Heimilistíminn - 20.02.1975, Side 3
Kæri Alvitur!
Mig langar til aö eignast pennavini
úti I iöndum. Getur þú gefiö mér
utanáskrift pennavinaklúbbs i Eng-
landi eöa Bandarlkjunum? Hver er
happatala hjá þeim, sem fæddir eru
15. september og 25. mai? Hvaöa
merki á viö meyjuna? Þakka fyrir gott
blaö.
LGF.
Svar: Hér er ég meö utanáskrift blaös
iEnglandi, sem sér um aö útvega ung-
lingum pennavini um allan heim:
Look and Learn/Fleetway
House /Farrington Street/London
EC4A 4AD. Þetta skiptist i linur viö/ -
merkiö. Happatala 24. mai mun vera 8
og 15. september 4. Sé viðkoinandi
meyja kvenmaöur, á hún aö velja sér
karlmann úr nautinu, en sé það karl-
maöur, á hann aö velja sér konu úr tvi-
burunum
Alvitur.
Kæri Alvitur!
Ég hef fylgzt meö þér um nokkurn
tima og ákvað ioks að skrifa þér og fá
nokkur góð svör og ráö.
1. Iivernig gctur maöur losnaö viö
flösu?
2. Hvaöa próf þarf maður að hafa tii
að gera orðið hjúkrunarkona og flug-
freyja?
3. Er t'.i óhappatala aiira?
4. Hvaö eru margir konungar og
drottningar viö vöid i löndum sinuin
núna?
5. Hvað lcstu úr skriftinni og livað
heldurðu að ég sé gömul? Vona að
þetta lendi ekki i ruslakörfunni, ef hún
er einhver. Ein fáfróð.
Svar: 1. Kunningjakona Alvitur, sem
hafði feitt hár og flösu, losnaði við
hana með þvi að þvo sér um hárið i
nokkurn tima á hverjum degi og
stundum oftar upp úr sjampó fyrir
þurrt hár. Hún ségir að hárþurrka æsi
flösuna um allan helming, svo hárið
verði að fá að þorna sjálft. 2. Að þvi ég^
bezt veit, þarf i hvorugu tilfellinu stúd-
entspróf, en ýmis önnur skilyrði þarf
að uppfylla. 3. Nei, alls ekki. Fjöldi
fólks heldur þvi fram, að 13 sé einmitt
happatalan sin. 4. I heiminum eru nú
11 konungsriki, Noregur, Danmörk,
Sviþjóð, Bretland, Belgia, Holland,
Jórdania, Thailand, Marokko,
Saudi-Arabía og Sikkim. Spánn bætist
væntanlega við i náinni framtið. Japan
og iran eru keisaradæmi og Monaco,
Lichtenstein og Luxembourg fursta-
dæmi, en erfingjar krúnunnar i fimm
þeim siðasttöldu kallast samt prinsar.
5. Þú skrifar mjög rétt, skriftin er
formföst, en ég held að þú sér ofurlitið
feimin við að hafa þig i frammi. Senni-
lega ertu um tvitugt. Jú, ruslakarfan
er til og hún gleypir fúslega öll bréf,
sem ekki eru með fullu nafni og heim-
ilisfangi.
Meðal efnis
í þessu blaði:
NýttlífíOman............................Bls. 4
Húfa meötrefli............................ — 6
Marúska, barnasaga........................ — 8
Spé-speki.............................. —10
Pop-lOCC................................ —11
Góður félagi, smásaga................... —13
Einkastjörnuspáin....................:.. —16
Merkar uppf inningar, naglinn.......... —18
Samtíningur úr póstinum.................. —19
Leggið þið kapal?...................... —20
Hvað nú, kæri karlmaður? .............. —22
Hvaðveiztu?............................. —24
Svínakótelettur........................ —25
Ljóð.................................... —27
James Dean............................. —28
Eruþæreins? .......................... —31
Börninteikna........................... —31
Hún getur það, en James Bond ekki....... —32
Kötturinn Bastian, frh.saga barnanna... —33
Endurfundir, frh.saga................... —35
Ennfremur skrýtlur, krossgáta, pennavinir, hús-
ráð, Alvitur svarar, o.fl. Margir munu kannast
við forsíðumyndina, sem er úr Alhambrahöllinni
á Spáni.
3