Heimilistíminn - 10.10.1974, Side 5
Þessar teikningar eru I helli á ítaliu. Ekki
er þetta ósvipað geimförum.
A þessa styttu I S-Ameriku eru sagðar
meitlaðar stjarnfræðilegar staðreyndir,
sem Inkar gætu ekki hafa haft hugmynd
um.
LANGT úti i alheiminum — svo langt að
ekki er hægt að imynda sér fjarlægöina, —
gæti veriö sól með sólkerfi og hnetti, sem
á er lif. Þarna gæti verið fólk mjög likt
okkur, en ef til vill á steinaldarstiginu
enn.
Enginn getur sannað eða afsannað aö
svo sé, en látum okkur að minnsta kosti
viðurkenna, aö það er möguleiki. An þess
að gera miklu meira úr trúgirni okkar,
getum við siöan sagt sem svo, að menn
héöan frá jörðinni lendi einhvern tima
geimskipi sinu á þessum fjarlæga hnetti.
Hvernig kæmu geimfarar frá jöröinni
þvi frumstæða fólki, sem þarna er, fyrir
sjónir?
Þar sem ekkert sameiginlegt tungumál
væri fyrir hendi, og steinaldarfólkið gæti
ómögulega haft nokkurn grun um,
hvernig gestirnir heföu ferðazt, eöa hvað-
an þeir væru, væri satt að segja ekkert
undarlegt, þótt það liti á þá sem nátúrleg-
ar verur, eða öllu heldur yfirnáttúrlegar.
Þegar svo jarðarbúarnir væru farnir
aftur, færu steinaldarmennirnir að teikna
myndir af þessum skrýtnu gestum á
hellisveggi sina, og heföu gestirnir skilið
eftir einhver vísinda- og rannsóknartæki,
væri litið til þeirra með takmarkalausri
lotningu.
Arin liða, og sagan um gestina gengur
kynslóð fram af kynslóð, og mikið er gert
úr yfirnáttúrlegu valdi þeirra. Hlutir, sem
steinaldarmenn skildu ekki, svo sem
þrumur, eldingar, stormur og gott veður,
var talið i nánu sambandi við hegðan
mannanna. Það þurfti til dæmis að færa
íbúum himnanna fórnir til að fá gott veð-
ur. Hvað var eðlilegra en aö steinaldar-
fólkiö héldi að vera, sem kemur af himn-
um ofan, sé guð og búi þar?
Aður en kristin trú kom til sögunnar,
áttu jarðarbúar sér ótal guði — guðir
stjórnuðu veðrinu, gáfu mönnum afl,
vernduðu sæfarendur og svo framvegis.
Þvi er almennt trúað, að þessir guðir
hafi fæðzt I hugarheimi manna, beinlinis
til þess aö finna einhverja skýringu á
hlutum, sem þeir skildu ekki, til dæmis
eldi úr himninum, sem nú heitir elding.
En gætu verið aðrar skýringar á þess-
um guðum? Fékk jörðin heimsókn ein-
hvern tima I fyrndinni? Komu hingað
þróaöar verur frá öðrum hnetti? Var
þetta eitthvað svipað og það, sem búið er
til i upphafi þessarar greinar?
Einn er sá maður, sem trúir þvi, að
þessi kenning sé þess virði að athuga hana
nánar. Þaö er Erich von Daniken, sem
setti fram rök sin i bókinni „Voru guðirnir
geimfarar?” Þarna kennir ýmissa grasa
til stuðnings kenningunni. Daniken ræðir
mikið um ummerki á Nazca-sléttunni i
Andesfjöllum, sem hann segir, aö minni
helzt á flugvöll. Fornleifafræðingar vilja
ætla, aö þarna sé um vegi Inkanna að
ræða, en Daniken sýnir með allskynsam-
legum rökum, að þarna hafi verið eins
konar stæði fyrir geimskip.
A Norður-ltaliu eru einnig minjar, sem
viröast styðja kenningar Danikens. Þar
eru hellismyndir af mönnum, klæddum
einhverju sem likist geimbúningi og meö
einskonar hjálma á höfðum. Þeir gætu
svo sem alveg eins veriö dansarar I full-
um skrúða. Daniken sér einnig geimfara
á mynd frá Tassili I Sahara.
Það er æsandi tilhugsun, að menn frá
öðrum hnöttum hafi komið hingað til jarð-
ar endur fyrir löngu. Rithöfundar, sem
skrifa geimferðaskáldsögur, hafa notað
þetta efni geysimikið.
Við verðum að viðurkenna, að sllkt er
mögulegt, vegna þess aö ekkert óliklegt
er, að á öðrum hnöttum séu menn á mun
hærra þróunarstigi en viö hérna. Vissu-
lega gætu þeir hafa heimsótt okkur i
fyrndinni, en við höfum bara engar
sannanir fyrir þvi, að svo hafi verið. Aö
sjálfsögðu höfum við heldur engar
Mörgum finnst sitthvað líkt með geimfara
og verunni á teikningunni, sem er frá
Tassili i Sahara.
sannanir fyrir þvi, aö fornmenn hér á jörö
hafi lýst þeim i goðafræði sinni sem al-
máttugum guðunum.
Ef til vill koma þessir gestir einhvern
tima aftur, og þá er um að gera að reyna
aö fá upplýsingar hjá þeim, svo viö getum
leyst gátuna. Fyrr verður það varla hægt.
5