóttir
Laugardaginn 11. júní 1983 fór fram frá
Kaldrananeskirkju útför Fríðu systur minnar, að
viðstöddu miklu fjölmenni þrátt fyrir veðurhörku.
Fríða var fædd í Reykjavík 22. nóv. 1908 og var
sjöunda barn foreldra okkar, og það fyrsta er náði
fullorðinsaldri.
Foreldrar okkar voru þau Svanshólshjón, Ólöf
Ingimundardóttir (af Tröllatunguætt) og Ingi-
mundur Jónsson, afkomandi Páls-ættar. Foreldrar
okkar voru lengst af leiguliðar og afgjöld jarðar-
'nnar greidd í smjöri. Við Fríða kynntumst því á
unga aldri að passa kvíær að sumrinu. Venjulega
fram undir Goðdalshyrnu, skammt frá landa-
merkjunum. Goðdalssmalarnir voru á næstu
grösum og samskipti við þá hin ánægjulegustu við
landamerkjatjörnina hjá Sjónarhólnum. Petta var
áður en vísindaglaðir fræðingar grunuðu mjólkur-
afurðir um óhollustu fyrir gott mannlíf.
Fríða ólst upp við venjuleg sveitarstörf. Ólöt til
allra verka. Ávallt létt í spori og kvik að hverju
sem hún gekk fram á efri ár. Yngri systkini hennar
voru:
Ingimundur fv. bóndi á Svanshóli.
S.V. Svanborg húsmóðir í Goðdal - látin.
Guðjón kennari á Sauðárkróki.
Sigríður iðnverkakona Akureyri.
Arngrímur J. bóndi í Odda.
Sína K. iðnverkakona Akureyri - látin.
Þessum yngri systkinum sínum var hún fyrir-
mynd og forsjá. Þeim er þetta ritar var hún aðal
kennarinn í þeim fræðum er krafist var til
fermingaraldurs. Átti sjálf auðvelt með nám og
góður skrifari til dauðadags.
Á 16. ári missti hún föður sinn, eða 21. mars
1924. Heimilinu vann hún þar til eigin búskapar
var stofnað.
31. mars 1930 gekk hún að eiga Sigurð Arn-
grímsson frá Reykjavík, en þau voru bræðrabörn.
Framhald á bls. 2
EE