Íslendingaþættir Tímans - 24.08.1983, Blaðsíða 8

Íslendingaþættir Tímans - 24.08.1983, Blaðsíða 8
Soffía Sigríður Jónsdóttir frá Bessastöðum Fædd 8. nóvember 1917 Dáin 29. júní 1983 Með Soffíu Sigríði Jónsdóttur er horfin einn úr hópi hinna hógværu og yfirlætislausu samferða- manna. sem fæstir veita athygli í önn dagsins, en þegar þeir eru allir sést og finnst oft, að þeir láta eftir sig autt rúm og vandfyllt. Soffía fæddist og ólst upþ á Bessastöðum í Fljótsdal, hin sextánda í röð nítján alsystkina. Foreldrar hennar voru búandi hjón þar, Jón Jónasson (1868-1936) og Anna Jóhannsdóttir (1877-1954). Á barnsaldri veiktist hún af berklum, en með góðri umönnun og farsælli læknishjálp komst hún yfir þann örðuga hjalla. Alla ævi bar hún þó menjar sjúkdómsins og bjó löngum við tæpa heilsu, þó að hún léti slíkt lítt á sér festa og tapaði ekki mörgum vinnudögum af þeim sökum. Eins og nærri má geta vandist Soffía frá blautu barnsbeini öllum algengum heimilis-og sveitastörf- um, sem þá voru einkum ætluö kvenfólki. Geta þeir um það borið, sem með henni hafa unnið og verka hennar notið, að í þeim vinnuskóla hefur hún ekki slegið slöku við. Var hún eins og fleiri systkini hennar í senn verkadrjúg. vandvirk og handlagin. Rúmlega tvítug hélt Soffía fyrst til Reykjavíkur í vinnuleit. Bar hún ýmislegt við. var t.d. í nokkur ár ráðskona hjá Marteini Einarssyni kaupmanni. Um skeið vann hún hjá Sláturfélagi Suðurlands og enn síðar á saumaverkstæði Andrésar Andrésson- ar. Þar kynntist hún manni sínum, Karli Gunn- laugssyni klæðskera. góðum dreng og stöku prúðmcnni. Síðustu starfsárin utan heimilis vann hún á kaffistofu kennara í Breiðholtsskóla, og var hún þar sem annars staðar hvers manns hugljúfi. Um árabil hélt Soffía heimili með systrum sínum, lengst Björgu. en einnig um hríð Berg- ljótu. sem er látin fyrir fáeinum árum. Nokkur síðustu misseri hafa þrálátir og alvar- lcgir kvillar þjakað Soffíu. Gekk hún æðrulaus undir ýmsar meiriháttar læknisaðgerðir, og var að sjá sem þær hefðu tekizt með ágætum. S.l. vor fór hún til Lundúna í hjartaaðgerð. Virtist þá allt ganga að óskum. Hún kom að vörmu spori heim aftur með bónda sínum, hress og kát. og hún hlakkaði til að geta á ný hafið eðlilcgt líf og störf eftir öll veikindin. En enginn má sköpum renna. Smám saman fór að slá í bakseglið með batann. og miðvikudaginn 29. júní s.l. veiktist hún hastarlega. Áður en sá dagur var á enda runninn var þessi hægláta, milda og hjartahlýja kona horfin á vit feðra sinna. Sambúð þeirra Soffíu og Karls var ekki ýkja löng, en hún var fögur og ánægjuleg, svo að af bar, samfellt tilhugalíf. Ég votta Karli, svila mínum. dýpstu samúð. En mágkonu mína kveð ég cftir aldarþriðjungs kynni í orðvana þökk fyrir allt. sem hún hefur fyrr og síðar verið ástvinum mínum, konu minni, börn- 8 um og barnabörnum. Hin síðasttöldu syrgja þessa frænku engu síður en hefði hún verið amma þeirra. Hún sem gekk ævibrautina á enda án þess að troða nokkrum manni um tær eða valda öðrum skapraun, skilur nú fleiri eftir dapra en margur, sem meira hefur borizt á um dagana. Bcrgsteinn Júnsson. t Ég vil með þessum fáu orðum minnast minnar elskulegu systur að leiðarlokum. Það var þungur harmur kveðinn að eiginmanni og okkur systkin- um hennar. frændfólki og vinum þegar