Heimilistíminn - 04.07.1974, Blaðsíða 28

Heimilistíminn - 04.07.1974, Blaðsíða 28
Saltfiskur í formi Saltfiskur er mikið borðaður I Miðjarðar- hafslöndum, en allt of litið hér heima. Afvatnið hann ef þarf. Það venjulegasta er að sjóða saltfisk, en hægt er aö matreiöa hann á ótal vegu. Hér er góð tillaga, vel þess virði að reyna hana. Um 1 kiló saitfiskur, 1 stór laukur (saxaður) safi úr hvitlauskgeira, 1 dós kræklingur, (450 gr) 1/2 dl. söxuð steinselja 1 dl rjómi Blandið saman lauk, hvitlauk, kræklingi og steinselju. Þurrkið fiskinn, hreinsið roðiö af og skerið hann i u.þ.b. 3 sm breiðar sneiðar. Leggið svolitið af maukinu á hverja sneið og rúllið upp. Setjið rúllurnar I eldfast fat og jafnið afgagnum af maukinu yfir. Hellið siðan rjómanum yfir allt saman. Setjið álpappir yfir fatið og látið réttinn bakast i hálftima i 225 stiga heitum ofni. Berið fram með soönum hrisgrjónum eða kartöflum og góðu hrásalati. Steikt lúða Stundum getur verið erfitt að fá fallegan lit á lúðu, þegar hún er steikt, en með þvi að stinga stykkjunum andartak niður I sjóöandi vatn og steikja þau svo, tekst það yfirleitt. 4 sneiöar lúða (600 gr.) 5 dl vatn 1 1/2 tesk. salt 1 lftill laukur Sósa úr: 2 dl. fiskkrafti, 1 msk hveiti, 25 gr. smjöri og 2 eggjarauðum. Sltrónubátar og kapers. Setjiö saltið og laukinn niðursneiddan I vatn og látið suðuna koma upp. Leggið lúöusneiðarnar á fiskspaða og dýfið þeim niður I vatnið andartak, þar til þær verða hvitar. Leggið þær á fat ög látið vatnið renna af. Sjóðið saman fiskkraftinn, þangað til 2 dl. eru eftir. Blandið hveitið með svolitlu vatni og setjið i kraftinn og látiö sósuna sjóöa. Hrærið smjörið og þeyttar eggjarauðurnar i, en látið sósuna ekki sjóða eftir það. Haldið henni heitri. Steikið fisksneiðarnar i smjörliki, umb. 3 min. á hvorri hlið eftir þykkt, en ekki of lengi, þá þornar fiskurinn gjarna. Leggið siöan á fat og hellið sósunni yfir. Skreytið með sitrónubátum og kapers. Beriö fram með soðnum kartöflum og baunum. 28

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.