Heimilistíminn - 10.10.1974, Síða 19
iIeiðinni
Etum, drekkum og
verum glaðir
— hressilegt líf þarf ekki að vera stutt líf
HIÐ ljúfa líf þarf ekki endilega að hafa i
för með sér að menn deyi yngri en ella.
Þetta eru gleðifréttir þeim, sem vilja
heldur lifa stuttu lífi með góðum mat og
drykk, hraða og spennu, en löngu
meinlætalifi.
Það er sem sé hægt að éta, drekka og
vera glaður og lifa þó lengi, segir hópur
sérfræðinga i Kaliforniu. Þeir sem drekka
svolitið dag hvern og eru aðeins of
þungir, lifa lengur en margt bindindisfólk.
Eftir fimm ára rannsóknir á 7000 fullorðn-
um manneskjum i Kaliforniu, komust
sérfræðingarnir að þvi að iangt og
heilbrigt lif þýðir ekki að maður verði að
neita sér um allar nautnir. Uppskrift
þeirra á löngu lifi hljóðar upp á þrjár
góðar máltiðir á dag á reglulegum timum
og sérlega góðan morgunverð, ásamt bjór
eða vinglasi á hverjum degi. Þeir mæla
einnig meðsjötima svefni á sólarhring og
einhverri hreyfingu tvisvar til þrisvar i
viku. Meir að segja þeir, sem fá sér allt að
fjórum góðum drykkjum á dag, deyja
ekki fyrr en bindindisfólk, að sögn sér-
fræðinganna.
Ef lestir þinur eru orkufrekari en þeir
eru fitandi geturðu huggað þig við, að
litil hætta er á að þú slitir þér út á þeim.
Eftir að knattspyrnuhetjum voru
bannaðar samfarir meðan á heims-
meistaramótinu stóð, hafa sérfræðingar
lýst þvi yfir, að kynlif skaði engan, heldur
þvert á móti.
Prófessor Manfred Steinback, sér-
fræðingur V-Þjóðverja i iþróttum og
kynlifi, hefur rannsakað þetta og heldur
þvi fram, að samfarir hafi sjaldan nokkur
áhrif á afrek iþróttafólksins. Þreytan
daginn eftir sé ekki að kenna samförunum
sjálfum, heldur þvi, sem oft vill fylgja,
drykkju langt fram á nætur og
svefnleysi. Skynsamur iþróttamaður,
sem vill halda sér i horfinu, fer einfald-
lega fyrr að hátta með dömunni.
Kynlif getur meira að segja verið til
mikils gagns. Við samfarir eyðast 7 hita-
einingar á minútu, og einnig notast
margir vöðvar, sem yfirleitt eru önotaðir,
og þetta hjálpar við að halda likamanum
hraustum. Blóðrásin herðir á sér og hefur
örvandi áhrif á allan likamann. Sem
hreyfing er kynlif betra en golf, þótt
auðvitað séekki alltaf hægt að iðka það
utanhúss.
Fast kynlif, til dæmis i hjónabandi, er
einnig gott fyrir sálina, segir Alfred
Minto, sérfræðingur i geðsjúkdómum.
Hann segir að hamingjusamlega gift fólk
sé i mun minni hættu fyrir geðsjúkdómum
en annað.
Heilbrigt lif er sem sé ekki það sama og
rólegt lif. Rannsóknir sýna, að þeir sem
sleppa fram af sér beizlinu öðru hverju
hafa meiri möguleika á löngu lifi. Sú
manngerð, sem kætist mjög i veizlum,
reiðist oft og er létt um hlátur og grát,
mun að öllu jöfnu lifa lengur en rólega
manngerðin, sem alltaf er að stilla sig.
Spenna og streita er drepandi, og sá sem
getur slakað á, lifir heilbrigðu lifi. Það er
ekki nauðsynlegt að kasta diskum, það er
nóg að láta i ljós tilfinningar sinar með
orðum, hvort sem um er að ræða fögnuð
eða örvæntingu. Gott grátkast er jafn
læknandi fyrir karla og konur, og það er
löngu sannað, að hláturinn lengir lifið.
Það er ekki gott fyrir heilsuna, að dylja
tilfinningar sinar. Sérfræðingar eru
þeirrar skoðunar að ástæðan fyrir þvi að
konur lifa yfirleitt lengur en karlar, sé að
miklu leyti sú, að konur eiga auðveldara
með að fá útrás fyrir tilfinningar en
karlar. Þeim hættir til að loka
tilfinningarnar inni, og afleiðingin verður
ónauðsynleg spenna. Ef karlmenn gætu
lært að gráta, yrði lif þeirra mun
heilbrigðara.
Etið, drekkið og verið glöð, en munið,
að allar öfgar eru til ills eins. Einn eða
tveir drykkir eru ágætir, en hörð drykkja
á hverjum degi getur leitt til áfengissýki.
Njótið matarins, en munið, að þó að
nokkur aukakiló skipti éngu máli, þá er
mikil fita skaðleg. Leyndardómurinn
virðist þvi vera sá, að læra að njóta
lifsins, svo manni hlotnist lengra lif til að
njóta.
19