Heimilistíminn - 05.06.1975, Blaðsíða 12
Roy Harper
Roy Harper heldur þvi sjálfur fram,
að hann sé óttalegt letiblóð. En ef
dæma skal eftir framleiðslu hans, get-
ur það tæpast verið rétt. A þeim árum,
sem hann hefur verið f sviðsljósinu,
hefurhann látið frá sér fara heil ósköp
af lögum og hann er iðulega i upptöku-
sölum. Meðal þekktustu laga hans
eru: ,,How Does It Feel?”, Goodbye”,
„Another Day”, „Song of The Ages”,
„Don’t You Grieve”, „Hells Angels”,
„Tom Tiddlers Ground”, „East of the
Sun”, „Davey" og „It’s not What You
Say”.
bað var ekki fyrr en 1965, að farið
var að veita Roy Harper verulega at-
hygli. Þessi brezki visna- og mótmæla-
söngvari ferðaðist þá mikið um Evr-
ópu og visum hans var vel tekið af á-
heyrendum.
Arið 1966 kom fyrsta LP-plata hans
út „The Sophisticated Beggar” þar
sem framúrskarandi gitarleikur hans
nýtur sfn til fullnustu. Arið eftir kom
LP-platan „Come out fighting Ghengis
Smith”. 1968 hélt hann fyrstu hljóm-
leika sina i Hyde Park i London, og
tókust þeir mjög vel og þar eignaðist
Roy marga nýja aðdáendur. Jafn-
framt streymdu tilboðin úr öllum átt-
um, en Roy hefur aldrei verið sérlega
hrifinn af að koma fram fyrir áheyr-
endur og tók mjög fáum tilboðum.
Hins vegar brást hann ekki hvað
varðar plöturnar. Hann sá til þess að
út kom ein LP á ári, „Folkjokeopus”,
„Flat Baroque and Berserk” og
„Stormrock” sýna allar góða þróun i
tónlistarhugsun Roys.
Að Roy Harper er virtur tónlistar-
maður og söngvari, sannaðist, þegar
Led Zeppelin komu með lag sitt „Hats
off to Harper". Það er á þriðju plötu
Led Zeppelin og er Roy Harper til
heiðurs. Þeir buðu honum lika með i
Bandarikjaför sina árið 1970, hvað
hann þáði eftir langa umhugsun.
Árið 1970 gerðist Roy kvikmynda-
leikari i myndinni „Made” og sama ár
fór hann i langa hljómleikaför um allt
England. En þrátt fyrir þessa vel-
gengni, varð árið 1972 honum slæmt,
þvi hann hafnaði á sjúkrahúsi með al-
varlegan blóðsjúkdóm.
En nú er hann heilbrigður á ný
og hélt upp á það með þvi að senda LP-
piötuna „Lifemask" og halda hljóm-
leika í Royal Albert Hall. Troðfullur
salurinn bauð hann velkominn aftur
með miklum fagnaðarlátum. Roy
Harper fæddist i Manchester 12. júni
1941.
12