fregnin barst um andlát hennar. Allir 'voru orðnir svo bjartsýnir um heilsu hennar er hún hafði gengið undir erfiða hjartaað- gerð. en eitthvað greip þar inní með þessum sorglegum afleiðingum. Hún var okkur öllum svo kær. Hún átti svo marga góða eiginleika. Það var hennar aðalsmerki að fegra og prýða umhverfi sitt. Hún stráði í kringum sig kærleika hvar sem hún fóf. Hún gekk glöð að hverju verki. var veitandi og gjöful öllum þeim. sem henni fannst hjálpar- þurfi. Þannig var hún. Söknuður okkar nánustu er mikill, þó allra mestur sé söknuður eiginmanns hennar. Þetta er aðeins lítið brot af því. sem ég vildi segja. en læt hér staðar numið. Að lokum vil ég kveðja hana með þessum orðum: ..Fnr þii í friði. friður Guðs þig blessi. Hnfðu þökk fyrir alll og alll." Björg. t Kveðja frá samstarfsfólki í Breiöholtsskóla Soffía Sigríður Jónsdóttir andaðist 29. júní sl. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða og gekkst undir erfiða aðgerð erlendis nú fyrir nokkrum vikum. Þegar Soffía kom heim virtist hún á góðum batavegi og var lát hennar því með nokkuð skjótum hætti. Soffía vann sem ráðskona í mötuneyti kennara við Breiðholtsskóla í 6 ár, allt þar til vorið 1982 að hún lét af störfum sökum vanheilsu. Soffía var ávallt hin sama, ráðvönd. áreiðanleg og glaðleg. Ffún var samviskusöm og gerði ávallt sitt besta til að gera stundum óþolinmóðum samstarfs- mönnum til hæfis, og átti Soffía ekki erfitt með það. Hún átti gott mcð að umgangast það fólk sem hún vann með og aflaði sér vináttu allra. Hún var góður starfsmaður. Með Soffíu í starfi var öll árin systir hennar, Guðrún, sem enn vinnur við skólann. Það fór ekki milli mála að þeim var einkar lagið að vinna saman og voru þær svo samrýndar að eftirtektarvert var. Við sem unnum með Soffíu í Breiðholtsskóla minnumst hennar með virðingu og þökkum henni samstarfið. Einlægar samúðarkveðjur sendum við eigin- manni hennar, Karli Gunnlaugssyni. systrum hennar og öllum öðrum ættingjum. Jens Sumarliðason, yfirkennari. t „Lýnghrisla sinií við kleif og kleiiaþil, kyrrlál við sól og álök frosls og snjóa,- hvaðan eri þú, og hvers vegna eriu lil? hverl er það afl, sem knýr þig til að gróa?" (Guðmundur Böðvarsson.) Soffía mágkona mín er látin. hún kvaddi þennan heim þann 29. júní að kveldi fagurs sumardags. Soffía Sigríður var fædd þann 8. nóvember 1917 að Bessastöðum í Fljótsdal. dóttir hjónanna Önnu Jóhannsdóttur og Jóns Jónasson- ar. sem þar bjuggu. Hún var 16. barn þeirra í 19 svstkina hópi og náðu 14 barnanna fullorðins aldri. Ég hcfi þekkt Soffíu lengi. því að hún og Karl bróðir minn voru til margra ára vinnufélagar. Fljótt fann ég að þar fór kona búin hinum bestu eiginleikum. góðvild. hjálpsemi og nærgætni við gamalt fólk. og börn hændust að henni. Fyrir 1 ári gengu þau í hjónaband Soffía og Karl bróðir. en nokkru áöui hafði hún flutt á heimili hans að Lynghaga 28. Þau höfðu hvorugt verið gift áður og má segja. að þau hafi ekki rasað um ráð fram. Soffía bjó bróður mínum fagurt heimili og nu komu ennþá betur í Ijós hinir góðu eiginleikar hennar. Hún var mjög myndarleg húsmóðir og auðfundið var. hve vænt henni þótti um heimiliö og gaman var að sjá. hve samhent þau voru í Þvl Framhald á bls. 7 íslendingaþaettir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.