Heimilistíminn - 07.05.1975, Blaðsíða 8
eld i
húskrókur’
Dýfið í
fondue-pottinn
Þeir sem búa til fondue, segja
gjarnan, að það sé skemmti-
legasta matreiðsla i heimi.
Þeir sem verið hafa i fondue-
veizlu vita, að það er sérstakt
andrúmsloft umhverfis pott-
inn.
Kjötfondue mun vera al-
gengast á Norðurlöndum,
ostafondue er þjóðarréttur
Svisslendinga, Japanir hafa
kjötsoð i pottinum og það nýj-
asta er súkkulaði-fondue,
sem Svisslendingar fundu upp
fyrir sælkera.
Á markaðnum eru margvis-
legar gerðir af fondue-útbún-
aði og vandi að velja. Við alla
fondue-suðu er nauðsynlegt að
hafa spritttæki og mikilvægt
er að það sé gott og vel
stöðugt, þvi þarna eru eldfim
efni á ferðinni, olia og spritt.
Þá er nausynlegt að geta
minnkað og stækkað logann á
tækinu, án þess að eiga á
hættu að brenna sig.
Ekki er vist að dýrustu tæk-
in séu þau beztu. Þegar olia er
soðin, þarf potturinn að vera
úr stáli, að minnsta kosti að
innanverðu og með vel ein-
angruðu skafti. Hann þarf lika
að mjókka upp, til að olian
sprautist síður út úr.
8