Heimilistíminn - 28.11.1974, Síða 16
ferðatösku á, að heimili. Veldu þér maka,
sem hefur jafn gaman af feröalögum og
þú sjálfur.
1. desember
Þú ert afar hæglátur og rólegur. Þú vilt
fyrir alla muni sjálfur taka þær ákvarð-
anir, sem þarf að taka og kærir þig litið
um afskipti annarra. Þú vilt fyrst og
fremst vera þú sjálfur, en ert þó fús til að
taka að þér verkefni með öörum og þá
geta aðrir líka verið vissir um að verkið
sé vel unnið. Þú hefur vissan hæfileika til
að f jarstýra því, sem þú ert að gera og þú
ert mótfallinn þvi að þiggja ráð og gefa.
En einhvern veginn veit fólk þó oftast
hvers þú óskar og er ánægt með aö breyta
samkvæmt þvi,
Þér þykir mjög vænt um heimili þitt og
vildir helzt starfa þar eingöngu, i stað
þess að þurfa út að vinna á hverjum degi.
Sumir sem fæddir eru á þessum degi, eru
mjög tónelskir og gera ef til vill tónlist af
lifibrauði sinu. Aðrir dansa og lifa á þvi,
Liklegast er þó að þú notir þessa hæfileika
á félagslega sviðinu.
Þú ert laginn við að græða fé og verður
að likindum vel staddur. Takmörk þau,
sem þú stefnir aö eru háleit og þú nærð
þeim yfirleitt. Konur fæddar þannan dag
verða hamingjusamastar ef þær giftast
snemma. Þú veizt hvernig þú átt að tala
og hafa ofan af fyrir fólki og ert vinsæll.
Allir sem fæddir eru þennan dag eru
bjartsýnismenn.
2. desember
Þú stefnir hátt, en nærð takmarkinu
snemma á ævinni. Þú vinnur hörðum
höndum að þvi sem þú vilt ná og þegar þú
hefur náð þvi, berstu fyrir aö halda stöðu
þinni. Lif I borg eða bæ er við þitt hæfi,
vegna þess aö þar er alltaf eitthvað að
gerast og þér liður bezt i miðjum ysnum.
Þótt þér gangi vel, ertu alltaf fús til
samstarfs og þú munt halda áfram að
vera góður og vingjarnlegur i viömóti við
fólk I kringum þig. Þú treöur aldrei á öðr-
um, heldur ekki þegar þú ert ofan á. Hins
vegar kýstu helzt að vinna með fólki sem
hefur sömu skoðanir og hugmyndir og þú.
Stundum ertuafarstrangur og krefst aga,
en þér er fyrirgefiö, þar sem þetta er hluti
af skapgerð þinni.
Þú ert gefinn fyrir að ferðast, ef ástæða
er til og þú færð eitthvað út úr þvi, einkum
nýjar hugmyndir. Þar sem þú ert mjög
tilfinninganæmur væri skynsamlegast að
þú hugsaðir þig vandlega um áður en þú
giftir þig. 1 hjónabandinu verðuröu annað
hvort mjög óhamingjusamur eöa ham-
ingjusamastur allra Verði það hið siðara,
verður hjónabandið gagnlegt starfi þinu,
en annars hið gagnstæða.
3. desember
Þú hefur sterkan persónuleika og ert sú
manngerð, sem fólk annaö hvort hatar
eða elskar. Hæfileiki þinn til að dæma og
skilgreina fólk er mikill og þér skjátlast
sjaldan. Fyrsta álit þitt er alltaf það
rétta. Ef þú hefur tekið ákvörðun, dettur
þér aldrei i hug að breyta henni.
Þú segir ekki alltaf það sem nú meinar,
þvi þér er illa við að vekja öðrum óþæg-
indi. Stundum tekurðu jafnvel of mikið til-
lit til kurteisisreglna, og þú vilt einnig að
aörir séu kurteisir. En þú ert vel metinn
og hefur sterkt aðdráttarafl fyrir hitt kyn-
iö.
Þú vilt gjarnan starfa að félagsmálum
og það verður ef til vill eftitt fyrir þig að
setjast um kyrrt I þjóðfélaginu og finna
þér ævistarf til að hafa tekjur af. En
stjörnurnar hafa verið gjafmildar við þig
og þú getur að likindum lifað þægilegu lifi
án þess aö leggja of mikið af mörkum.
Veriö getur að þér tæmist litilsháttar arf-
ur einhvern tima og það mun verða þér til
mikilla bóta. Þegar þú velur þér maka,
skaltu vera viss um að hann leggi jafn
mikla áherzlu og pomp og pragt og þú.
Þar sem þú vilt skilyrðislaust að allir
hlutir séu i lagi, að minnsta kosti á yfir-
borðinu, á heimilinu, er hjónabandsham-
ingjan undir þvi kominn að makinn hafi
sömu skoðanir.
16