Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 17

Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 17
Þegar Anne heimsótti föður sinn, varð henni alltaf hugsað til þess, hvað yrði eiginlega um hann, og henni fannst hún aldrei geta gert nóg fyrir hann. Faðir hennar var 67 ára og rétt kominn á ellilaun. Hann hafði unnið á skrifstofu alla ævi sina og smám saman komizt upp i góða stöðu. Hún gerði sér ljóst, að það var erfitt fyrir hann að vera verklaus — ennþá erfiðara af þvi að móðir Anne, Leila, hafði andazt fyrir hálfu ári. Hún hafði hlakkað svo mikið til, að maður hennar kæmist á ellilaun —Þá verðum við næstum eins og nýgift, hafði hún sagt, og Anne vissi, að föður hennar hefði ekki orðið eins mikið um að missa starfið, ef móðir hennar hefði verið á lifi. Holger Kragh virtist talsvert yngri en 67 ára — hann var hár og grannvaxinn og með snjóhvitt hár. Stundum fannst Anne faðir hennar vera ennþá reglulega myndarlegur maður. Anne var fertug, og henni gramdist það reglulega mikið, þeg- ar ein af stúlkunum á skrifstofunni sagði: — Verið þér bara rólegar, ungfrú Kragh, þér þurfið sko ekki að hafa áhyggjur ut af honum föður yðar. Or þvi að hann er svona myndarlegur og ungleg- ur, eins og þér segið, þá dettur hann áreiðanlega aftur i lukkupottinn... Anne vissi, að faðir hennar hafði ekki hugsað um aðrar konur en móður hennar. Þau höfðu lifað i löngu og hamingjuriku hjónabandi. En henni var það lika ljóst, að það var afskaplega erfitt að vera ein- samall, þegar maður var ekki nema 67 ára — og átti ef til vill fjölmörg ár ólifuð. Hún talaði við systur sina, Sonju Lund. Sonja, sem hafði búið i nokkur ár i hjóna- bandi, viðurkenndi, að þetta yrði erfitt fyrir föður þeirra. — En hann hefur þó húsið og garðinn að sýsla við. Og við tvær getum skipzt á um að elda fyrir hann. En hann ætti að fá sér ráðskonu. — Alls ekki, sagði Niels, maður Sonju, sem hafði brosandi hlustað á samtal þeirra systranna. Þá nær hann sér bara i kvenmann, sem fjötrar hann svo eftir- minnilega, að það endar með þvi, að hann kvænist aftur. — Það væri skelfilegt, sagði Anne. Hún þagnaði, þvi að sterkar tilfinningar gagntóku hana. Allar minningarnar um móður þeirra. Það var skelfileg tilhugsun, ef ókunnug kona ætti að fara að taka sæti hennar. Hana óaði við tilhugsuninni um það að deila föður sinum með öðrum. Margra ára hjónaband — og svo að þurfa að venjast nýrri manneskju. Nýrri mann- eskju með allt annað skapferli og aðrar kröfur og venjur. — Kannski ætti ég að flytja heim til pabba, sagði hún döpur. Henni þótti svo vænt um litlu, nýtizku- legu ibúðina sina, og naut á sinn hátt frelsisins, enda þótt hún væri oft ósköp einmana. Að búa með föður sinum — það EINSTÆÐINGAR Hann var einmana — og ungfrú Prehn hafði ekki lifað lífinu eitt andartak. Gat virkilega verið, að von væri fyrir þau ennþá? var vissulega lausn, og þeim hafði alltaf fallið vel hvoru við annað. Sonja sagði: — Það gæti verið skynsamlegt og hag- kvæmt — en það voru alltaf óskir mömmu, að þú fengir að lifa þinu eigin lifi. Mamma hélt fast við það, að ógift dóttir hennar hefði jafn mikinn rétt til frelsis og sú gifta — og frelsi þeirrar