Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1983, Síða 6
ö
CEZE
Þorvarður Kjerulf
Þorsteinsson,
sýslumaður og bæjarfógeti
Fæddur 24. nóvember 1917
Dáinn 31. ágúst 1983
1 dag föstudaginn 9. september 1983, fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík líkför Þorvarðar
Kjerulf Þorsteinssonaráðursýslumanns íísafjarö-
arsýslu og bæjarfógeta á ísafirði.
Þorvarður var fæddur á Egilsstöðum á Völlum
í Suður-Múlasýslu 24. nóvember 1917, sonur
Þorsteins Jónssonar, kaupfélagsstjóra og konu
hans Sigríðar Þorvarðardóttur Kjerulf, læknis og
alþingismanns, er þá áttu heimili á Egilsstöðum,
en fluttu næsta ár á Reyðarfjörð og áttu þar
heimili til dauðadags.
Þau hjónin eignuðust fjögur börn og var
Þorvarður elstur, en önnur eru: Margrét kona
þess er línur þessar ritar, Jón yfirlæknir á
lyflæknisdeild Landspítalans í Reykjavík og
Þorgeir lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli.
Þá tóku þau hjónin í fóstur frá barnæsku Ólaf
Bjarnason, nú deildarstjóra við tollstjóraembætt-
ið í Reykjavík.
Þorvarður ólst upp með systkinum sínum á
Reyðarfirði, gekk þar í barnaskóla, en var annars
á sumrum í sveit hjá föðurömmu sinni og frændum
á Egilsstöðum, en hann var ætíð mjög hneigður
fyrir búskap og hafði ntikið dálæti á hestum.
Eftir fermingu fór hann í Menntaskólann á
Akureyri, lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1938.
Síðan lá leiðin í Háskóla íslands, þar sem hann
las lög, og lagaprófi lauk hann með góðum
vitnisburði vorið 1944.
Síðla sumars það ár fór hann til starfa í
Stjórnarráði íslands, atvinnumálaráðuneyti, fyrst
þar fulltrúi, en síðan deildarstjóri.
Árið 1973 var hann skipaður bæjarfógeti á
ísafirði og sýslumaður ísafjarðarsýslu og var svo
hans úr hópnum. En mestur missir ástvina eigin-
konu og yngri kynslóðanna sem maður hittir svo
oft á heimiii þeirra Björns og Bjarnýjar. Við
Margrét scndum þeint öllum innilegar samúðar-
kveðjur.
Vilhjálmur Hjálinarsson.
Brekku.
t
Kveðja frá Framsóknarfélagi Norðljarðar.
Laugardaginn þriðja þ.m. barst sú sorgarfregn
um Ncskaupstað, að Björn Steindórsson hárskeri
hefði orðið bráðkvaddur skömmu eftir hádegi
þann dag.
Það er alltaf sársaukafullt, þegar svo snögglega
er skorið á lífsstreng vinar og samherja ekki síst
þar scm andlegt og líkamlegt þrek hans virtist eins
og best var á kosið.
Við vissum þó að hverju gat dregið. Björn fékk
hjartaáfall fyrir nokkrum árum og var þá hætt
kominn.
En hann náði góðum bata og hof aftur störf við
iðn sína og afskipti af félagsmálum.
En svo er því farið með þennan sjúkdóm, að
hafi hann einu sinni gert vart við sig getur hann
óvænt og fyrirvaralaust minnt á sig á nýjan lcik.
Er sem falinn eldur.
Þetta vildi okkur gleymast í samvistum við
Björn. Slíkt var æðruleysi hans gagnvart þessari
vitneskju og til hinstu stundar var hann einkar
ræðinn og glaðlegur í viðmóti.
Með Birni Steindórssyni er fallinn frá einn
okkar ágætasti félagi. Um áratugaskeið var hann
í forystusveit norðfirskra framsóknarmanna.
Hann naut trausts og virðingar og eins og títt er
um slíka menn hlóðust á hann ófá trúnaðarstörf.
Oftar en einu sinni var hann kvaddur til
formennsku í Framsóknarfélagi Norðfjarðar og
það trúnaðarstarf hafði hann á hendi er hann féll
frá.
