Heimilistíminn - 28.11.1974, Page 12
POI
DAVID Cassidy hefur fulla ástæöu til
að vera ánægður — að minnsta kosti
hvað fjárhaginn varðar. 1 fyrra voru
aðgöngumiðar að hljómleikum hans
seldir á allt að 15 þúsund krónum á
svörtum markaði. Hann er löngu
orðinn milljarðamæringur I isl.
krónum, og hefur m.a. keypt sér litla
Kyrrahafseyju. Einnig hefur hann
fjárfest i oliuiðnaðinum, og sá gjald-
miðill stendur vel fyrir sinu á þessum
siðustu og verstu tlmum. Til viðbótar
við þetta kemur svo allt, sem hann
þénar á auglýsingumog sliku. Nú er til
dæmis hægt að kaupa sér David
Cassidy-tyggjó i Bandarikjunum, svo
og fjölda annarra hluta, sem bera nafn
hans.
En David er dauðleiður á aö vera
táningastjarna og ennþá leiðari er
hann á „Partridge fjölskyldunni”.
Hann vill verða fullorðinn og það helzt
strax. Annars er hann orðinn 24 ára,
þótt hann sé ennþá i vandræðum með
óhreina húð og filapensla.
David er geysilega vinsæll meðal
ungu stúlknanna, á þvi er enginn vafi.
Siðast þegar hann hélt hljómleika i
London, ætlaði allt um koll að keyra.
Ein stúlka fékk hjartaáfall og lézt eftir
hljómleikana, sex voru fluttar á
sjúkrahús og um 1000 unglingar þurftu
einhverja læknisaðstoð. David þótti
þetta leitt og hefur ekki hugsað sér að
halda marga hljómleika hér eftir.
Hann segir lika, að aödáendur komi
ekki til að hlusta á sig, það geti ekki
verið, þvi þeir öskri svo hátt, að ekkert
heyrist tii hans.
Æðsta ósk hans er að lifa lifinu i friði
á eyjunni sinni, sem er skammt frá
Hawaii, en þar hefur hann mikið veriö
og kann vel við sig. Hann ætlar að
hætta öllum hljómleikaferðalögum
eins fljótt og samningar leyfa og fara
að ala upp hesta en syngja inn á plötur
sem aukastarf. Hann segist óska þess
að aðdáendurnir gleymi hvernig hann
lítur út, svo hann geti ferðazt um
heiminn I friði, en hins vegar mega
þeir kaupa plöturnar hans og muna
röddina. Auk þess langar hann til að
skrifa bók um allt sem hann hefur
heyrt og séð á ótal ferðalögum.
Að sjálfsögðu eru kvenna- og
ástamál stjarnanna alltaf forvitnilegt
efni og fylgzt vel með þvl. Nýlega
skýrðu brezku blöðin frá því að David
væri trúlofaður, en stúlkan, sem þau
áttu við, var þá aðeins með honum til
að syngja i kórnum á bak við hann. Þá
hefur verið sagt, að hann væri meö
Susan Dey, sem leikur með honum i
Partridge, en það er lika vitleysa. Jan
Freeman er heldur ekki súútvalda,
heldur er hún staðgengill hans i
myndunum, og þau eru ótrúlega lík.
En nýjustu fréttir herma, að hann sé
ástfanginn, og þær eru meira að segja
haföar eftir honum sjálfum. Daman
heitir Hoima MacDonald og er brezk
sýningarstúlka. Hún fór með honum
heim til Hollywood I sumar frá Eng-
landi. Þau eru sögð afskaplega ást-
fangin og slúöurblöðin þar vestra spá
hjónabandi bráðlega.
12