Íslendingaþættir Tímans - 13.07.1983, Qupperneq 4
Óskar Árni Blomsterberg
Fæddur 17. október 1954
Dáinn 1. junúar 1983
Ég var harmi slegin þegar mér bárust fregnir að
morgni nýársdags að Óskar væri dáinn. Hann sem
hafði verið með okkur á nýársnótt ásamt unnustu
sinni svo hress og kátur.
En enginn veit sinn næturstað. Ég var búin að
þekkja Óskar síðan sumarið 1968, og vorum við
góðir vinir. Unglingar sem ræddum lífið fram og
aftur. Síðan giftist bróðir minn systur hans og því
hélst vinskapur okkar alltaf. Óskar var ætíð
glaðvær og mikill hressleiki stafaði frá honum,
hann var vinur vina sinna. Hestar voru hans
áhugamál, þess vegna var heimili hans fyrir utan
bæinn, til að hann gæti haft dýrin sín hjá sér.
Með þessum fáu orðum vil ég kveðja þennan
kæra vin, við hittumst öll einhvern tíma handan
móðunnar miklu. megi Guðstyrkja foreldra hans,
unnustu, systkini og litlu dóttur hans í þeirra
miklu sorg. Fari hann í friði. Friður Guðs blessi
hann.
Auðhjörg Kristvinsdóttir
+
Það er erfitt að hugsa til þess og þurfa að sætta
sig við það að hann Óskar bróðir okkar sé horfinn.
þau hjónin keyptu verslun að Grettisgötu 64 við
Barónsstíg. Verslunin var ekki stór en vann sér
fljótt vinsældir. Páll var góður sölumaður. kurteis
og lipur en aldrei ágengur, áreiðanlegur í öllum
viðskiptum og greiddi öll innkaup út í hönd. Þau
Sólveig ráku verslunina af sérstakri natni og
eljusemi í 14 ár fram til ársins 1980. að heilsa Páls
tók að bila.
Börn Páls og Sólveigar eru þrjú:
Kolbeinn. f. 11.10. 1953. útvarpsvirki með langa
reynslu í þjónustu við fiskiskip vegna fiskleitar- og
siglingatækja. Kolbeinn er einnig mikill áhuga-
maður um óbyggðafcrðir. jafnt um vetur sem
sumur.
Málfríður, f. 7.12. 1956, kennari við Hlíðaskóla í
Reykjavík, gift Björgólfi Jóhannssyni, viðskipta-
fræðingi.
Steinunn. f. 21.5. 1962. stúdent við nám í
Frakklandi
Hjálpsemi Páls við nánustu ættingja var einstök.
og heimili þeirra Sólveigar stóð þeim ætíð opið.
ef þeir þurftu að dveljast hér í borginni. Þegar
áföll urðu í fjölskyldunni, voru þau hjónin fljót á ,
vettvang með gjafir og búin til hjálpar. Umhyggja ’
þeirra fyrir böndum fjölskyldunnar lýsti sér einnig
vel í jólaboðum, sem þau héldu systkinum sínum.
bömum þeirra og barnabörnum hvert ár og hafa
verið fastur þáttur í jólahaldinu, þar sem ungir og
gamlir hittust. Á þennan hátt endurgalt Páll þá
umhyggju og hjálpsemi, sem hann naut á Selja-
landi í æsku. Það er mikill missir að Páli en bjart
yfir minningu hans líkt og deginum, þegar hann
fæddist. Sárastur e'r missirinn fyrir Sólveigu og
börnin. Þeim vottum við innilega samúð.
Sveinbjörn Björnsson
Treganum og sorginni verður ekki lýst með
orðum. Hlátur hans heyrist ekki lengur, en hann
ómar þó í hjörtum okkar. Hann var blíður, góður
og tryggur bróðir. Það er ekki öllum gefið að eiga
Ijúfa sál og hreint hjarta. Aldrei fór hann fram á
neitt í stað gerða sinna. Hann var ánægðastur með
eitt þakklætisbros í staðinn. Við systkinin sem
eftir erum hugsum margt núna. Allar bernsku-
minningarnar að leika sér saman, gráta, hlæja,
tuskast og rífast, tala saman, allt var þetta hluti af
því að vera systkini, þroskast, stækka og lifa.
Sorgin mun sitja lengi í hjörtum okkar við
bróðurmissinn. Eilífar hugsanir hrannast upp í
hugum okkar.
Af hverju hann? Af hverju hann?
Það eina sem við getum sætt okkur við, er að
við munum hittast aftur. þó síðar verði.
Við elskuðum Óskar og minning hans á ávallt
fastan bústað í hjörtum okkar. Hann verður alltaf
sami stóri fallegi Óskar.
Við biðjum bróður okkar guðs blessunar og
biðjum guð að láta engla sína standa vörð við hans
næturstað.
