Heimilistíminn - 10.10.1974, Blaðsíða 3
Alvitur.
Getur þú sagt mér, hvenær haldnir
eru fundir hjá K.F.U.K. við Amt-
mannsstig i Reykjavik?
t öðru lagi langar mig til að eignast
pennavini i Færeyjum og þætti vænt
um, ef þú gætir gefið mér nafn og
heimilisfang blaðs þar.
Svo vil ég lýsa ánægju minni með
Heimilis-TImann, mér finnst blaðið
bæði gott og skemmtilegt.
Þórunn
Svar: Hjá K.F. U.K. við Amtmanns-
stlg eru tvær deildir. Hjá yngri deild,
9-12 ára, eru fundir haldnir á mánu-
dögum, klukkan 6, en hjá unglinga-
deild, 13-16 ára, eru fundir á fimmtu-
dagskvöldum kl. 20.30.
Varðandi pennavini i Færeyjum get-
urðu skrifað til blaðsins „14. septem-
ber”, sem hefur pósthólf 62, Þórshöfn.
Alvitur
Breiðar feitabollur
Kæri Alvitur!
Mig langar til að biðja þig um gott ráð
til að megra mig. Ég er 166 sm há, 67
kíló, mittismáiið er 88 sm, mjaömirn-
ar eru 100 cm. lærin 54 sm um miðjuna
og svo er ég með útstandandi maga.
Svo er það þetta venjulega: Hvernig er
skriftin og stafsetningin og hvernig
eiga Meyja (stelpa) og strákur í tvi-
buramerkinu saman?
Bolla.
Svar: Ég hef fengið þó nokkur bréf
með beiðni um ráð við megrun. öllum
er þeim svarandi á einn veg: Ég væri
löngu milljónamæringur og heims-
frægt fyrirbæri, ef ég kynni eitthvert
ráð, sem er bæði auðvelt, þægilegt og
fljótlegt. Það eina, sem ég get fullyrt
að bregzt ekki, er að boröa minna og
hreyfa sig meira. Við útstandandi
maga er ráð aö gera æfingar, til dæmis
liggja á bakinu og hjóla upp I loft með
fótunum nokkur hundruð sinnum, til
dæmis i rúminu kvölds og morgna.
Annars læt ég hér fljóta með nýjustu
fullyrðinguna frá lækni: Allt áfengi er
bráðfitandi. Einn drykkur af sterku
áfengi er á viö smurða brauösneið og
ekki batnar það ef gosdrykkur er
saman viö. Ein venjuleg gosflaska er á
viö 11 sykurmola.
Skriftin er greinileg, en svolítiö
barnaleg og óákveðin, stafsetningin
er ágæt. Tvíburastrákur og Meyjar-
stelpa eiga það til að veröa ástfangin I
einum grænum, en hann er fremur
óstöðugur I rásinni, svo alls ekki er
vist að hann endist lengi.
Alvitur.
Alvitur!
Ég þarf svo sem ekki beint að spyrja
þig, bara að segja þér, hvað sumt
getur farið I taugarnir á mér. Til
dæmis hvernig konfekti er pakkað inn.
Er nauðsynlegt að hafa allan þennan
glanspappir og slaufur, sem gerir kon-
fektið mun dýrara? Maður fleygir þvi
öllu
Um daginn var ég i búð og heyrði þá
afgreiðslumann segja konu, sem var
að kaupa sér vaskafat, aö það væri úr
ekta plasti. Er það til, eða var hann aö
gera grin að konutetrinu
Úrillur
svar: Þætti þér gaman að gefa þinni
heittelskuðu konfekt, sem liti út eins
og stórt stykki af suðusúkkulaði af út-
sölu? Um hitt er vist bara hægt að
segja, að plast er plast
Alvitur
Kæra Alvitur!
Ég nota dálitið af svörtum augnahára-
lit, og mig klæjar alltaf undan honum,
þegar fer að liða á daginn. Ef ég nudda
augun, detta mörg hár af. Hvað á eg að
gera til að verða ekki augnaháralaus?
Ella
svar: Einfaldlega hætta að sverta þig.
Ég get ekki imyndað mér, að það sé
fallegra, ef þú þarft að nudda augun
mikiö. En ef þú þarft nauðsynlega að
mála þig eitthvað um augun, þá
reyndu að draga mjóa linu á augna-
lokið ofan við hárin með eye? liner. Ef
þig klæjar samt, verðurðu að
hætta alveg að mála þig um augun,
nema þú viljir heldur nota gerviaugn-
hár og klæja þrátt fyrir allt
Alvitur
Meðal efnis
í þessu blaði:
Komu menn úr geimnum til jarðar?. Bls.
Esther Vilar með nýja bók........ —
Hunang — hollast ails............ —
Tilboð merkt,, Einmana", smásaga. —
Apaspil! ......................... —
Pop, Alvin Stardust.............. —
Þegar Stubbur tók gleði sína, barnasaga —
Enginn vildi nota rennilásinn..... —
Hvaðveiztu?........................... — -5
Eldhúskrókurinn....................... — -6
Sitthvað um krydd..................... — 18
Tvöljóð............................... — 18
Etum, drekkum og verum glaðir....... - • 19
Bleyjubuxur í búntum.................. — 20
Föndurhornið.......................... — 22
Ma Ling og töf rakústurinn hans....... — 23
Málverkið, sem greiddi veginn......... — 26
Þáttur úr daglegu lif i, agsaga....... — 28
Eruþæreins?........................... — 30
4 Pennavinir............................. — 31
6 Brúður í þjóðbúningum.................. — 31
7 Konur og Nóbelsverðlaun................ — 31
8 Þúsund mílur f rá umeheiminum.......... — 32
10 Kötturinn Bastian, f rh. saga.......... — 33
12 ökunnur eiginmaður, f rh. saga......... — 35
13 Ennfremur skrítlur, húsráð, krossgáta, póst-
15 kassi o.fl.
3