Íslendingaþættir Tímans - 13.07.1983, Side 7
Helgi Kristjánsson,
bóndi i Leirhöfn
Fæddur 28. dcs. 1894.
Dáinn 17. sept. 1982.
Kveðja frá Búnaðarsambandi Norður-Þingey-
inga.
Á nýliðnum haustdögum lést á sjúkrahúsinu á
Húsavík merkismaðurinn Helgi Kristjánsson eftir
fárra daga Iegu, næstum 88 ára að aldri.
Hann varyngsturbarna Kristjáns Þorgrímsson-
ar, sem lengi bjó í Leirhöfn á Melrakkasléttu.
Síðari kona Kristjáns var Helga Sæmundsdóttir,
er átti með honum sex sonu, sem alla með tölu
mátti kalla hina merku Leirhafnarbræður. Væri
saga þeirra rakin af kunnugum, kæmi þar margt
merkilegt fram.
Með fyrri konti'sinni átti Kristján í Leirhöfn
mörg börn, sem mikið fór fyrir hér í Norður-Þing-
eyjarsýslu. Það mun hafa verið fimmtíu ára
aldursmunur á Helga og Guðna á Hóli, hálfbróður
hans.
Þess hefir þegar verið getið í minningargrein
um Helga, að hann var snemma með eindæmum
fróðleiksfús og fjölhæfur til orðs og æðis.
Þar sem hugur hans hneigðist mjög til búskapar,
réðist hann um tvítugsaldur í að sigla til Noregs
og afla sér reynslu og þekkingar í landbúnaði.
Vafalaust hefir þessi dvöl í Noregi orðið Helga á
margan hátt mikilsvert veganesti í lífinu. Þá ekki
síst við búskapinn í Leirhöfn, þar sem hann bar
sæmdarheitið „bóndi*' um áratugi.
Jóhann bóndi nú í Leirhöfn, sonur Helga,
mikill vinur minn, sagði ekki æfinlega „pabbi",
þeg'ar hann talaði um föður sinn. heldur „Helgi
bóndi".
Árið 1923 giftist Helgi eftirlifandi konu sinni,
Andreu Jónsdóttur á Ásmundarstöðum á Sléttu
Hún var ein af Ásmundarstaðasystrum. sem voru
nafntogaðar fyrir fegurð og myndarskap. Það
heyrði ég sagt, að á þeim árum, sem þessar systur
sóttu vetrarvist til höfuðborgarinnar, hefði verið
og barnanna okkar. Þau voru ekki há í loftinu,
þegar þeim var stungið inn í eldhúsið til góðu
frænku. sem ævinlega tók þeim jafn vel og taldi
okkur meira að segja trú um. að þau tefðu alls
ekkert fyrir henni. Þær urðu margar stundirnar,
sem þau fengu að njóta hennar þar og þó að
samfundir yrðu strjálli með árunum var til-
hlökkunin alltaf mikil og einlæg. þegar von var á
góðu frænku í heimsókn. Hún gerði heldur ekki
upp á milli þeirra. eftir að þau urðu fleiri. þó að
kynnin vrðu ekki eins náin.
Fvrir þetta allt erum við innilega þakklát.
Eg vil að síðustu færa frændfólki hennar í
Reykjavík bestu þakkir fyrir alla hjálpsemi við
hana. Systkinum hennar sendum við samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að blessa minningu
hennar.
Elínborg Gunnarsdóttir
Syðra-Hvarfi.
þar spurt að hausti, hvort sólirnar norðan af
Sléttunni færu nú ekki að koma?
Eitt er víst, að þessi unga og glæsilega stúlka frá
heimskautsbaug átti mikið og veglegt erindi
vestur yfir Leirhafnarfjöll.
Hálfu öðru ári eftir giftingu þeirra Helga og
Andreu fór ég í fyrsta sinn inn yfir Axarfjarðar-
heiði, þá á samkomu á Brunnárbökkum í Axar-
firði. Þangað komu vitanlega allir á hestum. Þessi
ferð er mér auðvitað mjög minnisstæð. Meðal
annars minnist ég þess vel, þegar ungu hjónin í
Leirhöfn riðu inn á samkomusvæðið. En hvað
kom til að athygli mín, fimmtán ára stráks úr
fjarlægri sveit tók svo mjög við sér? Þar kom
tvennt til. Glæsileiki konunnar og það að sjá
Helga í Léirhöfn og hans dásamlegu augu, sem
sögðu svó margt gott um manninn.
