Íslendingaþættir Tímans - 26.10.1983, Page 1
ISLENDINGAÞJETTIR
Miðvikudagur 26. október 1983 - 40. tbl. TÍMANS
Stefán Olafur Stefánsson
stöðvarstjóri Sauðárkróki
Fæddur 3. mars 1916
Dáinn 16. ágúst 1983
Fornvinur minn og frændi, Stefán Ólafur Ste-
fánsson, stöðvarstjóri Pósts og síma á Sauðár-
króki, andaðist í sjúkrahúsinu þar í bæ 16. ágúst
sl. Fréttin um andlát hans kont mér að vissu leyti
óvænt, þrátt fyrir að mér var vel Ijóst að hann
hafði allt frá sl. áramótum átt við alvarlegan
sjúkdóm að stríða. í júlí sl. var ég staddur nokkra
daga á heimili þeirra hjóna. Kjarkur Ólafs þá,
þrek hans og æðruleysi villtu um fyrir mér og
þegar ég kvaddi hann, þá var ég í vissu um„ að enn
væri langt til kveðjustundarinnar.
Ólafur var jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju
þann 25. ágúst sl. að viðstöddu fjölmenni. Vinur
hans og fyrrverandi sóknarprestur, séra Þórir
Stephensen, jarðsöng. Atvikin höguðu því svo, að
ég gat ekki fylgt frænda mínum hinsta áfangann
og þótti ntér það sárt. Af þeirri ástæðu hefi ég nú
ritað þessi kveðjuorð - þessi síðbúnu þakkarorð.
Nú er margs að minnast og ég átti Ólafi margt að
þakka. Við vorum á líkúm aldri og samrýn dir
vinir í sextíu ár.
Ólafur Stefánsson fæddist á Akureyri föstudag-
inn 3. mars 1916, foreldrar hans voru Stefán
Ólafur Sigurðsson kaupmaður og ræðismaður
þar. f. á Páfastöðum i Skagafirði 29. júlí 1870, d.
á Siglufirði 19. janúar 1941 og kona hansJóhanna
Sigríður Jónsdóttir frá Hofi í Vopnafirði, f. 24.
júní 1874. d. á Siglufirði 29. nóvember 1969.
Móðurforeldrar Ólafs (hann notaði jafnan síðara
nafn sitt oggjöri égþaðeinnig í þessari grein) voru
séra Jón Jónsson prófastur að Mosfelli í Grímsnesi
og síðan að Hofi í Vopnafirði og kona hans
Þuríður Kjartansdóttir frá Ytriskógum. Börn
þeirra urðu ellefu. en aðeins sex þeirra náðu
fullorðinsaldri - einn sonur og fimm dætur og var
Jóhanna Sigríður þeirra yngst. Föðurforeldrar
Ólafs voru Sigurður Jónsson bóndi á Páfastöðum
og síðar á Kjartansstöðum í Skagafirði og kona
hans Elísabet Aradóttir frá Ingveldarstöðum á
Reykjaströnd.
Æskuheimili Ólafs á Akurevri. Hafnarstræti
29. er eftirminnilegt öllum þcim er þangað komu.
A jarðhæð hússins var verslunin. sem var all
umfangsmikil á tímabili. Á annarri og þriðju hæð
var íbúð Stefáns kaupmanns og fjölskyldu -
fagurlega búin húsgögnum. Útsýnið frá þessu
húsi, sérlega 3ju hæðinni - yfir Pollinn - á
sólbjörtum sumardögum var óviðjafnanlegt. Á
þessum Polli undi Ólafur sér afar vel, sérstaklega
eftir að eldri bróðir hans eignaðist á fermingardegi
sínum - norska skektu. Á þessari skektu skemmtu
sér allir vel - þeir sem um borð komust, því
aðsóknin var mikil.
Ólafur ólst upp í fjölmennum systkinahópi á
glaðværu og gestrisnu heimili foreldranna, Hann
var yngstur systkinanna og naut þess og galt, eins
og títt er um yngsta barn á barnmörgum heimilum.
