Heimilistíminn - 20.03.1975, Blaðsíða 31

Heimilistíminn - 20.03.1975, Blaðsíða 31
23. marz Þij hefur listræna hæfileika og auk þess ‘'eilmikinn áhuga á visindum og ef til vill ver&urftu I erfiðleikum með að taka ‘jkvörðun um hvoru þú átt að helga þig. Aö likindum velurðu annað sem ævistarf, etl hitt sem tómstundastarf, en verið get- Ur aö tómstundastarfið verði aðalstarfið ^fð timanum. Þú hefur framúrskarandi fainni, einbeitingarhæfileika og góða eft- lrtekt. Ef til vill munt þú starfa á rannsóknastofu, þar sem nákvæmni er al- SJÖrt skilyrði fyrir góðum árangri. Karl- ^aenn fæddir þennan dag eru vel á sig komnir likamlega og geta lagt á sig mikið erfl&i, neitað sér um margt og unnið erfiðisvinnu um langan tima. Þeir hafa Jika áhuga á iþróttum. Konur fæddar Pennan dag hafa tilhneigingu til óróleika á nnga aldri og skynsamlegt væri af þeim að beita kröftunum einnig að iþróttunum. Stöku sinnum virðistu ákaflega strang- Ur> en undir yfirborðinu ertu vingjarnleg- JU" og kiminn. En þú vilt fyrir hvern mun •^kkja fólk, áður en þú sýnir þinn rétta Persónuleika. Konur hafa tilhneigingu til uaðurs, en um leið og þær hitta þann réfta, gera þær sér grein fyrir að nú er al- vara á ferðum. 24. marz Þú ert vingjarnlegur og hugsunarsam- ur og réttlætiskennd þin er sterk. Þú þolir ekki að sjá aðra eiga bágt og skorta það, sem þeir eiga rétt til og þess vegna verð- urðu að likindum alla ævina ráðgjafi' þeirra, sem þarfnast hjálpar þinnar. Stjörnurnar hafa úthlutað þér marg- háttuðum hæfileikum og þú getur kom- izt alls staðar, þar sem þú vilt. Þetta er þér mikilvægt, þar sem máli skiptir, að margir möguleikar séu þér opnir. Omögulegt er að þvinga þig til að gera eitthvað sem þú vilt ekki sjálfur. Þar sem þú ert ákveðinn mjög, áttu oft erfitt meö að skilja að annað fólk sé það ekki lika og geti ekki allt, sem þú getur. Snemma lærist þér þó, að til er fólk, sem alltaf þarf á hjálp og ráðum að halda frá einhverjum sterkari. Þú ert ákaflega hagsýnn, en i niu skipti af tiu ferðu eftir hugboði þinu. Ef þú átt að koma einhverju á framfæri opinberlega, verðurðu aðflytja mál þitt hreint og beint. Ef þú framkvæmir þvert ofan i hugboö þitt, mun dómgreind þin biða skipbrot. Tilfinningar þinar eru djúpar og sterk- ar, en þær koma aðeins vel i ljós gagnvart fjölskyldunni, þar sem þú ert mjög tengd- ur heimili þínu. 25. marz Þú ert afar duglegur og hagsýnn, eink- um hvað varðar kaupsýslu og viðskipti og það tengist framtíð þinni. Þar sem þú ert sérlega framkvæmdasamur, geturðu skipulagt áætlun frá upphafi til enda og tekizt vel. Þú getur lika falið rétta fólkinu réttu verkefnin og þannig komið á beztu samvinnunni. Þú hugsar mikið um framtfðina og munt væntanlega geta lagt mikið af mörkum á sviði visindanna. Þú hefur lika möguleika á að ná viðurkenningu sem listamaður, en væntanlega ekki fyrr en siðar á ævinni. Ef listin verður þér ekki lifsviðurværi, verður hún áreiðanlega tómstundastarf þitt. Einkum er það feg- uröin I myndlist, bókmenntum og tónlist, sem höfðar til þin og verið getur að þú verðir gagnrýnandi, sem mikil áhrif getur haft á almennar skoðanir. Konur fæddar þennan dag, hafa mikinn áhuga á fallegum fötum og heimili. Þær eru smekklega klæddar og vita hvernig þær eiga að innrétta heimili sitt svo allt njóti sin sem bezt. Aðaláhugamál þeirra er heimilið og fjölskyldan. Þú verður ánægðastur með þvi að gifta þig snemma og eignast stóra fjölskyldu. Tilfinningar þinar eru nálægt yfirborðinu og i æsku verðurðu þess vegna fyrir von- brigðum sem þú kemst yfir. Slik von- brigði siðar á ævinni gætu hins vegar riðið þér að fullu tilfinningalega. Ðt> r 31

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.