Helgi í Leirhöfn var s.s. þá þegar þckktur
maður í Norður-Þingeyjarsýslu, þó að félagsmála-
störf hans væru þá ekki orðin eins umsvifamikil og
síðar varð.
Hvað var það þá sem olli því að vegur unga
bóndans í Leirhöfn átti svona greiðan gang til
bændanna í sýslunni?
Þar ber fyrst að nefna, að á þessum árum voru
allir hugsandi bændur farnir að sjá það, að
umbætur í búskap næðust seint eða aldrei með
þeim aðferðum, sem notaðar voru við sléttun og
stækkun túnanna.
Úr Noregsferð sinni kom Helgi með þekkingu
og grasfræ og ræktaði sáðsléttur stærri og gras-
meiri en önnur tún. Þetta framtak hafði ótrúlega
mikið að segja í búskaparmálum Norður-Þingey-
inga, þó hægt færi til um 1930. að búnaðarsam-
bandið keypti tvær dráttarvélar til að brjóta land
hjá bændum.
Það sagði Guðni Ingimarsson á Hvoli, frændi
Helga, sem var formaður B.S.N.Þ. í 28 ár, að
hann efaöist um það, að sambandið hefði ráðist í
þessi vélarkaup, ef ekki hefðu veriö til staðar
sáðslétturnar í Leirhöfn.
Helgi var einn af stofnendum Búnaðarsam-
bands Norður-Þingeyirjga 1927, og sat í stjórn
þess frá stofnun og í áratugi.
Um langa tíð var hann búnaðarþingsfulltrúi og
sýslunefndarmaður. Mörgum fleiri trúnaðarstörf-
um sinnti hann um lengri eða skemmri tíma.
Heiðursfélaei var hann í Búnaðarsambandinu.
Eitt sérstæðasta afrek Helga má vafalaust telja
bókasafn hans, sem er talið eitt það mesta og
heillegasta í eigu einstaklings. Meiri hluti bókanna
er bundinn af honum sjálfum í fagurt band og
vandað. Stundaði hann þá iðn, ásamt skinnasaum,
fram á elliár.
Þetta mikla verk gáfu þau hjónin sýslunni fyrir
allmörgum árum, og er það nú sýslubókasafn
N-Þingeyjarsýslu.
Til marks um það, hve Helgi var snemma
áhugasamur bókamaður, má geta þess, að þegar
hann var ungur gekkst hann fyrir stofnun lestrar-
félags. Það félag keypti eingöngu bækur á
erlendum málum. Stofnfélagar voru 50.
Þetta er að því leyti merkilegt, að málakunnátta
sveitafólksins skyldi vera svona almenn á þessum
árum.
Helgi sagði mér sjálfur frá þessu og bætti við,
að það hefði ekki síst verið eldra fólkið, sem las
fullum fetum Norðurlandamálin.
Eins og áður getur, giftust þau Andrea og Helgi
árið 1923. Þeim hjónum varð sjö barna auðið.
1. Jóhann f. 20. júní 1924, bóndi í Leirhöfn.
2. Birna f. 20. apríl 1927, d. 4. sept. 1928.
3. Jón f. 7. júlí 1929. raffræðingur í Reykjavík.
4. Helga f. 28. des. 1930, húsfreyja í Garði í
Núpasveit
5. Hildurf. 28. des. 1930,húsfreyjaíReykjavík.
6. Birna f. 20. apríl 1932, verlsunarmaður í
Reykjavík.
7. Anna f. 13. janúar 1943, húsfreyja á Kópa
skeri.
Öll hafa þessi systkini erft gáfur og manntak
sinna foreldra.
Mér finnst það ekki mega minna vera en að við
bændurnir í Norður-Þingeyjarsýslu, sem enn
„stöndum á eyri vaðs", þökkum þér gamli vinur
fyrir leiðsögn þína á sviði framfara og menningar í
héraðinu. Óska ég þér svo góðrar ferðar, og vona
að þú fáir þó af og til að líta norður yfir
Leirhafnarskörð, og sjá kvöldsólina gylla tún og
byggingar, vatn og vog þegar miðnætursólin er.
ekki enn gengin bak við Rauðanúp.
Ekkju Helga og ættingjum sendi ég samúðar-
kvcðiu' Eggerl Ólafsson
Laxárdal.
Þeir sem skrifa minningar- eða
afmælisgreinar í íslendingaþœtti,
eru vinsamlegast beðnir um að
skila vélrituðum handritum
Islendingaþættir
7