Bræður átti hann þrjá. Jón, fyrrverandi forstjóri
síldarútvegsnefndar á Siglufirði. kvæntur Ástu
Guðmundsdóttur Hallgrimssonar læknis, þau búa
í Rcvkjavík. Marinó Kjartan. fyrrverandi kaup-
maður. hann kvæntist Steinunni Sigurðardóttur
Þorsteinssonar. Marinó andaðist 19. desember
1968. Agnar. fyrrverandi símritari. sem kvæntur
var Guðrúnu Guðjónsdóttur Sæntundssonar bygg-
ingameistara í Reykjavík. Hún andaðist 12.
janúar 1957. Agnar býr nú í Reykjavík. Systur
Ólafs eru Þuríður (Lulla) Meyer, búsett í Bergen.
Fyrri maður hennar var Ragnar Gabrielsson.
síldarkaupmaður. Þau skildu. Síðari maður Lullu
var Harald Meyer. yfirmaður í norska sjóhernum.
Hann er látinn. Sigríður Elísabet Ragnars, búsett
í Reykjavík. Hennar maður var Egill Ragnars,
lengst af útgerðarmaður og síldarsaltandi á
Siglufirði. Hann andaðist 27. mars 1977.
Ólafur Stefánsson fór í Verslunarskólann haust-
ið 1935 og lauk prófi þaðan 1938. Fluttist hann þá
til Siglufjarðar og hóf störf sem fulltrúi við
pósthúsið. Foreldrar hans höfðu þá nokkru fyrr
flust þangað, enda flest börn þeirra busett þar.
Ólafur gegndi fulltrúastarfinu til ársins 1958, að
hann var skipaður stöðvarstjóri Pósts og síma á
Sauðárkróki. Því starfi gegndi hann til dauðadags.
Hann starfaði því við þessa stofnun í 45 ár.
Það var mikill fengur fyrir mig þegar frændfólk
mitt flutti frá Akureyri til Siglufjarðar, en þó var
mér það sérstakt ánægjuefni þegar Ólafur frændi
minn bættist í hópinn.
Ég kom fyrst til Akureyrar 1925 og bjó þá á
heimili foreldra Ólafs nokkra daga, þá bundumst
við Ólafur þeim vináttuböndum sem aldrei rofn-
uðu. Við áttum samleið á Siglufirði í 20 ár. Á
þessum tuttugu árum breyttist oft þessi fámenni
kaupstaður á sumrin í heimsborg. Við sem þar
bjuggum höfðum þá nánari kynni af erlendu fólki
en aðrir landar okkar. Athafnasemi einkenndi
staðinn, dugnaður og glaðværð setti svip á bæinn.
Við Ólafur fluttum um líkt leyti frá Siglufirði með
fjölskyldur okkar, en meðan við báðir bjuggum
þar hittumst við oft og áttum fjölmörg sameiginleg
áhugamál, það var helst í kringum Alþingiskosn-
ingar að fundum fækkaði um stund.
Eftir andlát Stefáns Sigurðssonar og allt til þess
dags að Ólafur kvæntist, héldu þau mæðginin
heimili saman, lengst af í Túngötu 41 á Siglufirði.
Hjá þeim ólst upp við mikið ástríki systurdóttir
Ólafs, Hanna Gabrielsson, sem gift er Ingólfi
Helgasyni forstjóra. Þau búa í Garðabæ. Frá
þessu heimili í Túngötunni eigum við hjónin
margar góðar minningar sem seint gleymast.
Ólafur Stefánsson kvæntist 14. september 1950
eftirlifandi konu'sinni, Ölmu Bjömsdóttur. Hún
er dóttir Björns Björnssonar, fyrrverandi skip-
stjóra og yfirfiskimatsmanns, og konu hans, Önnu
Friðleifsdóttur Jóhannssonar útgerðarmanns á
Dalvík og síðar Siglufirði. Hjónaband þeirra var
farsælt og hamingjuríkt enda bæði mannkosta
manneskjur. Heimili þeirra á Siglufirði og á
Sauðárkróki einkenndist af gestrisni og góðvild.
Hjá þeim var alltaf opið hús fyrir ættingja og vini.