ógiftu vill oft verða misnotað. Nei, við verðum að hjálpa pabba,eins og við fram- ast getum. Þú verður að lifa þinu lifi. Þú hefur þó ekki gefizt upp við tilhugsunina um að giftast og eignast börn? Anne brosti dapurlega. Hún gerði sér ljóst, að hún vakti ekki áhuga karlmanna. Þá, sem hún gat fengið, vildi hún ekki — og þeir, sem henni fannst eitthvað varið i, voru jafn fjarlægir og tunglið. Jú, hún hafði i raun og veru gefið alla von upp á bátinn... Dagarnir voru langir, gráir og vonlaus- ir fyrir Holger Kragh. Húsið var hreint og fallegt — það átti hann að þakka sinum góðu dætrum, hugsaði hann. Isskápurinn var úttroðinn af freistandi réttum, og þær Sonja og Anne hringdu til hans oft á dag til þess að rabba við hann. — Simareikningurinn fer upp úr öllu valdi, sagði hann áhyggjufullur, þvi að hann hafði alltaf verið heldur sparsamur i sér. En það hafði lika haft sinar góðu hliðar. Honum hafði safnazt talsvert fé—og húsið var þó nokkurs virði. Það var gott, að stúlkurnar skyldu erfa eitthvað eftir hann, þegar þar að kæmi. Þetta hafði lika skipt Leilu miklu máli. Hún hafði sagt: — Maður á alltaf að skilja eitthvað eftir handa eftirkomendunum. En dæturnar eyddu miklum peningum i að rabba við hann i simann. Og hug- hreysta hann með ýmsu móti. Hann ráf- aði um stofurnar, sem minntu hann á það, sem verið hafði — innihaldsrik og ham- ingjusöm ár með Leilu. Hreyfingar hans voru orðnar rólegar, þvi að hann sat iðu- lega og las. Hann saknaði rösklegra gönguferðanna til stöðvarinnar — hann lagði það eitt sinn á sig að rölta þangað og leika það sjónarspil gagnvart sjálfum sér, að ennþá væri þörf fyrir hann — en það mislukkaðist. Hann þreyttist fljótt, og á heimleiðinni var hann gripinn þunglyndi. Aðeins nokkrum mánuðum áður hafði hann gengið þessa leið rösklega — nú skulfu hnén undir honum af þreytu. Þegar hann kom heim, settist hann inn i stofu og horfði á myndirnar á veggjunum. Brúðkaupsmyndina af þeim Leilu. Hann reis á fætur og snerti glerið varlega. Litla, alvarlega Leila, grannvaxin og ung. Hún hafði alltaf sagt, að þetta rómantíska nafn ætti alis ekki við hana — hún væri alltof venjuleg og jarðbundin. Það var hún ef til vill, en í hans augum var hún hugtak alls þess, sem ást gat talizt, og það hafði ekk- ert breytzt með árunum. Hún hafði fitnað, orðið þreytulegri, en hann hafði aldrei séð mismuninn. En mikið gat hann saknað hennar, hugsaði hann. Allt hvarf — allt, sem var tilvera hans. Allar endurminn- ingarnar. Það var alls enginn,sem hann gat talað við um þetta. Og honum fannst hann svo mikill einstæðingur. Hann gekk út að glugganum. Það var tekið að vora — tii allrar hamingju, þvi að þá fengi hann nóg að starfa i garðinum. En mild kvöldbirtan vakti hjá honum angurværð. Lágvaxin, feitlagin kona gekk framhjá húsinu. Hún kinkaði kolli til hans og hann heilsaði henni. Þetta var ungfrú Prehn, afgreiðslukonan i kjötbúðinni, sem hafði starfað þar árum saman. Hún var alveg ómissandi. Hún var ógift og um hálfsextugt. Lágvaxin var hún og feitlag- in, sem sagt — og eins og gangandi aug- lýsing fyrir vörurnar, sem hún seldi. Hún 17

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.