Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 34

Heimilistíminn - 14.03.1974, Blaðsíða 34
hlær við. — Sjúkraþjálfarinn segir, að maður eigi að nýta möguleika sina. Hann hlær aftur og bendir á fótinn. — Það er einmitt það, sem ég geri. Ég nota buxnaskálmina undir smápeninga. En þeir segjast ætla að búa til nýjan fót handa mér. Hann heldur áfram.: — Mig hefur alltaf langað til að starfa á dagblaöi. Aður en ég fór til Vietnam, var ég á blaðamannanámskeiði, og ég hef fengið birta grein eftir mig. Það er stolt mitt. Siðan ég kom heim, hef ég reynt að fá vinnu á blaði, en þaö gengur illa. Ég fæ alltaf þau svör, að það verði hringt til min. Ég skil auðvitað, að þar sem svo marga langar til aö verða blaðamenn, hvers vegna þá ekki að ráða einhvern, sem hefur báða fæturna? Hann getur að minnsta kosti hlaupið eftir kaffi... Saga Bobs Miller — Daginn sem það gerðist, vorum við vaktir klukkan fimm. Kvöldið áður hafði liðþjálfinn sagt okkur, að við ættum að sameinast herdeild, sem laga ætti til á svæði milli tveggja fljóta, en þar hafði óvinurinn eitthvað verið að. Þetta var minn fyrsti bardagi. t þvottaherberginu leit ég framan i sjálfan mig náfölan í spegli. Ég var hræddur. Einn úr hópnum, hann hafði verið með lengi, kom til min. — Vertu rólegur, sagði hann. — Þú sérð þá kannski ekki einu sinni. Það eru margir hér, sem hafa verið mánuðum saman, og aldrei hleypt af skoti. Sólin var ekki komin upp enn, en dagurinn yrði heitur. Loftið var rakt og fuglarnir sungu. Liðþjálfinn gekk með röðunum og athugaði með vistirnar. Hann nam staðar fyrir framan mig og sagði: — Þú skalt ekki vera tuagaóstyrkur. Við höfum engar áætlanir um að gera þig að hetju. En ef þú þarft að skjóta, þá athugaðu vel, á hvaö þú skýtur. Það gæti verið félagi. Við heyrðum drunur og nokkrar þyrlur nálguðust. Þær lentu, en hreyflarnir gengu áfram. Við fengum skipun um að ganga um borð. Ég fann hvernig svitinn rann niður eftir bakinu á mér og mig klæjaði. Skordýrin gerðu árás Þyrlan lækkaði flugiö og lenti. Einhver hrópaði: — Allir út! Við stukkum út og söfnuðumst um liöþjálfann, sem beindi okkur inn i skóginn. Sólin var nú komin upp og hitinn var gifurlegur. Ég var i miðjum hópnum með vélbyssuna undir hægri handleggnum. Hún var hlaðin, en öryggið var á. Þegar við snertum trén, gerði her skordýra árás á okkur. Bit þeirra brenndu og það dugði ekkert að slá um sig. Þá kom skipun um hvild og við settumst. Við fengum okkur vatnssopa, sem var volgur og með greinilegu bragði af vatnshreinsitöflum. Einhver minntist á kók með is, annar á iskaldan bjór og fallega stúlku. — Ef þessi bannsettu kvikindi væru ekki hérna,hefði ég ekkert á móti þvi að vera hér i allan dag, sagði ég Hræðslan var horfin og mér fannst ég vera ákaflega þugaður. Ég var að leita að tyggigúmmi i vasanum, þegar skipunin kom. Skaut viðstöðulaust Liðþjálfinn gaf okkur merki og viö færðum okkurút úr skuggsæld skógarins i sólina á grasinu. Þá kvað við vélbyssu- gelt. Við köstuðum okkur niður og ég lenti bak viö runna. Hjálmurinn datt niður á nef og byssan lenti undir mér. Mér fannst við liggja þarna og þrýsta á gikkinn viðstöðulaust i óratima. Þá kom skipun um sókn, Við dreifðum okkur yfir sléttuna, samanbognir og hlupum öðru hverju. Hjálmurinn rann aftur niður á nef, en ég ýtti haonum upp og rýndi fram fyrir mig. Jú þarna var eitthvað. Það leit út eins og maður, en ég var ekki viss. Það gæti verið bóndi, sem leitað hafði skjóls, er hann heyrði skothriðina. Ég mundi skipunina um að skjóta ekki, ef ég væri ekki viss. Ég læddist áfram með byssuna tilbúna og hafði ekki augun af manninum ,,Þú varst heppinn” Ég man greinilega, að það var eins og eitthvað festist i stigvélinu minu. Ég kippti óþolinmóður i með fætinum, en þá kom dimmt högghijóð og ég kastaðist fram á við. Ég fann lykt af brenndum fötum og leðri og missti byssuna. Fyrsta hugsun min var að ná i hana aftur. Ég þreifaði niður með siðunni og fann að grasið var blautt. Þegar ég leit á hönd mina, sá ég að þetta var blóð. Ég hafði enga tilfinningu fyrir því, að það var ég, sem var særður, en hélt áfram að svipast um eftir manninum. Þá kom sársaukinn og einhver hrópaöi á sjúkraliöa. Ég fékk morfinsprautu og mér fannst þetta allt saman vera kvikmynd. Sjúkraliöinn vafði um mig sárabindi og það hlýtur aö hafa liðið yfir mig. Þegar ég kom til sjálfs min, var ég spenntur á börur, sem verið var að ýta inn iþyrlu. Sjúkraliðinn var með mér og hélt blóövatnsflösku yfir mér. Slangan endaöi við handlegginn á mér. Þyrlan lyftist frá jörðu. Það næst^ sem ég gerði mér grein fyrir, vai; að ég var i sjúkrahúsi. Mig klæjaði hræðilega i hægri fótinn og reyndi að klóra honum með hinum fætinum, en fann hann hvergi Ég gægðist og sá vinstri fótinn, en ekki þann hægri. Hjúkrunarkona kom og ég spurði hana, hvað' hefði gerzt. — Þú gekkst á jarð- sprengju, svaraði hún ,,en þú varst heppinn. Við urðum að taka af þér fótinn og hreinsa flisar úr þér. En þú nærð þérT Þannig varð það, að ég var gömul striðshetja. Oft greip örvinglun mig og fyrir hefur komið, að ég ihugaði sjálfs-1 morð. En eins og hjúkrunarkonan sagði, ég var heppinn miðað við marga, sem búa á heimilinu fyrir gamlar striðshetjur. Sumir eru þannig á sig komnir, að þeir gætu ekki einu sinni framið sjálfsmorð. Viðskulum vona, að veslings maðurinn skeri sig ekki af skelfingu, þegar hann litur við. Hvað skyldi þetta eiginlega vera, sem er þarna fyrir aftan hann? Þið komist að þvi ef þið dragið strik milli talnanna og auövitað á aö byrja á einum og halda áfram i réttri röð. 34

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.