Hans systkini,
Emma, Hansi, Biggi og Setta
+
Föstudaginn 7. janúar 1983 fór fram útför
ÓskarsÁrnai Blomsterberg frá Dómkirkjunni,
en hann lézt með sviplegum hætti á nýársnótt sl.
Óskar Árni fæddist 17. október 1954 í Reykja-
vík, næstelstur fimm systkina, þeirra Emmu (f.
18.04. '50) giftri Ótnari Kristvinssyni. (f.09.05'50),
Hans (f. 18.03.'549, ókvæntur. Birgis (f.08.11'60)
kvæntum Bryndísi Jónsdóttur (f.04.03'61) og
Sesselju (f.29.09'63), ógiftri heimasætu.
Hann var skírður í höfuðið á afa sínuin, Óskari
Árnasyni (f. 12.10 1894) er um nálega hálfrar
aldar skeið var stýrimaður og skipstjóri á togurum,
en dvelst nú á DAS í hárri elli.
Foreldrar Óskars, Níels Maríus Blomsterberg,
kjötiðnaðarmaður. (f. 15.01.77) og María Þór-
hildur Óskarsdóttir, (f.18.06,’31), hafa búið allan
sinn búskap hér í Reykjavík og nálega tvo sl.
áratugi að Lambastekk 2 í Breiðholti.
í foreldrahúsum óx Óskar upp ásamt systkinum
sínum, glöðum og kátum hópi, umvafinn umhyg-
gju foreldra, svo og afa „nafna’" og ömmum,
Sesselju Þórðardóttur (f. 11.12. 1892, d. 1972)
Annelise Blomsterberg (f.02.11.1906), er ósjald-
an litu til með hópnum.
Að loknu skyldunámi og gagnfræðanámi í
Lindargötuskóla hófst leitin að lífsstarfi og framan
af vann hann ýmiss konar verslunar- og skrifstofu-
ustörf hér í borg, en að fáum árum liðnum fluttist
hann til Akureyrar og fékkst þar við fiskverzlun
um 2ja ára skeið unz hann fluttist aftur heim til
föðurhúsa til að aðstoða föður sinn við kjötiðnað-
arfyrirtæki er hann þá hafði stofnað og vann hann
þar æ síðan sem hægri hönd föður síns við öll störf
sem leysa þurfti og gekk ötullega fram í hverju því
verki sem hann tók sér fyrir hendur og þótti
honum jafnan sjálfsagt a.ð taka að sér erfiðustu
'verkefnin er að höndum bar.
Hann var öllum bóngóður og var Ijúft að gera
mönnum greiða og þeri voru því að vonum ófáir
er leituðu til hans um fyrirgreiðslu eða aðstoð í
smáu og stóru. Vina-og kunningjahópurinn var
því stór og í þeim hópi var hann ætíð hrókur alls
fagnaðar.
Fyrir rúmlega ári stofnaði hann eigið heimili að
Hátúni við Rauðavatn með unnustu sinni, Þórdísi
Sigfúsdóttur (f.03.06 1964), Sigfúsar Sveinssonar,
bátasmiðs í Kópavogi og konu hans Hrafnhildar
Þórarinsdóttur, ásamt lítilli 2ja ára fósturdóttur.
Þórhildi Björk.
Brúðkaup þeirra átti að fara fram í nóvember
sl. en vegna jólanna og af ýmsum ástæðum hafði
því verið frestað fram yfir áramót.
Á unglingsárum sínum hafði Óskar eignast litla
dóttur, Sonju Björk, með æskuvinkonu sinni,
Ingunni Sigurgeirsdóttur, (f.25.12. 1957), en þótt
leiðir þeirra hafj eigi legið saman var ætíð með
þeim og hennar fjölskyldu mikil og góð vinátta og
mjög kært með feðginunum.
Óskar var alla tíð mikill náttúruunnandi og
dýravinur. enda hændust að honum öll dýr og
hans mesta yndi var að vera með þessum vinum
sínum úti í guðs grænni náttúrunni. er hann unni
svo mjög. Hann gat því aldrei unað sér við að búa
neins staðar þar sem ekki voru aðstæður til að hafa
dýr á heimilinu og var því alsæll að Hátúni við
Rauðavatn með hesta sína. hunda og kanínur.
Hann var alla jafnan glaðsinna og lífsgleðin
geislaði frá honum er hann var á ferð með
ferfætlingum og vinum sínum. Ef til vill var það
þessi lífsgleði. hjálpsemi og starfsþáttur í allri
umgengni við menn og málleysingja og allt
sköpunarverk almættisins sem olli því að hann var
ávallt trúr og uyggur sinni barnatrú, sem iðulega
kom glögglega fram er slík mál bar á góma. Þar
átti hann sína vissu von er aldrei hvikaði í neinu.
4
íslendingaþættir