Það var ekki síst fyrir hans frumkvæði og
atfylgi. að félagið tók fyrir ári síðan í notkun ágætt
húsnæði fyrir starfsemi sína.
Um árabil kom það í hlut hans að veita
kosningaskrifstofu flokksins forstöðu bæði cr
kosið var til sveitarstjórnar og Alþingis. auk þess
að vera trúnaðarmaður flokksins á kjörstað.
Á þvískeiði er Austri, blaðaustfirskra framsókn-
armanna var prentað í Neskaupstað annaðist
Björn útgáfu blaðsins.
Hann starfaði í ýntsum nefndum fyrir byggðar-
lag sitt. var m.a. varaformaður skólanefndar um
árabil.
Björn var einlægur samvinnumaður. Hann átti
sæti í stjórn Kaupfélagsins Fram og lét sér mjög
annt um vöxt og viðgang félagsins.
Björn kom víðar við á vettvangi félagsmála og
livar sem hann tók til hendi gat hann sér hið besta
orð.
Björn var grandvar maður og heiðarlegur og
gerði ekki á hlut nokkurs manns. Þess vegna naut
hann trausts og virðingar þeirra sem honum
kynntust og með honum störfuðu.
Hann var hvers manns hugljúfi í samstarfi en
geðríkur gat hann þó verið í umræðum og fastur
fyrir ef þvf var að skipta.
Af góðu einu var hann vel þekktur í sínu
byggðarlagi. Um margt sérstæður persónuleiki.
Einn af þeim. sem setti svip á bæinn.
Félagar í Framsóknarfélagi Norðfjarðar þakka
honum mikil og ómctanleg störf.
Eftirlifandi eiginkonu hans Bjarný Sigurðar-
dóttur, börnum og barnabörnum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
allt til hann í vor vegna vanheilsu baðst lausnar og
flutti suður og bjó að Miklubraut 74, Reykjavík.
Árið 1944 kvæntist Þorvarður Önnu Einarsdótt-
ur, verkstjóra, frá Akranesi, nú húsfrú að Kiða-
felli í Kjós, en þau hjónin skildu.
Börn þeirra eru:
Einar, umdæmisverkfræðingur á Austurlandi,
búsettur á Reyðarfirði. Kona hans er Hallfríður
Bjarnadóttir, kennari.
Sigríður, ritari, gift Paul Newton, verslunar-
manni, búsett í Reykjavík.
Margrét, hjúkrunarfræðingur, gift Árna Árnas-
yni, viðskiptafræðingi, búsett í Kaupmannahöfn.
Guðbjörg. dýralæknir. nú starfandi í Laugarási.
Þorsteinn, búfræðikandidat, nú í Kaupmann-
ahöfn.
Síðari kona Þorvarðar ogeftirlifandi er Magðal-
ena Thoroddsen. Ólafs Thoroddsen, skipstjóra
frá Vatnsdal.
Þau hjónin eiga tvær dætur:
Ólínu við nám í Háskóla íslands, gift Sigurði
Péturssyni frá ísafirði, háskólanema.
Halldóra, guðfræðinemi, gift Sigurjóni Bjarnas-
yni, frá Hvoli í Ölfusi. háskólanema.
Tvær dætur átti Þorvarður utan hjónabands:
Dýrfinnu Sigríði. gift Garðari Einarssyni. kjöt-
iðnaðarmanni, Selfossi og Dagbjörtu Þyri. há-
skólanema, gift Guðna Kristinssyni. lyfjafræðingi.
búsett í Reykjavík.
Þorvarður hefir átt miklu barnaláni að fagna.
öll eru börnin vel gefin og gegnir þjóðfélagsþegn-
ar.
Ég kynntist Þorvarði þegar í Menntaskólanum
á Akureyri. vorum sambekkingar. brautskráðir
þaðan stúdentar vorið 1938, en síðan samtímis í
lagadeild háskólans og lukum báðir lagaprófi
vorið 1944.
Strax í menntaskóla varð Kjerulf. eins og hann
var ætíð nefndur af bekkjarfélögum, mjög vinsæll.
islendingaþættir