Heimilistíminn - 05.06.1975, Síða 3
Kæri Alvitur!
Ég er niu- ára og mig langar að
spyrja þig svolitið? Hvaðheitir hljóm-
sveitin, scm syngur lagið „The night
Chicago died?” Það er uppáhaldslagið
mitt. Hvernig lizt þér á Cat Stevens?
Mér finnst hann dásamlegur! Hvaöa
lag heldur þú mest upp á? Finnst þér
gaman að svara spurningum? Hvernig
er skriftin og hvað heldurðu að ég fái á
skriftarprófinu? Vonandi geturðu
svarað mér og vertu blessaður.
Kristín.
Svar: Hljómsveitin heitir „Paper
Lace”. Mér finnst Cat Stevens góður.
Ég held mikið upp á „Botniubrag”
með Ömari Ragnarssyni. Já, það er
gaman að svara skemmtilegum
spumingum eins og þessum. Skriftin
kemur til en ég veit ekkert um hvernig
einkunnir eru gefnar.
Alvitur.
Kæri Alvitur!
Ég hef skrifað þér áður og nú langar
mig að spyrja meira.
1. Hver er happatala þeirra, sem
fæddir eru 21. marz? og hver er happa-
liturinn?
2. Er það satt, að hár spretti betur, ef
það er þvegið upp úr kúahlandi?
3. Er betra eða verra fyrir hárið að
vera fléttað?
4. i einum Heimilistimanum er gesta
þraut með hjarta. Ég reyndi að leysa
hana, en gat það ekki. Hvernig á að
leysa hana?
5. Geturðu ekki sagt mér, hvernig á að
prjóna tvöfaldan kaðal i peysu?
6. Hvernig er skriftin og hvað heldurðu
að ég sé gömul?
Tóta.
svar: 1. Happatalan mun vera 8 og
liturinn er rauður.
2. Það var að minnsta kosti sagt i
gamla daga og þá var kúahlandið not-
að rétt eins og hárnæring núna.
3. Það er ekki gott fyrir hárið að vera
alltaf fléttað, þvi það þarf að vera
frjálst annað slagið. Hins vegar er gott
að flétta það, ef rdaður er til dæmis að
brasa eitthvað úti við, þá flækist það
ekki og maöur losnar við að slita það
mikið við að greiða niður úr þvi.
4. Ég get það ekki heldur, og það vill
enginn segja mér það. Við verðum
bara aö halda áfram að reyna.
5. Þaö eru til ýmsar gerðir af tvöföld-
um kaðli, flétta, skeifukaöall og fl. Ef
þú kannt að prjóna einfaldan kaðal
skaltu reyna aö teikna þann kaðal,
sem þú ætlar að prjóna og átta þig á,
hvoru megin þú setur hjálparprjón-
ana. Þetta er alveg sama aðferðin,
nema hvað þú skiptir slétta fletinum I
fleiri staði.
6. Skriftin er heldur ójöfn og barnaleg.
Þú ert 14-15 ára.
Alvitur.
Kæri Alvitur!
Ég er með nokkrar spurningar, sem ég
vona, að þú getir svarað.
1. Hvað heitir maðurinn, sem lék
Mark Larson i myndinni „Ast án
skuldbindinga” og hvar á hann
heima? Geturðu birt grein um hann á
pop-siðunni?
2. Hvernig eiga bogamaðurinn
(stelpa) og tviburinn (strákur) sam-
an?
3. Hvernig er skriftin og hvað held-
urðu að ég sé gömul?
þin ?X!
svar: Þvi miður kannast ég ekkert við
þessa mynd og veit ekki hvar eða
hvenær hún var sýnd hér. Bogastelpa
og tviburastrákur eiga mjög vel sam-
an. Skriftin er ójöfn og fremur barna-
leg. Þú ert 13 ára.
Alvitur.
Svar til húsmóður á Austurlandi: Um-
kvörtun þinni hefur hér með verið
komið til réttra aðila. Skriftin ber vott
um listahæfileika á einhverju sviði og
sterka réttiætiskennd. En hún er svo-
litið ójöfn og breytileg, ef til vill vegna
óvana við skriftir.
Alvitur.
AAeðal efnis
í þessu blaði:
Teotihuacan.............................Bls4
Vitamín bragðast vel ...................Bls 8
Greiðviknasti hani í heimi..............Bls 11
Opo— Roy Harper.........................Bls 12
Skrýtni maðurinn, barnasaga.............Bls 13
Spé-speki...............................Bls 15
Einkastjörnuspáin.......................Bls 16
Föndurhornið............................Bls 18
Hvað veiztu?..........................Bls 19
Börnin teikna.........................Bls20
Feimni, smásaga.......................Bls 22
Þannig er að f ara í hundana..........Bls 25
Léttar sumarpeysur handa f eðgunum....Bls 27
Pennavinir............................Bls29
Eru þær eins?.........................Bls 30
Fósturheimili fyrir dýr...............Bls 31
Markmaðurinn bjargaði.................Bls 32
Lilla, frh. saga barnanna.............Bls33
Aðeinseinn kostur, frh. saga..........Bls35
Ennfremur krossgáta, Alvitur svarar, skrýtlur
o.f I.
Forsíðumyndina tók Kristján Baldursson og
kappinn, sem þarna stingur sér til sunds í ískalda
Grímsána er enginn annar en Gunnar V. Andrés-
son, Ijósmyndari Tímans, sem tekið hefur flest-
ar forsíðumyndirnar okkar undanfarið.
3