Íslendingaþættir Tímans - 13.07.1983, Side 8

Íslendingaþættir Tímans - 13.07.1983, Side 8
Jón Vilhjálmur Sigurðsson, Vitabraut 13, Hólmavík Fæddiir 6. júlí 1915 Dáinn 4. maí 1983 Þú komsl imgiir svo frjáls í fasi áfögru vori. Simr itin kliiiignr þóll stafkari hrasi þar. stjarfnr í spori. Ofl á randi við ær á Nesi. Til ýmsra þarfa á sjó og landi. Að svoddan vési þú sásl ofl starfa. Þegar ég frétti látið hans Villa kom ofangreint í hugann er ég minntist veru hans sem unglings hjá Matthíasi á Kaldrananesi. Skemmtilegur. röskur drengur. sem deyfð og drungi náði aldrei tökum á. Sást oft á þeytingi til aðsinna búsþörfum húsbændanna. Síðar sótti hann gæfu sína í sveitina okkar með hryssingslega nafninu, þegar hann kvæntist frænku minni, Jakobínu Áskelsdóttur frá Bassa- stöðum. en við erum systkinabörn. Vilhjálmur var fæddur á ísafirði. Sigurð Árna- son föður sinn missti hann 6 ára gamall. en móðir hans. Guðmundína Jónsdóttir lést fyrir rúmu ári. Hún var um tíma á Kaldrananesi og rétti þá okkur hjónunum hjálparhönd í veikinda tilfelli. Það var ekki ónýtt að eiga hana Mundu að. Hún var ákaflega dugleg kona. stórfróð og víðlesin. Vin- átta hcnnar var engin uppgerð. Hennar minnist ég meö sérstakri virðingu. Þau Villi og Bína hófu búskap á Kaldrananesi 1939 og voru hér í hreppi fram á haustið 1944 að þau fluttust til Hólmavíkur. Þar stundaði hann sjómennsku. vélgæslu og akstur vörubifreiða. Fastráðinn vörubílstjóri varð hann hjá Kaupfé- lagi Steingrímsfjarðar Hólmavík árið 1969 og hélt Guðmundur Gíslason, frá Grund, Stykkishólmi Fæddur 2. ágúst 1896 Dáinn 28. ntaí 1983 Minning um mætan mann. Guðmundur Gíslason frá Grund. Stykkishólmi var fæddur 2. ágúst 1896 í Elliðaey. sonur Gísla Bjarnasonar og Ólínu sem þar bjuggu. en fluttu síðan í Stvkkishólm. Guömundur giftist 1923. Jóhönnu Sveinsdóttur frá Gaul, sunnanfjalls. Hann stundaði alla þá vinnu sem til féll sér og sínum til viðurværis eins og þá var. hjá þeim sem vildu standa á eigin fótum. Fyrst á skútum. árabátum og mótorbátum. þegar þeir komu, síðan almenna verkamannavinnu í Stykkishólmi þar til að þau hjónin fluttu til Reykjavíkur 1953. Eftir að suður kom vann Guðniundur hjá borginni til ársins 1971 að hann hætti vinnu. Jóhönnu konu sína missti Guðmundur 1970og var [rað honum mikill missir. Mér er minnisstætt er ég iiitti þau hjónin á göngu við höfnina þar sem þau voru að njóta samverunnar og umhverfisins eins og nýtrúlofað kærustupar, það strcymdi frá þeim hlýjan og elskulegheitin. Síðustu æviárin var Guðmundur á Hrafnistu í Reykjavík og líkaði þar afar vel. Guðmundur hafði þann hæfileika að aðlaga sig þeim aðstæðum sem hann bjó við fhvert sinn. hvar og hvernigsem þær voru. Hann gat alltaf með sinni einstöku hógværð. prúðmennsku og græskulausu glettni 8 því starfi með sóma frani á s.l. ár að heilsubilun kom í veg fyrir áframhald á slíku. Á liðnu sumri hóf K.S.H. starfrækslu söluskála með ferðamannavörur og olíur í nýju íbúðarhverfi á Hólmavík. Þar vann Villi ásamt öðrum og var það hans lokastarf hjá kaupfélaginu, sem hafði notið vinnusemi hans um langan tíma. Villi Sig. eins og hann var venjulega kallaður. kom sér alls staðar vel vegna trúmennsku í störfum. Ekki dró heldur úr vinsældum hans hin létta lund er hann var svo ríkulega gæddur. Spaugsemi var honum eðlislæg og kom öllum í gott skap er með honum voru að hverju sinni. Eflaust hefur það skaplyndi komið að góðum notum við fjölmargar erfiðar ökuferðir um veg- leysur og í vetrarbyljum. Þau Vilhjálmur og Jakobína áttu 6 mannvænleg börn og eru þrjú þeirra búsett á Hólmavík: Sigurður. Kvæntur Aðalheiði Ragnarsdóttur. Svanhildur. Maður hennar er Jón E. Alfreðsson kaupfélagsstjóri. Jón. Kvæntur Dagnýju Júlíusdóttur. Sóley. Maður hennar er Arnór Grímsson vcrslun- arstj. Króksfjarðarnesi. Ásthildur. Einnig búsett í Króksfjarðarnesi. Áskell. Kvæntur Magneu Símonardóttur. Þau eru í Reykjavík. Útför Vilhjálms fór fram 14. maí frá Hólmavík- urkirkju. en þar hafði hann lengi verið meðhjálp- ari. Þar var óvenju fjölmennt. Villi. Ég veit að margir minnast ánægjulegra kynna við þig og telja sig hafa haft drjúgan ábata af. Við Inga erum þar engin undantekning. Við heimsóttum ykkur hjónin daginn áður en þú fórst að heiman í síðasta sinn. Þótt sjúkleiki þinn væri auðsær varstu sama æðrulausa kempan og jafnan áður. Rifjaðir m.a. upp skemmtilegar stundir frá æskudögunum. Við þökkum þér öll skemmtilegu samskiptin og erum þess fullviss að við ströndina hinum megin verða þér allir vegir greiðir. Jafnframt sendum við öllum aðstandendum okkar dýpstu samúð við fráfall þessa ágæta fjölskylduföðurs. Ingimundur á Svanshóli. gert gott úr öllu. Mér er hann einmitt minnisstæð- astur fyrir þessa eiginleika. Hann var aldrei svo stór að hann gæti ekki talað við strákpjakk. Hann undi alla tíð glaður við sitt. sóttist ekki eftir veraldargæðum. átti alltaf hlýju og alúð til aðgefa umhverfinu. hjá honum voru allir jafnir. Frá honunt kom alltaf sama hlýjan og góðlátlega glettnin. Érlingur Viggósson. íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.